Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðgangur að farþegaupplýsingum Frá og með 28. júlí næstkomandi mun bandaríska Tolla- og Landamærastofnunin fá aðgang að farþegaupplýsingum úr bókunarkerfi Icelandair um farþega á leið til Bandaríkjanna. Samkvæmt bandarískri löggjöf eru öll flugfélög sem fljúga til Bandaríkjanna skyldug til að veita þessar upplýsingar. 14.7.2004 00:01
Maðurinn alvarlega slasaður Maðurinn, sem ekið var á í Ártúnsbrekkunni í nótt, er alvarlega slasaður og í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Komið var að honum meðvitundarlitlum á þriðja tímanum í nótt, en ökumaður bifreiðarinnar sem ók á hann, hafði stungið af. Lögregla fann bifreiðina skömmu síðar og handtók mann, sem er grunaður um að hafa ekið henni. 14.7.2004 00:01
Stórfelldir gallar á upplýsingum Stórfelldir gallar voru á upplýsingum bresku leyniþjónustunnar um gereyðingavopaneign Íraka og stjórnvöld tóku upplýsingar alvarlegar en tilefni var til. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Butlers lávarðar sem byrjað var að kynna fyrir hálftíma síðan. Butler hóf að kynna skýrslu sína klukkan hálf tólf í dag, um hvort innrás Breta í Írak hafi verið byggð á vafasömum upplýsingum. 14.7.2004 00:01
Stolinn bíll finnst á hvolfi Stolinn bíll fannst á hvolfi á Skálarvegi í Siglufirði í gærmorgun. Ekkert er vitað um ökumanninn. Bíllinn hafði verið skilinn eftir, með lyklunum í, á verkstæði neðar í bænum. Á þeim stað sem bíllinn valt er nýr vegur sem var lagður vegna snjóflóðavarna á Siglufirði. Svo virðist sem bílþjófurinn hafi farið út af nýja veginum og niður á þann gamla og oltið þar. 14.7.2004 00:01
Tala látinna hækkar enn Tala látinna vegna flóðanna í Suður Asíu hækkar enn. Þrjú hundruð hafa þegar látist og er búist við að ástandið versni enn frekar á næstu dögum. Brynja Þorgeirsdóttir. Þetta eru mestu rigningar og flóð á svæðinu í áratug. 14.7.2004 00:01
Látlausir skjálftar Látlausir jarðskjálftar hafa verið í Fagradalsfjalli, milli Grindavíkur og Krýsuvíkur, síðan á sunnudag. Veðurstofan segir að hrinan geti annað hvort fjarað út eða færst í aukana og skjálftarnir orðið stærri. 14.7.2004 00:01
Hafði þrjá tíma til að fela byrði Maðurinn sem grunaður er um að vera valdur að hvarfi indónesískrar barnsmóður sinnar, er talinn hafa haft þrjár klukkustundir til þess að koma byrðinni fyrir, eftir að til hans sást bera eitthvað þungt út úr íbúð sinni, á sunnudagsmorgun. 14.7.2004 00:01
Breytir engu um afstöðu Flestir hagsmunaaðilar sem koma fyrir allsherjarnefnd Alþingis í dag telja nýtt fjölmiðlafrumvarp engu breyta um afstöðu þeirra til laganna. Blaðamannafélag Íslands gagnrýnir yfirlýst áform ríkisstjórnarinnar um að hægt verði að kjósa um ný fjölmiðlalög í þingkosningum eftir 3 ár. 14.7.2004 00:01
Fjölmargir lýstu andstöðu sinni Enginn úr ráðherrasveit eða landstjórn Framsóknarflokksins kom á fjölmennnan fund Framsóknarfélagsins í Reykjavíkurkjördæmi suður, þar sem fjölmiðlafrumvarpið nýja var til umræðu. Fjölmargir félagsmenn lýstu yfir andstöðu við aðgerðir stjórnarflokkanna í málinu og sögðu forystusveit Framsóknarflokksins ekki samstíga almennum flokksmönnum. 14.7.2004 00:01
Ungir Framsóknar menn klofnir Ungir framsóknarmenn eru klofnir í afstöðu sinni til fjölmiðlafrumvarpsins. Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður styður forystu Framsóknarflokksins í málinu, en Samband ungra framsóknarmanna, á landsvísu, gerir það ekki. 14.7.2004 00:01
