„Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 28. október 2026 12:02 Andri Lucas fagnar hér marki gegn Wrexham um síðustu helgi. vísir/getty Það snýst allt um Gudjohnsen í Blackburn þessa dagana enda hefur Andri Lucas Guðjohnsen farið á kostum með liðinu síðustu vikur og raðað inn mörkum.
Hann er búinn að skora fimm mörk í síðustu fjórum leikjum sínum fyrir félagið og hefur skorað tvennu í síðustu tveimur leikjum liðsins. Hann er nú orðinn næstmarkahæsti leikmaður Championship-deildarinnar. Blackburn bauð stuðningsmönnum upp á að kaupa treyju Andra hjá félaginu og þá fengi það fría merkingu á treyjuna. „Það er greinilega eitthvað gott í gangi. Það er búið að ganga mjög vel og ég er mjög ánægður með þetta allt saman. Ekki bara hjá Blackburn heldur líka með landsliðinu. Skoraði tvö mörk og leggja upp í síðasta verkefni. Það er allt mjög jákvætt þessa dagana,“ sagði Andri Lucas í samtali við íþróttadeild. „Það er ákveðin stemning í gangi núna og það er hluti af þessu. Markaskorarar eru alltaf vinsælir. Svo höfum við spilað vel og erum ekki langt frá „playoff“ sæti í augnablikinu. Það er jákvæð orka í kringum félagið og það vill eðlilega nýta sér það með markaðsmálum eins og að prenta nafnið mitt frítt.“ Tony Mowbray tók við félaginu og með þessum 62 ára gamla reynslubolta hafa komið jákvæðir straumar. Hann hefur áður þjálfað Blackburn á árunum 2017 til 2022 en hefur einnig stýrt WBA, Birmingham, Sunderland og fleiri félögum. „Sjálfstraustið er mjög gott hjá mér þessa dagana. Mér líður vel utan vallar og það er hugsað vel um mig. Orkan er góð og svo kom Mowbray inn. Hann hefur fulla trú á verkefninu og mér. Það er mjög góð stemning og tilfinningin er að ég sé að fá 2-3 færi í leik og meðan ég skora úr þeim færum mun halda áfram að ganga vel,“ segir framherjinn og hrósar Mowbray. Mowbray er mjög góður maður „Þetta er mjög góður maður og þjálfari. Hann vill öllum það besta. Hann hefur verið lengi í bransanum og þekkir þetta allt vel. Hann passar vel inn í liðið og það var jákvætt er hann tók við.“ Mowbray er léttur á því og sagði eftir síðasta leik að Andri yrði að passa sig að skora ekki svona mikið. Þá gæti hann endað í Barcelona eins og pabbi sinn. „Hann var eitthvað að grínast með það. Þetta er toppmaður. Kannski tekur maður ekki skrefið beint til Barcelona frá Blackburn en vonandi gengur áfram vel og ég held áfram að skora.“
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Sjá meira