Fleiri fréttir

Heimkvaðning sem fyrst

Algjör óvissa ríkir nú um hvort filippseyskir friðargæsluliðar í Írak verða kallaðir heim snemma í von um að gísl sem mannræningjar hafa hótað að afhöfða verði þyrmt. Filippseysk stjórnvöld hafa neitað heimkvaðningu en í gær sendi utanríkisráðherra landsins frá sér yfirlýsingu þess efnis að heimkvaðningin kæmi svo skjótt sem auðið væri.

Allsherjarnefnd fundar kl. 9:30

Allsherjarnefnd Alþingis kemur saman klukkan hálf tíu í dag og heldur áfram umfjöllun um fjölmiðlafrumvarpið.

Kerry með naumt forskot

John Kerry hefur naumt forskot á George Bush í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum, ef marka má skoðanakönnun Gallups fyrir CNN-sjónvarpsstöðina.

25 lögreglumenn slösuðust

Tuttugu og fimm lögreglumenn slösuðust þegar til átaka kom í einu af hverfum Belfast á Norður-Írlandi í gær þegar mótmælendum og kaþólikkum lenti saman.

100.000 embættismenn reknir

Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti í gær stórfelldan niðurskurð í embættismannakerfinu til að fjármagna félagsþjónustu og þjóðaröryggismál.

15 milljónir barna munaðarlaus

Fimmtán milljónir barna hafa misst foreldra sína vegna alnæmis. Langflest þeirra búa í Afríku en þar hafa tólf milljónir barna misst foreldra vegna þessa vágests.

Réttarhöldum frestað

Réttarhöldum yfir Mikhaíl Khodorkovsky, aðaleiganda rússneska olíurisans Yukos, var í morgun frestað og hefjast þau að nýju síðdegis á morgun. Verjandi hans fór fram á að Khodorkovsky yrði látinn laus gegn tryggingu af heilsufarsástæðum en dómarar synjuðu því.

Evrópudómstólinn ógildir ákvörðun

Evrópudómstóllinn hefur ógilt ákvörðun fjármálaráðherra Evrópusambandsins sem frestuðu aðgerðum gegn Þjóðverjum og Frökkum vegna fjárlagahalla en hann var talinn ógna stöðguleika ESB.

VG á Akureyri lýsir vanþóknun

Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Akureyri og nágrenni hélt félagsfund á Akureyri í gær þar sem m.a. voru til umræðu fjölmiðlalögin svokölluðu og framganga ríkisstjórnarflokkanna í því máli.

Morgunblaðið fækkar fréttariturum

Morgunblaðið hefur fækkað fréttariturum sínum á landsbyggðinni og er ekki lengur landsbyggðarblað að mati fyrrverandi fréttaritara þess í Litlu-Ávík á Ströndum. Í síðustu viku sendi Morgunblaðið hluta fréttaritara sinna á landsbyggðinni bréf þar sem tilkynnt er að blaðið telji ekki þörf á þjónustu þeirra í framtíðinni.

18 látnir í Tsjetsjeníu

Að minnsta kosti átján létust í bardögum öryggissveita Tsjetsjeníu, sem hliðhollar eru yfirvöldum í Moskvu, og tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna suðaustur af Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, í nótt.

Gleypti 300 g af kókaíni

Nígeríska konan sem reyndi að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins í síðustu viku gleypti tuttugu og sjö pakka með efninu. Um sjötíu prósent af efninu voru innvortis, eða rúmlega 300 grömm, sem er það mesta sem þekkist hér á landi.

Mestu flóð í áratug

Meira en tíu milljónir manna í Suður-Asíu hafa orðið fyrir barðinu á mestu rigningum og flóðum í álfunni í áratug. Hundruð hafa látist.

Hendur forseta bundnar

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir þjóðréttarfræðingur telur að hendur forseta Íslands séu bundnar í fjölmiðlamálinu; hann geti hvorki samþykkt ný lög né synjað þeim. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir aðferð ríkisstjórnarinnar valdníðslu.

Verða að fara fyrir þjóðina

Dögg Pálsdóttir hæstaréttalögmaður segir að Alþingi geti hvorki fellt fjölmiðlalögin úr gildi né sett ný. Lögin verði að fara fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Fólksfjölgun mest á Austurlandi

Fólksfjölgun var mest á Austurlandi á öðrum ársfjórðungi ársins. Í nýjum tölum Hagstofunnar um búferlaflutinga kemur fram að fólki fjölgaði um 512 einstaklinga á Austurlandi og voru það einkum flutningar frá útlöndum.

