Upp­gjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma

Árni Jóhannsson skrifar
Fjólubláir Skagamenn fóru í burtu með öll þrjú stigin úr Úlfarsárdalnum í kvöld.
Fjólubláir Skagamenn fóru í burtu með öll þrjú stigin úr Úlfarsárdalnum í kvöld. Vísir/Anton

Skagamenn sóttu þrjú stig í Úlfarsárdalinn í kvöld eftir að hafa skorað tvö mörk í uppbótartíma og tryggt sér 4-2 sigur í Bestu deild karla í fótbolta.

Framarar komust yfir en voru manni færri frá tólftu mínútu. Fram náði að jafna metin manni færri en varamenn Skagamanna áttu lokaorðið og komu sínu liði upp fyrir Blika og upp í fjórða sætið.

Framarar hafa þar með leikið sex leiki í röð án sigurs og ekki unnið síðan í ágúst.

Fram byrjaði leikinn gegn Skagamönnum eins og best er á kosið því strax á fjórðu mínútu fékk Kristófer Konráðsson boltann inn fyrir vörn Skagamanna, kom sér á vinstri löppina og hamraði boltann í netið í nærhornið. Við þetta kættust stuðningsmenn Fram en þeir áttu eftir að verða reiðir áður en við var litið.

Á 12. mínútu var Freyr Sigurðsson kominn á fleygiferð þegar hann missti boltann of langt frá sér í miðjuhringnum. Hann renndi sér á boltann en var með sólann á lofti og fór í gegnum legginn á Guðmundi Þórarynssyni. Við þetta hófst mikið havarí enda virkaði þetta gróft en Arnar Þór dómar var sammála því og lyfti rauða spjaldinu þegar rykið hafði sest. 

Fram einum færri og nærrum því 80 mínútur eftir og andinn breyttist. 

Skagamenn höfðu verið búnir að vera meira með boltann áður en rauða spjaldið fór á loft og héldu því áfram. Þeirra leikur snerist um að senda boltann fyrir en að sjálfsögðu þéttu heimamenn sig og skölluðu svo allt frá sem að markinu kom. 

Manni leið eins og Fram gæti varist þessum fyrirgjöfum í allan dag en á 34. mínútu brast stíflan. Eftir enn eina fyrirgjöfina sem skölluð var frá mætti Baldvin Þór Berndsen á svæðið, ca. 2 metra fyrir utan D bogann, og hamraði boltann í samskeytin. Stórglæsilegt eldflaugamark sem jafnaði metin.

Skagamenn náðu ekki að láta kné fylgja kviði og duttu í sama farið. Hálfleikurinn leið án stórtíðinda og staðan jöfn í hálfleik.

Viktor Jónsson var settur inn á í seinni hálfleik en það var ekki líklegt að hann myndi spila vegna veikinda sem hann þurfti að glíma við í vikunni. Tilfinningin var að Skagamenn þyrftu á honum að halda.

Skagamenn voru talsvert meira með boltann en Fram hélt áfram að eiga vel við fyrirgjafir og sóknartilburði gestanna. Þangað til á 59. mínútu. Þá var tekin hornspyrna frá hægri og Viktor markmaður Fram fór aðeins of langt út úr markinu og missti boltann yfir sig. Þar beið Baldvin Þór eftir því að fá boltann á ennið og stýra honum yfir línuna. Skagamenn komnir yfir og líklega mjög létt.

Fram var þó fljótt að svara fyrir sig. Á 66. mínútu geystust þeir fram og sendu boltann fyrir markið. Kristófer Konráðsson var mættur í markteiginn, var einn og skallaði boltann í gagnstæða átt og gat Árni Marínó ekkert gert til þess að halda boltanum fyrir utan markið.

Fram tvíefldist við þetta mark og var líklegra til að skora frekar en að fá á sig annað mark. Skagamenn virtust ekki geta náði í sigurmarkið og virtist þetta stefna í jafntefli þegar í uppbótartíma var komið.

Þá reyndu Skagamenn enn eina fyrirgjöfina sem nú rataði alla leið á fjærstöngina þar sem varamaðurinn Rafael Máni Þrastarson lúrði, tók við boltanum og kom honum yfir línuna. Allt ætlaði um koll að keyra og var augljóst að þetta kætti ÍA ótrúlega mikið.

