Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
10 ára strákur í sjálfheldu Tíu ára gamall strákur lenti í sjálfheldu í klettum fyrir ofan Ölfusborgir um hádegi í dag. Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út kl.11:55 og brugðust björgunarsveitarmenn og lögregla skjótt við og voru komnir á staðinn nokkrum mínútum eftir útkall. 17.7.2004 00:01
Einn lést og annar særðist Bandarískur hermaður lést og annar særðist í sprengjuárás uppreisnarmanna í Írak í dag. Um var að ræða sprengju í vegarkanti nálægt borginni Baijí í norðurhluta landsins. 17.7.2004 00:01
Milljarðatugir í húfi Skilvirk starfsemi stofnana og útboð vissra þátta getur lækkað kostnað um fimmtán prósent og upp úr. Hérlendis gæti slíkt skilað allt að tuttugu milljörðum króna í sparnað segir formaður Verslunarráðs. 17.7.2004 00:01
Dorritt á sjóskíðum Setningarathöfn Siglingadaga á Ísafirði hófst klukkan 17 í gær með því að forsetafrúin Dorritt Moussaieff, verndari hátíðarinnar, fór á sjóskíðum í fylgd tveggja annarra sjóskíðakappa frá Suðurtanga og um Pollinn. Síðan mætti hún á Silfurtorg þar sem mannfjöldi fagnaði henni. 17.7.2004 00:01
Streita á meðgöngu afdrifarík Konur sem þjást af streitu um miðbik meðgöngunnar eru líklegri en aðrar konur til að eignast börn sem síðar á lífsleiðinni stríða við hegðunarvandamál. Vísindamenn í Bandaríkjunum tilkynntu þessar niðurstöður rannsóknar sinnar í gær. 17.7.2004 00:01
Sleppa gíslinum á morgun Mannræningjar sem hafa haft egypskan bílstjóra, Mohammed al-Gharabawi að nafni, í haldi sínu í Írak að undanförnu segjast ætla að sleppa honum á morgun að sögn Reuters-fréttastofunnar. 17.7.2004 00:01
Húnaröstin seld til niðurrifs Húnaröstin SF 550, eitt af skipum Skinneyjar Þinganess, hefur verið seld til niðurrifs og munu nýir eigendur sigla henni til Danmerkur þar sem skipið fer væntanlega í brotajárn. Húnaröstin var áður í eigu Borgeyjar og var mikið aflaskip en að lokinni loðnuvertíð árið 2001 var skipinu lagt. 17.7.2004 00:01
37% fylgjandi innrásinni í Írak Einungis 37 prósent Bandaríkjamanna eru þeirrar skoðunar að George Bush, forseti landsins, hafi breytt rétt þegar hann ákvað að ráðast inn í Írak. 51 prósent þjóðarinnar er þeirrar skoðunar að Bandaríkin hefðu ekki átt að ráðast til atlögu. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar sem dagblaðið <em>The New York Times</em> og sjónvarpsstöðin CBS birtu í dag. 17.7.2004 00:01
Þrjú slys í umdæmi Selfosslögreglu Lögreglan á Selfossi hefur staðið í ströngu í dag en þrjú slys hafa orðið í umdæmi hennar í góðviðrinu. 16 ára piltur handleggsbrotnaði þegar hann flaug af hjóli sínu á mótorkrossbrautinni á Selfossi laust eftir hádegi í dag. 17.7.2004 00:01
350 km langar bílaraðir 350 kílómetra langar raðir bifreiða voru á frönsku hraðbrautunum í dag en þessi helgi er fyrsta stóra ferðahelgi Frakka. Verst er ástandið í suðaustur Frakklandi en þar eru 120 kílómetra langar umferðarteppur. Biðraðirnar mynduðust strax í morgunsárið þegar fólksbíll og rúta lentu saman og leiddi það til 30 kílómetra umferðarteppu. 17.7.2004 00:01