Filippseyingar láti ekki undan

Stjórnvöld í Bagdad hvetja Filippseyinga til að láta ekki undan hótunum mannræningja í Írak sem segjast nú vera að undirbúa aftöku filippseysks gísls, ef filippseyskir hermenn verði ekki kallaðir heim.

Fullorðnir glápa meira en börn

Dönsk börn horfa talsvert minna á sjónvarp en fullorðnir samkvæmt nýrri rannsókn. Niðurstöðurnar ganga þannig gegn hinni bjargföstu almennu trú að ungt fólk horfi sífellt meira á sjónvarp.

Þrír strætisvagnar í árekstri

Þrír strætisvagnar rákust saman á hringtorgi við Fjarðargötu og Reykjavíkurveg í Hafnarfirði í hádeginu. Vagnarnir þrír voru í röð og sá aftasti keyrði á vagninn í miðjunni sem rakst við það á þann fremsta.

Rannsókn á rafmagnsleysinu

Saksóknari á Grikklandi hefur hafið rannsókn á allsherjar rafmagnsleysi sem varð í höfuðborginni Aþenu í gær og á stóru svæði í suðurhluta landsins. Rafmagn fór af í nokkra klukkutíma sem gerði m.a. að verkum að hundruð manna festust í lyftum og lestarsamgöngur stöðvuðust.

Sala hótelherbergja eykst

Sala hótelherbergja í Reykjavík hefur aukist um tíu prósent samkvæmt tekjukönnun Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin segja þetta góða þróun eftir að tuttugu prósenta aukning varð á framboði í fyrra.

Trölli stolið

Breska lögreglan leitar nú manna sem stálu 1,5 metra hárri útgáfu af græna tröllinu Shrek úr samnefndri teiknimynd.

Vegabréf fyrir hunda og ketti

Frá og með 1. október þurfa hundar og kettir sem fara á með yfir Eyrarsund að hafa svokölluð dýravegabréf. Dýralæknar hafa gefið út þessi vegabréf frá 3. júlí sl.

Unnið að endurskipulagningu

Kortagerðarmenn Ísraelshers vinna að því að endurteikna öryggismúrinn sem er í byggingu á vesturbakka Jórdanar.

23 mafíósar handteknir

Lögreglan á Sikiley hefur handtekið 23 manneskjur sem grunaðar eru um „mafíuglæpi“ eins og það er orðað í erlendum fréttamiðlum.

Smáskjálftahrina í Fagradalsfjalli

Smáskjálftahrina hefur staðið yfir í Fagradalsfjalli við Grindavík frá því á sunnudag. Hjá skjálftavakt Veðurstofunnar fengust þær upplýsingar að flestir skjálftanna hafi verið í kringum eitt stig á Richter en þeir stærstu í kringum tvo á Richter.

Skeljungur hækkaði líka

Skeljungur hækkaði í morgun sjálfsafgreiðsluverð á bensíni um tvær krónur lítrann líkt og Olís gerði síðdegis í gær og Esso í gærmorgun.

69% nota ekki hjálm

Sextíu og níu prósent barna og unglinga á höfuðborgarsvæðin nota ekki öryggishjálm þegar þau nota reiðhjól, línuskauta eða hlaupahjól samkvæmt nýrri könnun umferðarfulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áberandi er að fáir sem engir unglingar nota hjálma.

Heimilt að fella lögin úr gildi

Jón Sveinsson lögfræðingur telur að Alþingi sé heimilt að fella lög úr gildi og setja ný eins og ríkisstjórnin hyggst gera í fjölmiðlamálinu. Jón og Kristinn Hallgrímsson lögfræðingur voru rétt í þessu að ganga út af fundi allsherjarnefndar.

Sex manna fjölskylda fundin

Sex manna fjölskylda frá Suður-Wales er komin í leitirnar eftir að hafa verið saknað frá heimili sínu í Cardiff í tvær vikur. Sky fréttastofan greinir frá því að fjölskyldufaðirinn, sem er 57 ára, hafi gengið inná lögreglustöð í suðurhluta Englands eftir að hafa séð auglýst eftir fjölskyldu sinni í dagblaði.

