Erlent

Stórfelldir gallar á upplýsingum

Stórfelldir gallar voru á upplýsingum bresku leyniþjónustunnar um gereyðingavopaneign Íraka og stjórnvöld tóku upplýsingar alvarlegar en tilefni var til. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Butlers lávarðar sem byrjað var að kynna fyrir hálftíma síðan. Butler hóf að kynna skýrslu sína klukkan hálf tólf í dag, um hvort innrás Breta í Írak hafi verið byggð á vafasömum upplýsingum. Skýrslan hefur tekið tæplega hálft ár í vinnslu, þar var rannsakað hvernig breska leyniþjónustan safnaði saman og vann upplýsingar um gereyðingavopnaeign Íraka, og svo hvernig þessar upplýsingar voru notaðar af stjórnvöldum til að réttlæta innrásina í Írak. Meðal þess sem kom til skoðunar var sú staðhæfing breskra stjórnvalda að Írakar gætu beitt gjöreyðingarvopnum með 45 mínútna fyrirvara. Þetta segir Butler vera mjög langt seilst, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar, og stjórnvöld hefðu ekki átt að halda þessu fram. Alvarlegir gallar hafi verið í upplýsingum frá leyniþjónustunni, og lýsir hann furðu sinni á því að upplýsingarnar hafi ekki verið yfirfarnar aftur og endurmetnar. Það alvarlega í málinu, sagði Butler, sé að stjórnvöldum hafi ekki verið gerð grein fyrir ákveðnum fyrirvörum við þessar upplýsingar, og þess vegna hafi stjórnvöld talið þær mikilvægari en efni stóðu til. Í skýrslunni eru lagðar til leiðir til að koma í veg fyrir þetta í framtíðinni. Þá fundust engin tengsl milli Saddams Husseins og Al Qaeda. Hinsvegar segir Butler að Blair sé ekki um að kenna né nokkrum öðrum, og enginn ætti að segja af sér - það séu engar sannanir fyrir því að stjórnin, eða nokkur annar, hafi "ætlað sér" að ýkja eða afbaka þær upplýsingar sem lágu fyrir til að nota sem réttlætingu fyrir innrásinni. Skýrsla Butlers mun án alls vafa koma sér mjög illa fyrir Blair sem mun ávarpa þingið klukkan hálf eitt. Hann sagðist í gær enn sannfærður um réttmæti innrásarinnar í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×