Fram tók miðju og ætlaði að reyna að jafna metin en þarna var komið á fjórðu mínútu uppbótartíma. Það gekk ekki betur en svo að Skagamenn unnu boltann, sprengdu upp völlinn og Ómar Björn Stefánsson renndi boltanum á Viktor Jónss. sem plataði nafna sinn í markinu upp úr skónum og renndi boltanum í autt markið. 

Það var punkturinn sem þurfti yfir i-ið og Arnar Þór flautaði leikinn af. Skagamenn lyfta sér upp fyrir Blika í fjórða sætið og eiga leik við Keflavík heima í lokaumferðinni til að tryggja sér það sæti.

Atvik leiksins

Lárus Orri, þjálfari ÍA, sagði að leikurinn væri pressulítill fyrir leik en þó að svo megi vel vera var nóg af atvikum. Mark Rafaels Mána hlýtur nafnbótina í dag en þessi efnilegi leikmaður var að skora sitt fyrsta mark.

Áðurnefndur Rafael er stjarna leiksins en Baldvin Þór Berndsen verður líka að fá tilnefningu hér. Fyrra mark hans var stórkostlegt og draumamark og að auki átti hann fínan leik í varnarleiknum.

Kristófer Konráðsson skoraði tvö mörk en kollegi hans Freyr Sigurðsson þarf að vera skúrkurinn í dag. Menn geta verið ósammála um túlkun reglna en hann bauð upp á þessa niðurstöðu með því að fleygja sér í tæklingu með sólann á lofti.

Umgjörð og stemmning

Ég þreytist ekki á að segja það að Framarar séu höfðingjar heim að sækja. Það var líka fínasta stemmning hjá þeim 525 sem mættu í stúkuna.

Dómarinn

Arnar Þór Stefánsson og hans menn höfðu í nógu að snúast. Ég hugsa að hann geti farið sáttur á koddann í kvöld en hann spjaldaði fullt af mönnum og rauða spjaldið er örugglega rétt ákvörðun samkvæmt lagabókstafnum. Hann spjaldaði sjö manns og hélt sinni línu vel.

Rúnar:

„Við vorum eiginlega nær því að ná í þrjú“, sagði Rúnar Kristinsson þjálfari Fram þegar hann var spurður að því hvort það væri ekki svekkjandi að fá ekkert stig þegar eitt stig virtist vera á leiðinni.

„En við fengum tvö í andlitið hérna í uppbótartíma þannig að jú það er svekkjandi. Sérstaklega þar sem við höfðum verið manni færri síðan á 12. mínútu og berjast svona vel eins og við gerðum. Við fengum svo á okkur draumamark af 30 metrum og svo smá einstaklingsmistök í öðru og þriðja markinu sem gera það að verkum að við fáum á okkur auðveld mörk. Fyrir utan það þá áttu þeir engin færi í leiknu.“

Fram gerði mjög vel eftir að þeir misstu mann af velli.

„Mér fannst leikmenn ná fínum tökum á þessum leik og ennþá betra í síðari hálfleik. Við vorum farnir að hóta þriðja markinu í lokin og það var orka í liðinu og ég var mjög ánægður og stoltur af mínum drengjum í erfiðum aðstæðum.“

„Þá er ég að meina erfiðar aðstæður þannig að við erum einum færri í nánast 80 mínútur með uppbót. Þetta var bara ótrúlega svekkjandi tap.“

Það var kurr í stúkunni vegna starfa dómarans. Vildi Rúnar bæta einhverju við það?

„Nei ég þarf þess ekki. Hef enga ástæðu til þess að segja eitthvað um það.“

Var þetta rétt rautt spjald?

„Nei ekki að mínu mati en að hans mati. Þannig er þetta bara. Þeir sjá reglurnar á einhvern hátt en minn maður er með boltann, rennir sér í boltann en rennir sér í gegnum andstæðingin en nær að senda á samherja. Dómarinn segir að hann fari með legginn í sköflunginn og það getur skapað hættu en ég er ekki viss um að einhverjir harðjaxlar væru sáttir með að vera reknir út af út af þessu. En það eru kannski bara breyttar reglur og breyttir tímar en það verður einhver að dæma um þetta en ég. Hann dæmdi rautt spjald og við það riðlaðist leikurinn.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira