Fleiri fréttir

Bílvelta við Blönduós

Það þykir með ólíkindum að ökumaður, sem var einn í bíl sínum, skuli hafa sloppið nær ómeiddur þegar bíll hans valt út af þjóðveginum skammt frá Blönduósi í gærkvöldi og valt margar veltur niður bratta brekku. Bíllinn er gjörónýtur en ökumaður fékk að fara heim að lokinni skoðun á heilsugæslustöðinni.

Niðurrif hafið á Gasa

Starfsmenn hins opinbera í Palestínu hófu í morgun niðurrif á ólöglegum byggingum við Gasa. Meira en 200 vopnaðir lögreglumenn voru til taks þegar litlum búðum, kaffihúsum og söluturnum var rutt úr vegi með jarðýtum en ekki hefur enn komið til kasta þeirra þar sem afar lítið hefur borið á mótmælum.

Aurskriða féll á Snæfellsnesi

Aurskriða féll á þjóðveginn um Búlandstind á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar í gær. Í sama mund var bíll að fara um veginn og lenti hann á steini í skriðunni og skemmdist eitthvað. Ökumanni var að vonum brugðið en sakaði ekki.

Fjöldi vopna haldlagður

Bandarískir hermenn hafa undanfarna daga lagt hald á töluvert magn vopna sem talið er að hafi átt að fara til hryðjuverkamanna í aðdraganda kosninganna í Írak sem fara fram eftir fimm daga. Vopnin fundust í leit á heimilum meintra uppreisnarmanna í Bagdad.

Vannýtt vegna fjárskorts Hafró

Nýjasta og fullkomnasta hafrannsóknaskipið, Árni Friðriksson, verður aðeins hundrað og sextíu daga á sjó við hafrannsóknir á þessu ári vegna fjárskorts Hafrannsóknastofnunar. Þetta verður um það bil hundrað dögum styttra úthald en gert var ráð fyrir þegar skipið var smíðað á sínum tíma.

Handtekin fyrir bílainnbrot

Lögreglumenn handtóku tvær unglingsstúlkur og einn pilt í Bakkahverfi í Reykjavík í nótt, grunuð um innbrot í bíla. Í fórum þeirra fundust meðal annars fimm farsímar og þrír geislaspilarar úr bílum. Við nánari athugun kom í ljós að þau höfðu brotist inn í fjóra bíla og látið greipar sópa.

Innilokað vegna snjóskafla

Nærri tveggja metra háir snjóskaflar eru víða í Massachusetts í Bandaríkjunum eftir gríðarlega ofankomu um helgina og er fjöldi fólks hreinlega lokaður inni á heimilum sínum af þeim sökum. Gríðarleg hríð var alla helgina á austurströnd Bandaríkjanna, einkum í nágrenni Boston, og hafa um tuttugu dauðsföll verið rakin beint til óveðursins.

Ófært frá Reykhólum og í Flókalund

Flughált er í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu að sögn Vegagerðarinnar. Ófært er frá Reykhólum og í Flókalund vegna snjóflóða og flughált er á Breiðdalsheiði. Öxi er ófær.

Þrír Svíar drukknuðu við Taíland

Minnst sjö manns, þar af þrír sænskir ferðamenn, létu lífið þegar skúta sökk úti fyrir Koh Samui, vinsælum ferðamannastað í Taílandi, í nótt. Mikill fjöldi manna var að skemmta sér um borð í skútunni þegar slysið varð og var enginn í björgunarvesti.

Skipulagðar misþyrmingar í Írak

Núverandi stjórnvöld í Írak stunda skipulagðar misþyrmingar á föngum sem sitja í fangelsum landsins og ólöglegar handtökur og pyntingar eru reglan fremur en undantekningin. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sem hafa tekið viðtöl við níutíu írakska fanga á síðustu tveimur árum.

Unnið að Vatnajökulsþjóðgarði

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að unnið verði að undirbúningi að því að fella landssvæði norðan Vatnajökuls inn í framtíðar Vatnajökulsþjóðgarð í samráði við heimamenn og aðra hagsmunaaðila. Áætlað er að þjóðgarðurinnn geti skilað allt að 1,5 milljarði króna í auknum gjaldeyristekjum á hverju ári.  

Andlátið rakið til vanrækslu

Maður á níræðisaldri, sem lést á vistheimilinu Hrafnistu eftir höfuðhögg á síðasta ári, fékk ekki þá meðferð og umönnun sem ætlast er af heilbrigðisstarfsfólki. Þetta kemur fram í álit Landlæknis.

280 þúsund að líkindum látin

Áætlaður fjöldi þeirra sem létust í hamförunum við Indlandshaf á annan dag jóla hefur nú enn hækkað. Nú er talið að alls 280 þúsund manns hafi misst lífið. 

Myndband með bandarískum gísl

Myndband sem sýnir bandarískan gísl í haldi mannræningja í Írak hefur dúkkað upp en þar sést karlmaður biðja sér griða á meðan byssu er beint að höfði hans. Maðurinn virðist afar hræddur, segist heita Roy Hallams og hafa unnið fyrir bandaríska herliðið í Írak.

Stjórnin framdi stjórnarskrárbrot

Stjórnvöld frömdu stjórnarskrárbrot með því að heimila notkun landsins til árásar á Írak segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Hann hyggst krefja forsætisráðherra skýringa á því hvers vegna herir bandamanna fengu leyfi til að hafa hér viðdvöl vegna árásarinnar, löngu áður en listi hinna staðföstu þjóða varð að veruleika. 

Þróunarhjálp í stað öryggisráðsins

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að það geti verið allt eins skynsamlegt að verja meiri fjármunum til þróunarhjálpar í stað þess að eyða allt að milljarði til að reyna að komast í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.

Óeðlileg yfirlýsing Gylfa

Þingflokkur Frjálslynda flokksins telur óeðlilegt að forsvarsmenn samtaka launamanna lýsi því yfir að einn forystumaður í stjórnmálaflokki sé öðrum fremri, eins og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, kaus að gera. Gylfi sagði stuðning verkalýðshreyfingarinnar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ótvíræðan.

2 sækja um hjá Útlendingastofnun

Tveir sóttu um embætti forstjóra Útlendingastofnunar en umsóknarfrestur rann út þann 22. janúar. Umsækjendur eru Hildur Dungal lögfræðingur og Sveinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri og lögfræðingur. Ekki liggur fyrir hjá dómsmálaráðuneytinu hvenær skipað verður í embættið.

Dýrkeypt epli

Bresk kona var í vikunni dæmd til að greiða rúmar sjö þúsund krónur í sekt fyrir að hafa borðað epli undir stýri. Málið væri svo sem ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir hið umfangsmikla eftirlit sem að lokum leiddi til þess að upp komst um glæpinn.

Niðurstöðurnar liggi fyrir í haust

Þingmenn Suðurkjördæmis samþykktu á fundi sínum á dögunum að tryggja 20 milljónir króna til jarðfræðirannsókna hvort mögulegt sé að gera jarðgöng milli Vestmannaeyja og Landeyja. Rannsóknirnar skulu fara fram sem fyrst og niðurstöður þeirra liggi fyrir ekki síðar en næsta haust. Í tilkynningu segir að niðurstöður þeirra skuli vera eign íslenska ríkisins.

Sami herafli í Írak út næsta ár

Bandaríski herinn mun halda núverandi liðsafla sínum í Írak út árið 2006 hið minnsta. Þetta er haft eftir háttsettum foringja innnan hersins í <em>Washington Post</em> í dag. 120 þúsund bandarískir hermenn eru nú í Írak auk 30 þúsund hermanna af öðru þjóðerni. 

Dómur fyrir kannabisræktun

Fertugur karlmaður var í dag dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að rækta og hafa í sinni vörslu um 180 kannabisplöntur í kartöflugeymslu í Ártúnsbrekku. Á heimili mannsins fundust tólf plöntur til viðbótar, fræ og lauf.

300 manns tróðust undir

Talið er að 300 manns, þeirra á meðal konur og börn, hafi látið lífið í troðningi á Vestur-Indlandi í dag. Um 150 þúsund pílagrímar voru í árlegri heimsókn í musteri þegar eldur braust út í nágrenni þess.

Bush vill 5000 milljarða aukalega

Bandaríkjaforseti vill fá aukafjárveitingu upp á 5000 milljarða króna vegna stríðsins gegn hryðjuverkum. Meirihluti fjárveitingarinnar mun renna til heraflans í Írak en kostnaður vegna stríðsins er löngu farinn fram úr áætlun </font /></b />

Margoft bent á loftlagshlýnun

"Fræðimenn hafa bent á það lengi að þegar hlýnun kemst á ákveðið stig mun það kerfi halda áfram óháð aðgerðum og það er því svo sem ekkert nýtt í þessu hvað það varðar," segir Helgi Jensson, forstöðumaður á framkvæmda- og eftirlitssviði Umhverfisstofnunar, um fréttir af nýútkominni skýrslu um loftslagshlýnun og afleiðingar þeirra.

Ellefu lögreglumenn féllu í Írak

Að minnsta kosti ellefu lögreglumenn létu lífið í skærum í austurhluta Bagdad í gær og andspyrnumenn réðu íraskan dómara af dögum. Átök brutust út í austurhluta borgarinnar þegar lögreglumenn skutu að mönnum sem dreifðu bæklingum til fólks þar sem það var hvatt til að kjósa ekki í kosningunum á sunnudag.

Flughált í Árnessýslu

Flughált er í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu og á Breiðdalsheiði. Ófært er um Öxi. Að öðru leyti er sæmileg færð á vegum en víða eru hálkublettir.

Fangar reyndu fjöldasjálfsmorð

Að minnsta kosti 23 fangar í fangabúðunum við Guantanamo-flóa reyndu að svipta sig lífi á vikutímabili í ágúst árið 2003. Sjálfsmorðstilraunirnar eru sagðar hafa verið skipulagðar aðgerðir og ætlaðar til að koma fangavörðum og yfirvöldum í uppnám.

Lögreglurannsókn dauðsfalls í bið

Lögreglan í Reykjavík bíður nú formlegrar álitsgerðar frá Landlæknisembættinu um dauðsfall aldraðs manns á Hrafnistu, áður en tekin verður afstaða til þess hvort lögreglurannsókn fer fram, að sögn Egils Stephensen saksóknara hjá embætti lögreglustjórans í Reykjavík.

ESB stofnar mannréttindastofu

Evrópusambandið ætlar að setja á laggirnar sérstaka mannréttindastofu eftir tvö ár. Varaforseti sambandsins, Franco Frattini, segir þetta rökrétta þróun í ljósi þess að brýnna sé en áður að tryggja grundvallarmannréttindi innan sambandsins.

Meðalaldur frumbyrja hækkar

Meðalaldur mæðra hefur farið stighækkandi á síðustu áratugum, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Hann hefur hækkað um 2,2 ár á tímabilinu 1963-2003, miðað við öll fædd börn, en um 4,2 ár sé eingöngu miðað við frumburði.

Síðasti gyðingurinn í Afganistan

Einn gyðingur býr í Afganistan eftir að sá næstsíðasti bar beinin fyrir viku síðan, áttræður að aldri. Báðir mennirnir höfðust við í eina samkomuhúsi gyðinga í landinu og elduðu saman grátt silfur um árabil.

Ríkið sýknað af kröfu Ástþórs

Íslenska ríkið var sýknað af tveggja milljóna króna skaðabótakröfu Ástþórs Magnússonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ástþór höfðaði málið vegna handtöku árið 2002. Hann var handtekinn vegna töluvpósts sem sendur var víða í nafni Friðar 2000 en þar sagði frá rökstuddum grun um að ráðist yrði gegn íslenskri flugvél.