Afsögn forsætisráðherra Palestínu Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, tilkynnti ríkisstjórn sinni í dag að hann hygðist láta af embætti. Hann greindi Jasser Arafat, forseta Palestínu, frá ákvörðun sinni á fundi í morgun en Arafat neitaði að samþykkja hana. 17.7.2004 00:01
50 ára kampavín af hafsbotni Breskir kafarar fundu 20 þúsund flöskur af vel kældu kampavíni sem höfðu legið á botni Ermarsunds í nær hálfa öld. Ekki fæst gefið upp nákvæmlega hvar fjársjóðurinn fannst. 17.7.2004 00:01
Mannfall heldur áfram Tugir manna liggja sárir og að minnsta kosti sex eru látnir eftir að tvær bílsprengjur sprungu í Bagdad í Írak í morgun. Önnur sprakk í námunda við bílalest nýskipaðs dómsmálaráðherra landsins, Maliks Dohans al-Hassans. Ráðherrann slapp ómeiddur en fjórir lífverðir hans létust. 17.7.2004 00:01
Bændum settir úrslitakostir Landsvirkjun setur bændum úrslitakosti og þvingar þá til samninga, segir einn þeirra fimm bænda sem stendur frammi fyrir eignarnámi vegna rafmagnslína frá Kárahnjúkavirkjun. Hann segir þá ekkert fá fyrir að gefa eftir jarðir sínar. 17.7.2004 00:01
Alltaf ljóst að afbrot var framið Það hefði engu skilað að auglýsa strax eftir Sri Rahmawati þar sem ljóst var frá upphafi að afbrot hefði verið framið að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns. Rahmawati hefur verið saknað í tvær vikur. Fyrrverandi sambýlismaður hennar neitar enn sök. 17.7.2004 00:01
Brunavörnum ábótavant Eignatjón í bruna var helmingi minna í fyrra en þrjú ár á undan. Þrátt fyrir það er brunavörnum ábótavant á nærri helmingi gistiheimila og í um þriðjungi framhaldsskóla landsins. 17.7.2004 00:01
Deilur um vegamót á Suðurlandi Vegagerðin ætlar ekki að gera hringtorg við Landvegamót á Suðurlandi þrátt fyrir að það kosti jafnmikið og þær framkvæmdir sem þegar eru hafnar. Vegagerðin segir umferð ekki nógu mikla um hliðarvegina en verslunareigandi við gatnamótin hafnar því og segir hringtorg nauðsynlegt. 17.7.2004 00:01
Skelfilegt óréttlæti Einar Oddur Kristjánsson telur að veiðigjald sem lagt verður á sjávarútvegsfyrirtæki frá september verði greitt af verkafólki í fiskiðnaði sem hann segir skelfilegt óréttlæti. Sjávarútvegsráðherra segir gjaldið hóflegt. 17.7.2004 00:01
Leitað á völdum stöðum Leitað er að Sri Rahmawati, 33 ára gamalli konu sem saknað hefur í tæpar tvær vikur, á völdum stöðum aðallega norðan og austan við Reykjavík að sögn Sigurbjörns Víðis Eggertssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík. 17.7.2004 00:01
Þriggja bíla árekstur Þriggja bíla árekstur varð við Þrengslavegamót í Svínahrauni rétt eftir hádegið í gær. Einn bílanna hafnaði utan vegar og valt í kjölfarið. 17.7.2004 00:01
Fjármálaráðherra greip inn í Fjármálaráðherra greip inn í deilu tollayfirvalda og akstursíþróttamanna um tryggingafé vegna heimsbikarsins í torfæru um helgina. Þar af leiðandi var hætt við að aflýsa keppninni. Landssamband íslenskra akstursfélaga segir málið engu að síður til skammar. <font size="2"></font> 17.7.2004 00:01
Vildu samstarf um árásir Íranskir embættismenn settu sig í samband við al-Kaída eftir árás samtakanna á bandaríska herskipið Cole. Vildu írönsk stjórnvöld eiga samstarf við samtökin um árásir á Bandaríkin í framtíðinni að því er fram kemur á vef bandaríska vikublaðsins Time. 17.7.2004 00:01
Ný stefna fyrir sama starfsmann Það er mjög hvimleitt að þurfa að standa í þessum stöðugu innheimtumálum," segir Kristinn Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. 17.7.2004 00:01
Upplausn í heimastjórninni Palestínska heimastjórnin er í upplausn vegna deilna um öryggismál og spillingar. Ahmed Qureia, forsætisráðherra í palestínsku heimastjórninni, sendi Jasser Arafat Palestínuforseta afsagnarbeiðni í gærmorgun en Arafat neitaði að taka hana gilda. Qureia sagði ráðherrum sínum hins vegar að hann ætlaði sér að standa fastur á afsögn sinni. 17.7.2004 00:01
Gengu út af friðarfundi Súdanskir uppreisnarmenn sögðu samningamenn stjórnvalda ekki reiðubúna að koma til móts við kröfur sínar og gengu því á dyr. Vonir stóðu til að viðræðurnar yrðu til að binda endi á borgarastríð í Darfurhéraði sem hefur kostað tugi þúsunda lífið og hrakið yfir milljón manns á flótta. 17.7.2004 00:01
Sex létust í árekstri á hraðbraut Reykslæður sem bárust yfir hraðbraut virðast hafa verið kveikjan að 20 bíla árekstri sem kostaði sex manns lífið nærri Róm, höfuðborg Ítalíu. Auk þeirra sex sem létust slösuðust um 40 og voru margir þeirra með brunasár. 17.7.2004 00:01
Spá miklum hækkunum Heilbrigðisráðuneytið fundar þessa dagana með lyfjahópi Félags íslenskra kaupmanna í þeim tilgangi að ná fram lækkunum á lyfjaverði. Ástæðan er útlit fyrir mikla hækkun á útgjöldum Tryggingastofnunar vegna lyfjakostnaðar milli áranna 2003 og 2004. 17.7.2004 00:01
Þýskur Forrest Gump Það telst afrek að hafa ferðast um heimsálfurnar sjö en Þjóðverjinn Stefan Schlett lét sér það ekki nægja. Hann ferðast um á tveimur jafnfljótum og segir mannskepnunni í blóð borið að hreyfa sig. 17.7.2004 00:01
Eignatjón minnkaði um helming Fjárhagstjón vegna bruna hefur minnkað um helming milli ára. Athugun Brunamálastofnunar sýnir að ástand brunavarna á gistiheimilum er slæmt í 46 prósent tilvika og hefur staðið í stað frá árinu 1997. 17.7.2004 00:01
Erfið ferð en gekk ljómandi vel "Þetta var nokkuð erfið ferð en gekk alveg ljómandi vel," segir Arnar Klemensson en hann fór ásamt félaga sínum Alexander Harðarsyni yfir Hellisheiðina á hjólastól í gær. "Ferðin var farin til styrktar Barnaspítala Hringsins og tók tæpa átta klukkutíma fyrir okkur." 17.7.2004 00:01
Þriggja bíla árekstur Tveir voru fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur á Hellisheiði í dag. Enginn meiddist alvarlega þótt einn bílanna hafi oltið út af veginum. 17.7.2004 00:01
Ný símanúmer Reykjavíkurlögreglu <font face="Arial">Embætti lögreglustjórans í Reykjavík tekur frá og með morgundeginum, 19. júlí, í notkun ný símanúmer fyrir embættið.</font> 17.7.2004 00:01
Stjórnarandstaðan krefst fundar Stjórnarandstaðan krefst þess að allsherjarnefnd Alþingis komi aftur saman í dag en fundi nefndarinnar var óvænt slitið um hádegið í gær og hefur nýr fundur ekki verið boðaður fyrr en á mánudag. 16.7.2004 00:01
Verkamannaflokkurinn tapar sæti Verkamannaflokkurinn breski tapaði einu þingsæti í aukakosningum sem fram fóru í gær. Litlu munaði að flokkurinn tapaði öðru sæti til. 16.7.2004 00:01
Banaslys á Bíldudal Banaslys varð á Bíldudal á sjöunda tímanum í gærkvöld. Ekið var á 14 stúlku á veginum rétt fyrir utan bæinn og er talið að hún hafi látist samstundis. 16.7.2004 00:01
Lítill árangur á AIDS-ráðstefnu Alþjóðlegu alnæmisráðstefnunni í Bangkok á Tælandi er lokið án þess að nokkur teljandi árangur hafi náðst. Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, sendi Bandaríkjamönnum tóninn þegar hann hvatti ríki heims til að taka saman höndum og leggja milljarða dollara í þróun lyfja og forvarnir. 16.7.2004 00:01
Þriggja bíla árekstur Harður þriggja bíla árekstur varð á hringveginum um Langadal seint í gær. Svo virðist sem fólksbíl sem var á leið frá Blönduósi hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og lenti hann á jeppa sem kom á móti. Jeppinn hafnaði þá á öðrum jeppa sem kastaðist út af veginum. 16.7.2004 00:01
Filippseyingar á leið heim Filippseyskar hersveitir í Írak eru nú á leið heim eftir að stjórnvöld tóku af skarið og virtu andmæli Bandaríkjastjórnar að vettugi. Vonir standa til að lífi filippseysks gísls verði þyrmt fyrir vikið. 16.7.2004 00:01
Fíkniefnum kastað úr bíl Pakka með fíkniefnum var kastað út úr bifreið sem var á norðurleið skammt frá Blönduósi í gærkvöld. Lögregla kannaðist við mennina í bílnum og gaf þeim merki um að stöðva. Í stað þess að nema staðar var litlum pakka, sem reyndist innihalda fíkniefni, fleygt úr bílnum á ferð. 16.7.2004 00:01
Forsetahjónin á Ísafirði Forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, fóru til Ísafjarðar í morgun. Frú Dorrit er sérstakur heiðursgestur og verndari Siglingadaga sem settir verða í dag og forsetinn verður viðstaddur ráðstefnuna „Með höfuðið hátt“ sem sett var í gærkvöldi. 16.7.2004 00:01
Löggæslukostnaður hækkar mjög Löggæslukostnaður á Landsmóti hestamanna hefur farið hækkandi undanfarin ár . Kostnaðurinn á landsmótinu á Hellu í ár var 2,7 milljónir króna en var 2,5 milljónir króna á Vindheimamelum fyrir tveimur árum. 16.7.2004 00:01
Brýnt að minnka sykurneyslu Lýðheilsustöð hefur fengið Hagfræðistofnun Háskóla Íslands til að kanna áhrif forvarnargjalds á sykur og gos á vísitölu neysluverðs. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir að taka verði á ofneyslu sykurs sem eigi annars eftir að verða þungur klafi á heilbrigðiskerfinu og það sé gott að allar leiðir séu kannaðar. 16.7.2004 00:01
Íslendingar borða lítinn fisk Íslendingar borða helmingi minni fisk en ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að sögn Laufeyjar Steingrímsdóttur hjá Lýðheilsustöð. 16.7.2004 00:01
Lífsgæði á Íslandi í sjöunda sæti Ísland er í sjöunda sæti yfir þau lönd sem njóta mestra lífsgæða samkvæmt nýútkominni skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna. Ísland var í öðru sæti listans í fyrra. Könnunin nær yfir 177 lönd í heiminum. 16.7.2004 00:01
Stjórnarandstaðan fundar Formenn stjórnarandstöðuflokkanna hittast á fundi nú á tólfta tímanum en þeir eru afar ósáttir við að enginn fundur verði í allsherjarnefnd í dag. Stjórnarandstaðan krafðist þess í gær að fundum nefndarinnar yrði framhaldið strax í dag en næsti fundur hefur hins vegar verið boðaður klukkan 10 á mánudag. 16.7.2004 00:01