Óæskileg áhrif Berlusconis hindruð

Ítalska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp sem er ætlað að girða fyrir óæskileg áhrif forsætisráðherrans, Silvio Berlusconis, sem á einnig um helming í fjölmiðlum landsins.

Ekki skólagjöld í grunnnám

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra er á þeirri skoðun að samfélagið eigi að mestu eða öllu leyti að standa straum af kostnaði nemenda við grunnnám í háskólum.

Taki Breta til fyrirmyndar

Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands, vill að íslenska ríkisstjórnin fari að dæmi Breta, sem hyggjast segja upp meira en hundrað þúsund ríkisstarfsmönnum í hagræðingarskyni.

50% aukning í slátrun eldisþorska

Stefnt er að því að slátra hátt í 100 tonnum af þorski hjá þorskeldi Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í haust. Það er rúmlega helmingi meira en í fyrra.

Óttast rafmagnsleysi

Óttast er að rafmagnsleysi geti valdið usla á ólympíuleikunum í Aþenu í næsta mánuði verði áfram eins heitt í veðri og verið hefur.

DNA-niðurstöður í vikulok

Líklegt er að niðurstaða úr rannsókn á lífssýnum (DNA) sem send voru til Noregs, vegna rannsóknar á hvarfi konu sunnudaginn 4. júlí sl. og hefur verið í fréttum undanfarið, berist í lok þessarar viku. Jafnvel hafði verið vonast eftir að niðurstöðurnar bærust í dag en svo verður ekki.

Málum blandið mannshvarf

Konan sem leitað hefur verið að frá því á mánudaginn fyrir rúmri viku er enn ófundin. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn, segir engar nýjar fregnir að hafa af rannsókn lögreglunnar á málinu. Hann segir að enn gefi menn sér ekkert um hvort konan sé lífs eða liðin.

Klipping hækkað um 10%

Klipping og önnur þjónusta hárgreiðslustofa á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað að meðaltali um tíu prósent frá því í nóvember árið 2002 samkvæmt nýrri könnun Samkeppnisstofnunar. Á vef stofnunarinnar kemur fram að þessi verðbreyting fylgi nokkurn veginn sömu þróun og launavísitalan.

NATO kannar aðkomu að Írak

Jaap De Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, ætlar að kynna leiðtogum aðildarríkjanna nýjar tillögur í mánuðinum, um hvernig bandalagið geti komið frekar að málum í Írak. Í síðasta mánuði samþykktu aðildarríki NATO að taka að sér herþjálfun Íraka. Scheffer vonast til að geta kynnt tillögur sínar í ágústbyrjun.

Réðust á mann og hótuðu lögreglu

23 ára gamall Akureyringur hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og brot gegn valdstjórninni með hótunum um ofbeldi og líflát. Einnig hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm 21 árs gamall Akureyringur fyrir þátttöku í árásinni.

Þrír strætisvagnar í árekstri

Þrír voru fluttir á spítala með minniháttar áverka þegar þrír strætisvagnar rákust saman við hringtorg í miðbæ Hafnarfjarðar um hádegisbil í gær.

Fáir nota Hjálm

Samkvæmt könnun umferðarfulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu eru 69 prósent barna án öryggishjálma þegar þau nota reiðhjól, línuskauta eða hlaupahjól. Sérstaklega virðist áberandi að nánast engir unglingar nota hjálma og hjálmaleysið færist sífellt neðar í aldursstiganum. </font />

Þrjú börn og níu karlmenn

Alls hafa hérlendis horfið 11 einstaklingar frá árinu 1991 til ársloka 2003, aðrir en þeir sem farist hafa við störf á sjó, samkvæmt gagnaskrá ríkislögreglustjóra um mannshvörf. Skráin byggir á upplýsingum frá lögreglustjóraembættunum, en þeim ber að tilkynna ríkislögreglustjóra um horfna menn innan þriggja mánaða frá því að hvarf er tilkynnt.

Amnesty gagnrýnir Grikki

Mannréttindasamtölin Amnesty International gagnrýnir öryggisgæslu grískra stjórnvalda fyrir ólympíuleikana í ágúst. Samtökin segja að hætta sé á að viðbúnaðurinn skerði félagsleg réttindi ýmissa minnihlutahópa á borð við sígauna, sem séu berskjaldaðir fyrir aðgerðum stjórnvalda.

Sjá næstu 50 fréttir