Páfinn líti í eigin barm

Jose Bono, varnarmálaráðherra Spánar, vísar á bug gagnrýni Jóhannesar Páls páfa sem hefur mótmælt lögleiðingu fóstureyðinga og því að samkynhneigðir fái að ganga í hjónaband. Ráðherrann segir að afstaða kirkjunnar gangi í sumum tilfellum gegn boðskap Jesú Krists.

Fjöldi ábendinga um svart vinnuafl

Samiðn hefur borist "aragrúi ábendinga og upplýsinga um ólöglegt vinnuafl" í byggingariðnaði hér, að sögn formanns sambandsins. Lögreglan í Reykjavík og Útlendingastofnun hafa leitar eftir samstarfi við Samiðn um málið. </font /></b />

Leyfi fyrir 24 Kínverja

Impregilo fær á morgun atvinnuleyfi fyrir 24 Kínverja samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Alls verður gefið út 61 nýtt atvinnuleyfi fyrir íslensk og erlend fyrirtæki sem starfa á íslenskum vinnumarkaði.

Atvinnuleysi mun minnka

Fjármálaráðuneytið spáir að atvinnuleysi minnki í rúmlega 2% á komandi misserum og að hagvöxtur verði 5,5%, eða 0,5% meira en spáð var í haust. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu ráðuneytisins, „Úr þjóðarbúskapnum“, sem birt var í dag.

Ráðuneyti bíður svars frá Kópavogi

"Umsögn borgarstjóra við beiðninni var send Kópavogsbæ og yfirvöldum þar gefið tækifæri til að bregðast við röksemdum borgarinnar. Við búmst við svörum innan tveggja vikna og tökum efnislega afstöðu í framhaldinu," segir Pétur Örn Sigurðsson, lögfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, um lögnámsbeiðni Kópavogsbæjar á landi í Vatnsendakrika.

Kosningarnar breyta litlu

Kosningarnar í Írak á sunnudag eru aðeins þær fyrstu af þremur sem eru fyrirhugaðar í landinu fyrir árslok. Ekki er talið að þær breyti miklu enda sitja þingmennirnir sem verða kosnir aðeins til bráðabirgða.

Haförninn á batavegi

Ungur haförn sem verið hefur í gjörgæslu Húsdýragarðsins er óðum að fá bata en hann fór úr lið eftir að hafa flogið á rafmagnslínu í Þingvallasveit. Assan er hin glæsilegasta.

1500 líkum safnað daglega

Tala látinna í hamförunum við Indlandshaf heldur áfram að hækka. Nú er talið að um 280 þúsund manns hafi farist. Um 1500 líkum er safnað saman á hverjum degi í Aceh-héraði.

Gefur út 61 atvinnuleyfi

Vinnumálastofnun gefur í dag út 61 nýtt atvinnuleyfi fyrir íslensk og erlend fyrirtæki sem starfa hér. 24 þeirra eru fyrir Kínverja Impregilo.

Heilbrigðisvottorða krafist

EES borgarar hafa forgang að vinnu hér, heilbrigðisvottorða verður krafist með umsókninni og reglugerð flýtt. Þannig bregst félagsmálaráðherra við gagnrýni ASÍ á Impregilo og atvinnuleyfin. </font /></b />

Máttum giftast en ekki búa saman

Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, 23ja ára Jórdaníumanns, hefur kært ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Hasan úr landi og banna honum að koma aftur hingað, bæði til Útlendingaeftirlitsins og dómsmálaráðuneytisins. </font /></b />

Samkeppni um starfsfólk að aukast

Björgólfur Jóhannsson, forstóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, telur að samkeppni um starfsfólk sé að aukast á svæðinu.

Sjá næstu 50 fréttir