Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ariel Sharon í hættu Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Ísrael, Shimon Peres, hefur varað við því að öfgamenn úr röðum Gyðinga gætu reynt að ráða Ariel Sharon forsætisráðherra af dögum. 19.10.2004 00:01
Mary Poppins á kjörskrá Fulltrúum kjörstjórnar í Ohio í Bandaríkjunum fór að gruna að ekki væri allt með felldu varðandi skráningu kjósenda fyrir forsetakosningar þegar nöfn kjósenda á borð við Mary Poppins, Michael Jordan og George Forman bættust á lista kjörgengra í fylkinu. 19.10.2004 00:01
Betri framtíð innan Kína "Tíbet er vanþróað land. Það er stórt land og ríkt að náttúruauðlindum en okkur skortir tækni og þekkingu til að nýta þær. Því er það svo að ef við verðum áfram hluti Kína getum við notið góðs af því, að því tilskyldu að Kína taki tillit til menningar okkar og umhverfis," sagði Dalai Lama í viðtali við tímaritið Time. 19.10.2004 00:01
Forsætisráðherra í stofufangelsi Herforingjastjórnin í Mjanmar, sem áður gekk undir nafninu Burma, skipti í gær um forsætisráðherra. Herforinginn Soe Win, sem er talinn mikill harðlínumaður tók þá við embættinu af Khin Nyunt, herforingja og yfirmanni leyniþjónustunnar. 19.10.2004 00:01
Björn drap veiðimann Björn banaði veiðimanni nyrst í Svíþjóð. Maðurinn hafði farið ásamt fimm félögum sínum til að veiða elgi en var einn þegar björninn réðist á hann. 19.10.2004 00:01
Bretar inn á svæði Bandaríkjahers Bretar hafa skilning á vanda Bandaríkjahers í Írak og líta vinsamlegum augum á beiðni þeirra um að breskir hermenn taki sér stöðu á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers svo Bandaríkjamenn geti ráðist af meiri krafti gegn vígamönnum. Þetta sagði Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands. 19.10.2004 00:01
Sikhar kæra stjórnvöld Þrír sikhar hafa stefnt frönskum stjórnvöldum vegna banns við trúartáknum í skólum landsins. Sikharnir eru ósáttir við að fá ekki að bera túrbana sína og vonast til að dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum hafi verið óheimilt að setja lögin. 19.10.2004 00:01
Breytti nafninu í Keikóborgara Ungur Norðmaður hefur látið breyta nafni sínu í Keikoburger, eða Keikóborgara upp á íslensku. Hann segir þetta frábært því nú geti hann fengið útgefið vegabréf og ökuskírteini með einstæðu nafni. 19.10.2004 00:01
Sögufrægur glæpamaður skotinn Indverskur glæpamaður sem sakaður er um að hafa myrt meira en 130 manns á nokkurra áratuga glæpaferli sínum var skotinn til bana í skotbardaga við lögreglu í fyrri nótt. Þar með lauk nærri fjörutíu ára glæpaferli hans sem varð kveikjan að gerð kvikmyndar og tilefni margra samsæriskenninga. 19.10.2004 00:01
Stakk konu og barn til bana Ungur maður myrti átta ára dreng og tæplega sextuga konu þegar hann réðist á þau, vopnaður hníf, í Linköping í Svíþjóð snemma í gærmorgun. 19.10.2004 00:01
Coke semur sig frá sektum Margra ára langri deilu Evrópusambandsins og Coca Cola fyrirtækisins lauk með samkomulagi sem kynnt var í gær. Samkvæmt því þarf fyrirtækið ekki að greiða sektir en verður þess í stað að draga úr þeirri starfsemi sem er talin hamla samkeppni. 19.10.2004 00:01
Halldór treystir deilendum Forsætisráðherra segir að ekki standi til að setja lög á kennaraverkfallið. Hann segir mikilvægt að leysa málið en deilendur verði að gera það og það verði að treysta forystumönnum þeirra til þess. 19.10.2004 00:01
Tuga milljóna tjón Víst þykir að kviknað hafi í út frá heyi þegar 600-700 fjár brunnu inni á bænum Knerri á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Fjárhús, hlaða og vélageymsla, og margar vinnuvélar, brunnu þar til kaldra kola. Tjón er metið á tugi milljóna króna. Menn lögðu sig í mikinn háska við að reyna að bjarga sauðfénu. 19.10.2004 00:01
Áfram leynd um Línu Net Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Orkuveitu Reykjavíkur fá ekki að sjá endurskoðanaskýrslu Línu Nets eins og þeir hafa beðið um. Lína Net var dótturfélag Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór Þórðarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórn Línu Nets hafi synjað beiðninni. Meirihluta stjórnarinnar mynda þeir Alfreð Þorsteinsson og Stefán Jón Hafstein, fulltrúar Reykjavíkurlistans. 19.10.2004 00:01
Háskólar sameinast næsta sumar Stofnaður verður nýr háskóli sem tekur yfir rekstur Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands. Samkomulag um þetta var undirritað í gær. Stefnt er að því að starfsemin verði endanlega sameinuð næsta sumar. Þá verður skólinn næst stærsti háskóli landsins með í kringum 2.600 nemendur og um 180 fasta starfsmenn. 19.10.2004 00:01
Tillaga um hækkun gjalda aldraðra Gjöld fyrir heimaþjónustu, fæði og akstur í félagsstarf í Reykjavík hækka um tuttugu milljónir króna á næsta ári miðað við tillögur sem liggja fyrir í félagsmálaráði Reykjavíkur vegna gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. 19.10.2004 00:01
Hersetuliðið í 5 ár til viðbótar Engin leið er að kalla hersetuliðið í Írak heim innan fimm ára að mati virtustu sérfræðinga Bretlands í hermálum. Fyrst þá er nokkur von til þess að írakskar öryggissveitir geti tryggt lágmarksöryggi borgara landsins. 19.10.2004 00:01
Logandi kindur í veðurofsa Talið er að á sjöunda hundrað fjár hafi brunnið inni í eldsvoða á bænum Knerri á sunnanverðu Snæfellsnesi á mánudagskvöld. Mikið eignatjón varð þegar hlaða, fjárhús og skemma með fjölda tækja urðu eldi að bráð. Slökkvistarfi lauk í gær. 19.10.2004 00:01
Ekki refsað fyrir að berja konuna Héraðsdómur Reykjaness sleppti í gær manni við refsingu, sem sannað þótti að hafði gengið í skrokk á eiginkonu sinni. Maðurinn viðurkenndi að hafa lagt hendur á konuna eftir að grunur kom upp um framhjáhald hennar. 19.10.2004 00:01
Kvöðum ekki aflétt Ekki kemur til greina að aflétta kvöðum sem fylgja skipulagi vegna matvöruverslunar Bónuss og Hagkaupa í Spönginni að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns skipulagsnefndar borgarinnar. 19.10.2004 00:01
Fiskmarkaður opnaður á Siglufirði Fiskmarkaður hefur verið opnaður á Siglufirði. Ólafur Kárason, formaður bæjarráðs Siglufjarðar, segir að markaðurinn sé opnaður vegna aukinnar fiskgengdar á miðunum fyrir norðan land. 19.10.2004 00:01
Yfirheyrður vegna dóplista Lögreglan yfirheyrði í gær Björn Sigurðsson í Krummahólum í Breiðholti vegna nafnalista yfir dópsala sem hann birti á vef sínum dopsalar.tk. Nöfn tveggja lögreglumanna eru á vefnum og hefur annar þeirra kært Björn. 19.10.2004 00:01
Nóatún fékk leyfi fyrir mistök Mistök voru gerð í skipulagi Grafarholts þegar Nóatún fékk að opna verslun við Þjóðhildarstíg. 19.10.2004 00:01
Vind lægir í dag Óveðrið sem geisað hefur víða um land síðan á mánudag með miklu hvassviðri á Suður- og Vesturlandi mun ganga niður í dag, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. 19.10.2004 00:01
Mikill uppblástur á Suðurlandi Uppblástur á Suðurlandi í hvassviðrinu undanfarna tvo daga er sá mesti sem orðið hefur í mörg ár. Þetta segir Jón Ragnar Björnsson, fræðslufulltrúi Landgræðslu Íslands. Hann segir uppblásturinn hafi verið mestan í uppsveitum Rangárvallasýslu, sérstaklega í kringum Heklu. Hann segir mold, sand og vikur hafa myndað skafla á svæðinu. 19.10.2004 00:01
Brúin yfir Núpsvötn skemmdist Þjóðvegurinn lokaðist í gær þegar brúin yfir Núpsvötn við Lómagnúpa skemmdist í óveðrinu. Yfirborð brúarinnar opnaðist þegar málmgrindur sem lagðar voru í brúna fyrir skömmu flettust upp. 19.10.2004 00:01
Ótrúlegri slysaalda í Langadal Þrír bílar lentu utan vegar og einn árekstur varð í norðanverðum Langadal í gærdag. Enginn slaðasist alvarlega en tveir bílar eru nokkuð skemmdir. 19.10.2004 00:01
Bærinn þakinn brúnni slikju Mikið moldrok var á hálendinu í hvassviðrinu sem gekk yfir landið í gær og fyrradag. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fóru Eyjamenn ekki varhluta af moldrokinu. Var það svo mikið að varla sást út úr augum um tíma. 19.10.2004 00:01
Hækka skólagjöldin um 500%? Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands verða sameinaðir næsta haust og verða þar með að næststærsta háskóla landsins, með um 2500 nemendur. Miðað við núverandi skólagjöld má reikna með að skólagjöld Tækniskólanemenda hækki um rúmlega 500 prósent. 19.10.2004 00:01
Strokufangi handtekinn Nítján ára gamall fangi sem strauk úr fangelsinu á Skólavörðustíg að morgni mánudags var handtekinn á veitingastað í miðbæ Hafnarfjarðar síðar um daginn. Hann hefur nú verið vistaður í fangelsinu að nýju. Lögreglan í Hafnarfirði handtók manninn seint á mánudagskvöldið eftir að hann réðst á starfsmann veitingastaðar í bænum. 19.10.2004 00:01
Tveir af fjörtíu voru í bílbeltum Mildi þykir að enginn skyldi hafa slasast lífshættulega þegar rúta með fjörtíu manns innanborð fauk út í kant og valt út af veginum undir Akrafjalli um klukkan sjö í gærmorgun. Rútan endaði á toppnum fyrir neðan veginn. 19.10.2004 00:01
Milljarðahagnaður Motorola Bandaríksa fjarskiptafyrirtækið Motorola hagnaðist um tæplega þrjá og hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi. Það er tæpum tveimur milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. 19.10.2004 00:01
Ríkið efli sveitarfélögin Borgarstjórn Reykjavíkur skorar á ríkisstjórnina að efla tekjustofna sveitarfélaga þannig að þau geti með eðlilegum hætti sinnt þeim verkefnum sem þau hafa með höndum. Áskorunin var samþykkt samhljóða á fundi borgarstjórnar í gær. Margrét Sverrisdótti, varaborgarfulltrúi Frjálslyndra lagði fram tillögu í þessa átt en henni var breytt með tillögu Reykjavíkurlistans. 19.10.2004 00:01
Þrjár beiðnir af ellefu samþykktar Þrjár undanþágubeiðnir af ellefu voru samþykktar á sjöunda fundi undanþágunefndar vegna verkfalls grunnskólakennara. Fimm beiðnum var hafnað og þremur frestað 19.10.2004 00:01
Fékk óskina áttfallt uppfylta Sjö einhverfir nemendur Hamraskóla í Grafarvogi snúa til kennslu í dag. Jákvætt svar fékkst í fjórðu tilraun þegar beiðninni var breytt úr undanþágu fyrir þrjá kennara í 23. Yngvi Hagalínsson skólastjóri segir að vel hefði verið hægt að leysa neyð nemendanna með kennurunum þremur. 19.10.2004 00:01
30. dagur verkfalls kennara Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari telur ekki að lög verði sett á verkfall kennara. Hann leggur ekki mat á hvort þokast hafi í samkomulagsátt á fundi samninganefnda kennara og sveitarfélaga í gær. 19.10.2004 00:01
Endurnýja samstarfið Héraðslistinn hefur ákveðið að ganga til viðræðna við sjálfstæðisflokkinn um myndun meirihlutastjórnar á Héraði. 19.10.2004 00:01
Ávinningurínn um hálfur milljarður Hvalfjarðargöngin hafa komið Vesturlandi í sömu stöðu og Suðurland hefur gagnvart höfuðborgarsvæðinu. Ávinningurinn er mestur hjá þeim sem næst göngunum búa. Væntingar Vestlendinga hafa stóraukist með tilkomu ganganna. </font /></b /> 19.10.2004 00:01
Rækjuveiðar bannaðar í Djúpinu Rækjuveiðar verða ekki leyfðar í Ísafjarðardjúpi í vetur ef farið verður að tillögum Hafrannsóknastofnunar. Leggur stofnunin ennfremur til að rækjuveiðar verði ekki leyfðar í Arnarfirði að svo stöddu. 19.10.2004 00:01
Mannabreytingar hjá Gæslunni Björn Brekkan Björnsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, hefur tekið að sér að vera flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Benóný Ásgrímsson sem sinnt hefur flugrekstrarstjórastarfinu síðastliðin fjögur ár verður áfram yfirflugstjóri. 19.10.2004 00:01
Beiðni Steingríms hafnað Stjórn Landssíma Íslands hefur hafnað kröfu Steingríms J. Sigfússonar, alþingismanns, um að boðað verði til hluthafafundar í fyrirtækinu vegna kaupa þess á hlut í Skjá einum. 19.10.2004 00:01
Banaslys í Skagafirði Banaslys varð í nótt þegar bíll valt út af þjóðveginum ofan við Varmahlíð í Skagafirði. Einn lést og voru þrír fluttir á Fjórðungssjukrahúsið á Akureyri. Fréttastofunni er ekki kunnugt um líðan þeirra né tildrög slyssins, nema hvað hálka var á vettvangi. 18.10.2004 00:01
Bush með 8% forskot George Bush Bandaríkjaforseti er með átta prósentu forskot á John Kerry samkvæmt nýjustu könnun Gallups í Bandaríkjunum. Á meðal líklegra, skráðra kjósenda var munurinn þó nokkuð minni. Bush var með 52 prósent en Kerry með 46 prósent. Þetta eru svipaðar niðurstöður og Gallup fékk áður en kappræðuhrina þeirra Bush og Kerrys hófst. 18.10.2004 00:01
Gripið verði til lagasetningar Gunnar Birgisson, formaður menntamálanefndar Alþingis, segir að ríkið verði að grípa til örþrifaráða með lagasetningu ef ekki gangi saman með deilendum í kennaradeilunni á næstunni. Gunnar sagði þetta í viðtali við Ríkisútvarpið í gærkvöldi en vildi ekki tímasetja nánar hvenær nóg væri komið svo að lög verði sett til að stöðva verkfallið. 18.10.2004 00:01
Olíuverðið yfir 55 dollara Olíuverð er komið yfir fimmtíu og fimm dollara eftir að það hækkað töluvert í Singapúr í morgun. Sama verð verður í gildi þegar olíumarkaðir í New York verða opnaðir eftir nokkrar klukkustundir. 18.10.2004 00:01