Fótbolti

Sendi kveðju til Kompany á sjúkra­húsið

Valur Páll Eiríksson skrifar
Kane skilaði kveðju á Kompany sem veiktist fyrir helgi.
Kane skilaði kveðju á Kompany sem veiktist fyrir helgi. Samsett/EPA

Harry Kane þakkaði fjölmörgum fyrir í þakkarræðu sinni eftir að hann varð aðeins fimmti Englendingurinn í sögunni til að hljóta Gullboltann við hátíðlega athöfn í gær. Þar á meðal var þjálfari hans hjá Bayern Munchen sem dvelur á spítala.

Kane þakkaði sérstaklega Tottenham Hotspur, félaginu þar sem hann byrjaði feril sinn og spilaði lengst af, auk fjölskyldu sinnar. Kane er fyrsti Englendingurinn til að hljóta verðlaunin frá árinu 2001 og aðeins sá fimmti frá Englandi sem hlýtur Gullboltann.

Áður nutu Sir Stanley Matthews, Sir Bobby Charlton, Kevin Keegan (tvisvar) og Michael Owen þess heiðurs.

Keegan vann sín tvö verðlaun þegar hann var leikmaður Hamburger SV í Þýskalandi og því hafa enskir hlotið þrenn af sex verðlaunum sínum meðan þeir spila þar í landi. Enda Harry Kane leikmaður Bayern Munchen þar sem þjálfari hans er Vincent Kompany.

Kompany hneig niður á æfingu liðsins á föstudaginn var og hafði glímt við veirusýkingu í aðdragandanum. Hann var fluttur beinustu leið á sjúkrahús og Kane sendi honum sérstaka kveðju eftir viðtöku verðlaunanna í gær.

„Til Vinnie. Ég veit að hann er heima, eða enn á sjúkrahúsinu. Ég óska ​​þér alls hins besta og vona að þetta hafi veitt þér smá orku. Frá því að ég hóf samstarf með þér hef ég þroskast sem leikmaður, sem manneskja og sem leiðtogi. Ég er ánægður með að geta farið með þennan bikar aftur til Bayern,“ sagði Kane meðal annars í ræðu sinni í Palladium-höllinni í Lundúnum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×