Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2026 18:40 Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille hafa byrjað skelfilega í Meistaradeildinni. EPA/MOHAMMED BADRA Útlitið er ekki bjart í Meistaradeildinni hjá íslenska landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum hans í franska liðinu Lille eftir 4-2 tap á móti Galatasaray á heimavelli í kvöld. Lille hefur tapað þremur fyrstu leikjum sínum í Meistaradeildinni og það með markatölunni 4-10 en aðeins Slovan Bratislava er með lakari árangur. Hákon kom þó að bestu stund franska liðsins í leiknum þegar hann lagði upp annað markið á 39. mínútu. Soriba Diaoune kom þá Lille í 2-1 með skoti úr teignum eftir að Hákon lagði boltann fyrir hann. Yunus Akgün hafði komið tyrkneska liðinu yfir í upphafi leiks en Diaoune jafnaði aðeins sex mínútum síðar. Lille hélt þó ekki út til hálfleiks. Aleksey Batrakov jafnaði metin fyrir Galatasaray rétt fyrir hálfleik og þeir Lucas Torreira og Victor Osimhen komu Tyrkjunum í 4-2 á fyrstu sextán mínútunum í seinni hálfleik. Lille hafði þá reynt að sækja til að fá eitthvað út úr leiknum en gestirnir refsuðu. Hákon spilaði allan leikinn, reyndi eitt skot, gaf eina stoðsendingu og skapaði tvö marktækifæri fyrir félagana. Hann komst 45 sinnum í boltann. Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Íslendingar erlendis