Lífið

Bieber hjónin fögnuðu fjögurra ára brúðkaupsafmæli

Elísabet Hanna skrifar
Hjónin sendu fallegar kveðjur á samfélagsmiðlum.
Hjónin sendu fallegar kveðjur á samfélagsmiðlum. Getty/Gotham

Hjónin Justin og Hailey Bieber fögnuðu fjögurra ára brúðkaupsafmæli með því að senda fallegar kveðjur á samfélagsmiðlum. Þau giftu sig í laumi árið 2018, tveimur mánuðum eftir að þau trúlofuðu sig, en héldu veislu ári síðar þar sem þau fögnuðu með vinum og fjölskyldu. 

„Til hamingju með brúðkaupsafmælið besta vinkona mín og eiginkona, takk fyrir að gera mig betri á allan hátt,“ sagði Justin í fallegri kveðju sem hann birti ásamt parinu uppi í rúmi að kúra með hundinum sínum. Hann hefur áður birt myndina en þá í lit.

Í kveðju sinni til eiginmannsins sagði Hailey: „4 ár gift þér. Fallegasta manneskja sem ég hef kynnst, ástin í lífi mínu. Guði sé lof fyrir þig.“ Ásamt kveðjunni birti hún nokkrar myndir af þeim í gegnum tíðina, meðal annars úr brúðkaupsveislunni sem haldin var árið 2019.

Heilsubrestir

Hjónin hafa farið í gegnum þó nokkra heilsubresti undanfarið en fyrr á þessu ári fékk Hailey blóðtappa í heilann og var lögð inn á sjúkrahús. Aðeins nokkrum mánuðum síðar greindist Justin með Ramsay Hunt heilkenni sem er taugasjúkdómur. Eftir að hafa fengið sjúkdóminn lamaðist Bieber í andliti öðru megin tímabundið.

Söngvarinn hefur meðal annars þurft að aflýsa fjölda tónleika til þess að huga að heilsunni. „Eftir að hafa stigið af sviðinu tók ofsaþreytan yfir mig. Ég gerði mér grein fyrir því að ég þyrfti að setja heilsuna í fyrsta sæti. Þess vegna ætla ég að taka mér leyfi frá tónleikaferðalaginu að svo stöddu,“ sagði hann í tilkynningu.


Tengdar fréttir

Bieber af­lýsir fjölda tón­leika vegna heilsu­brests

Tónlistarmaðurinn Justin Bieber tilkynnti í kvöld að hann hefði ákveðið að taka sé hlé frá tónleikahaldi um óákveðinn tíma vegna heilsubrests. Í júní síðastliðnum neyddist hann til að fresta fjölda tónleika vegna taugasjúkdóms sem hann greindist með.

Justin Bieber óttast um eiginkonu sína Hailey

Hailey Bieber var lögð inn á spítala í síðustu viku vegna blóðtappa í heilanum og hefur eiginmaður hennar Justin Bieber varla getað sofið úr áhyggjum síðan. Henni heilsast vel í dag og vonandi er um einangrað atvik að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×