Börnum fækkar á Nesinu Sterkar vísbendingar eru um að börnum í leik- og grunnskólum Seltjarnarnesbæjar fari verulega fækkandi á næstu árum. Miðað við tölur frá Hagstofu Íslands sést að undanfarin 15 ár hefur fæðingum á Nesinu fækkað umtalsvert. 14.7.2004 00:01
Vestnorræn handverkssýning Vestnorrænu löndin, Ísland, Færeyjar og Grænland, standa í annað sinn fyrir fjölþjóðlegri handverkssýningu í Laugardalshöll. Sýningin verður haldin dagana 15. - 19. september. Handverkssýningin "Vestnorden Arts and Crafts" er liður í vestnorrænu samstarfi og var fyrst haldin árið 2002. 14.7.2004 00:01
Helmingur vinnur hjá hinu opinbera Nær helmingur vinnuafls á Grænlandi er í starfi hjá hinu opinbera. Þetta kemur fram í Hagtölum Grænlands sem grænlenska útvarpið (KNR) greindi frá. Samkvæmt tölunum, sem eru frá árinu 2002, starfa um 47,5 prósent Grænlendinga við opinbera stjórnsýslu og þjónustu. 14.7.2004 00:01
Einokun á áfengi ekki réttmæt Framkvæmdastjórn ESB hefur komist að þeirri niðurstöðu að einokun ríkisins í Svíþjóð á áfengissölu stríði gegn viðskiptafrelsi innan ESB. Framkvæmdastjórn ESB telur að ekki megi koma í veg fyrir að Svíar geti keypt vörur frá öðru ESB ríki. 14.7.2004 00:01
Ekki lengur velkominn í Palestínu Æðsti sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna, í Miðausturlöndum, er ekki lengur velkominn á sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna, eftir að hann gagnrýndi Yasser Arafat harkalega. Terje Roed-Larsen, sagði á mánaðarlegum upplýsingafundi sínum, í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að Yasser Arafat hefði dregið lappirnar í tilraunum Egypta til þess að endurbæta öryggissveitir Palestínumanna, til samræmis við kröfur alþjóðasamfélagsins. 14.7.2004 00:01
Frakkar kjósa um nýja stjórnarskrá Frakkar munu kjósa um nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins að því er Jacques Chirac, forseti landsins, lýsti yfir í gær. 14.7.2004 00:01
Ellefu létust í Bagdad Ellefu létust og tugir særðust í öflugri sprengingu í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, í gær. 14.7.2004 00:01
Varar við notkun netvafra Bandaríska heimavarnaráðuneytið mælir ekki með því að fólk noti netvafrann Internet Explorer, frá Microsoft. Ástæðan er gloppur í varnarkerfi Microsoft, sem gerir tölvuþrjótum kleift að yfirtaka algerlega tölvuna. 14.7.2004 00:01
Skipar nefnd um Evrópumál Forsætisráðherra hefur skipað nefnd um Evrópumál. Helstu hlutverk hennar eru meðal annars að kanna framkvæmd EES-samningsins, hvort og þá hverskonar undanþágur séu veittar í aðildarsamningum að Evrópusambandinu, hvað aðild myndi kosta ríkisstjóð, til lengri og skemmri tíma, og hverjir séu kostir og gallar evrunnar fyrir Ísland. 14.7.2004 00:01
Harmar ásakanir Barnarverndarstofa harmar þær ásakanir sem rekstraraðilar meðferðarheimilisins að Torfastöðum hafa sett fram í fjölmiðlum undanfarið um ómálefnalega og óeðlilega meðferð mála er snerta heimilið. Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu Barnaverndarstofu. 14.7.2004 00:01
Hýrum ekki bannað að giftast Öldungadeild Bandaríkjaþings hafnaði í dag tillögu um að breyta stjórnarskrá landsins þannig að samkynhneigðu fólki verði bannað að ganga í hjónaband. George Bush, forseti, studdi stjórnarskrárbreytinguna, en hún er nú líklega úr sögunni, á þessu kjörtímabili, að minnsta kosti. 14.7.2004 00:01
Vilja banna hýr hjónabönd Repúblikanar lofa því að ekki einu sinni bakslag í þinginu geti komið í veg fyrir að bann við giftingum samkynhneigðra verði leitt í lög. 14.7.2004 00:01
Norðmenn telja sig í fullum rétti Réttur Norðmanna til að setja reglur um fiskveiðar kringum Svalbarða er skýr og í fullu samræmi við alþjóðleg lög og reglur. Þetta er svar norska utanríkisráðuneytisins við fyrirspurnum Fréttablaðsins vegna deilu þeirrar er uppi er milli Noregs og Íslands um rétt til fiskveiða innan lögsögu Svalbarða. 14.7.2004 00:01
Fjármögnuð með skattlagningu Samtök iðnaðarins mótmæla harðlega hugmyndum um nýja skattlagningu til að fjármagna rekstur Lýðheilsustöðvar á vefsetri sínu, www.si.is. Á vefsíðu samtakanna kemur fram að þau hafi lýst yfir vilja til þess að eiga gott samstarf við Lýðheilsustöð um að stuðla að forvörnum og bættu heilsufari landsmanna. 14.7.2004 00:01
DNA ákvarðar stefnu rannsóknar Tæknideild lögreglu var enn að störfum í gær í íbúð mannsins sem er í gæsluvarðhaldi vegna hvarfs 33 ára indónesískrar konu í Reykjavík. Niðurstaðna erfðaefnisgreiningar blóðs sem fannst í íbúð og bíl mannsins er ekki að vænta fyrr en í vikulokin eða í byrjun næstu viku. 14.7.2004 00:01
Jarðskjálftahrina enn í gangi Jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga, sem hófst síðastliðinn sunnudagseftirmiðdag er enn í gangi. Upptök skjálftanna mælast norðan við Ísólfsskála á svæði sem nær frá Festarfjalli í suðri og norður í Fagradalsfjall og er um 8-10 km austnorðaustan af Grindavík. 14.7.2004 00:01
Réðist á konu á heimili hennar Maður á fimmtugsaldri var sakfelldur fyrir líkamsárás á konu á svipuðum aldri á heimili hennar sl. sumar og dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár. 14.7.2004 00:01
Raðmorðingi játar aðra glæpi Franski raðmorðinginn Michel Fourniret segist hafa rænt og nauðgað ungri konu í norður Frakklandi árið 1998 til viðbótar við þær níu konur sem hann viðurkennir að hafa ráðið bana. </font /> 14.7.2004 00:01
Síbrotabræður í haldi lögreglu Ungir bræður, 15 og 16 ára, voru handteknir í gærmorgun eftir að hafa brotist inn í íbúðarhús í Austurbæ Reykjavíkur. Bræðurnir, sem búsettir eru í Vesturbæ Reykjavíkur, hafa komið við sögu í fjölda innbrota, að sögn lögreglunnar í Reykjavík og verið marghandteknir fyrir. 14.7.2004 00:01
Fékk yfir sig sperrur úr stæðu Alefli ehf þarf að greiða manni tæplega 1,3 milljónir króna vegna vinnuslyss sem hann lenti í árið 1999. Maðurinn slasaðist þegar ysta röð úr timburstafla féll á bak hans og herðar þar sem hann vann við að færa sperrur á vinnusvæði Aleflis. 14.7.2004 00:01
Blair réðst inn í góðri trú Gögn bresku leyniþjónustunnar sem bentu til þess að Írakar byggju yfir efnavopnum fyrir innrásina í landið voru mjög gölluð og byggðu á óáreiðanlegum heimildum. Tony Blair forsætisráðherra er hins vegar ekki sekur um að hafa viljandi brenglað fyrirliggjandi gögn eða um vítaverða vanrækslu. 14.7.2004 00:01
Nefnd um Evrópumál skipuð Forsætisráðherra hefur skipað nefnd um Evrópumál, en hlutverk hennar er meðal annars að kanna framkvæmd EES-samningsins, hvort og þá hvers konar undanþágur séu veittar í aðildarsamningnum að Evrópusambandinu og hvað aðild myndi kosta ríkissjóð til lengri og skemmri tíma litið 14.7.2004 00:01
Panta konur til að níðast á þeim Á Norðurlöndum hafa komið upp vandamál þar sem karlar „flytja inn“ konur frá öðrum löndum gagngert til að beita þær ofbeldi. Þannig er þekkt að fjöldi kvenna þurfi að leita sér hjálpar vegna eins og sama ofbeldismannsins. Samkvæmt lögum hér hætta erlendar konur á að vera sendar úr landi fari þær frá ofbeldisfullum mönnum sínum. 14.7.2004 00:01
Fagna ummælum ráðherra Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, og Jarþrúður Ásmundsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, fagna bæði ummælum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um að ekki beri að innheimta skólagjöld í grunnnámi á háskólastigi. 14.7.2004 00:01
Ánægður með viðsnúning Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í menntamálanefnd Alþingis, er ánægður með að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafi lýst afráttarlausri skoðun á upptöku skólagjalda í Háskóla Íslands en hún varar við upptöku skólagjalda í grunnnámi á háskólastigi. 14.7.2004 00:01
Myrtu héraðsstjóra Mósúl Írakskir skæruliðar myrtu í dag héraðsstjóra Mósúl, þar sem hann var á leið sinni til Bagdad. Á sama tíma sprakk öflug bílsprengja í Bagdad, með þeim afleiðingum að ellefu létust og tugir særðust. Talið er að þetta hafi verið sjálfsmorðsárás og er hún sú mannskæðasta síðan Írakar tóku við stjórnartaumunum í landinu í lok júní. Hershöfðingjar tengja árásina við handtöku meira en 500 grunaðra hryðjuverkamanna fyrr í vikunni. 14.7.2004 00:01
Uppbygging á Reyðarfirði Trésmiður frá Akureyri gleðst yfir uppbyggingunni á Reyðarfirði vegna álvers. Hann tryggði sér byggingalóðir á svæðinu átta mánuðum áður en skrifað var undir samninga við Alcoa. 14.7.2004 00:01
Leitað að lífi á Mars Lofttegundir sem fundist hafa á plánetunni Mars benda til að þar gæti fundist líf. Sérfræðingur frá NASA geimferðarstofnuninni segir að niðurstöður rannsókna sem fari þar fram, eigi ekki eftir að valda fólki vonbrigðum. 14.7.2004 00:01
Uppsagnir hjá Eimskip Fækkað var um 40 til 50 stöðugildi hjá Eimskipafélagi Íslands í dag vegna skipulagsbreytinga. Trúnaðarmaður starfsmanna segir að þeim sé brugðið en er feginn að óvissu vegna boðaðra breytinga hafi verið eytt. 14.7.2004 00:01
Engin skólagjöld í grunnnámi Menntamálaráðherra telur ekki rétt að taka skólagjöld af nemum í grunnnámi við Háskóla Íslands. Öðru máli gegni hins vegar um gjöld fyrir framhaldsnám. Rektor Háskólans fagnar ummælum ráðherra, en segir að Háskólinn þurfi eftir sem áður meira fé frá hinu opinbera. 14.7.2004 00:01
Blair sleppur með skrekkinn Leiðtogi breska íhaldsflokksins segir Blair rúinn trausti og kröfum um afsögn hans er haldið á lofti. Stjórnmálaskýrendur telja þó að Blair sleppi með skrekkinn.Meðan Butler lávarður las niðurstöður sínar fóru fram hávær mótmæli fyrir utan gegn innrásinni í Írak og því sem mótmælendur kölluðu "hvítþvott" Butlers á ríkisstjórninni. 14.7.2004 00:01
Fer óbreytt úr allsherjarnefnd Fjölmiðlafrumvarpið verður væntanlega afgreitt óbreytt úr allsherjarnefnd, segir Bjarni Benediktsson, formaður nefndarinnar. Stjórnarandstaðan segir að umfjöllun um málið sé lokið í nefndinni og vill leggja fram álit í kvöld, en meirihluti nefndarinnar hefur boðað Samkeppnisstofnun á fund í fyrramálið. 14.7.2004 00:01
Framsókn fer fram á viðræður Forysta Framsóknarflokksins ætlar að fara fram á viðræður við forystu Sjálfstæðisflokksins um að fjölmiðlafrumvarpið verði dregið til baka. Líklegast er að óskað verði eftir að nýtt frumvarp verði lagt fram sem felli fjölmiðlalögin úr gildi, en að öðrum kosti verði þjóðaratkvæðagreiðsla. 14.7.2004 00:01
Kærir Davíð fyrir stríðsglæpi Elías Davíðsson tónskáld hefur lagt fram kæru á hendur Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni fyrir stríðsglæpi. 14.7.2004 00:01
Útiloka ekki breytingar Flokksmenn sjálfstæðisflokks í allsherjarnefnd útiloka ekki að breytingar verði gerðar á nýju fjölmiðlafrumvarpi. Þeir hafa óskað eftir áliti Samkeppnisstofnunnar um ný fjölmiðlalög og verður hún eini gestur nefndarinnar í dag. 14.7.2004 00:01
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent