Fótbolti

Orri hélt liðsfund án að­komu Arnars

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson gerði Orra Stein að fyrirliða íslenska landsliðsins stuttu eftir hann hafði tekið við þjálfun liðsins 
Arnar Gunnlaugsson gerði Orra Stein að fyrirliða íslenska landsliðsins stuttu eftir hann hafði tekið við þjálfun liðsins  Getty/Alex Nicodim

Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, fær mikið hrós frá landsliðsþjálfaranum fyrir það hvernig hann tæklaði krefjandi aðstæður í verkefni liðsins eftir að upp komst um agabrot nokkurra leikmanna. 

Í viðtali við Vísi fór Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, ítarlega yfir málið. Hversu miklum vonbrigðum það hefði valdið en einnig lýsti hann yfir ánægju sinni með það hvernig tekið hafði verið á málinu. 

Klippa: Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars

Fjárhættuspil og áfengisneysla nokkurra leikmanna milli leikja í nýafstöðnu landsliðsverkefni settu strik í reikninginn í undirbúningi liðsins og það sást innan vallar í lokaleiknum gegn Eistlandi ytra. 

Það var í Tallinn þar sem ljóst varð að nokkrir leikmenn hefðu gerst sekir um agabrot heima á Íslandi. Arnar hrósar því hvernig fyrirliði liðsins, Orri Steinn Óskarsson tók á málinu innan hópsins.  

Sýndu þessir leikmenn iðrun?

„Meira en iðrun,“ sagði Arnar í samtali við Vísi. „Þeir voru mjög leiðir yfir þessu. Ég er mjög stoltur af mínum fyrir­liða, Orri Steini, fyrir að hafa kallað leik­manna­hópinn saman og haldið góðan fund. Án aðkomu minnar. Það er mikilvægt að leik­menn fái að pústa. Við stigum skref í að verða al­vöru full­orðin­slið með því að tala hvorn annan til og veita aðhald. Ég var mjög sáttur við það. En á endanum er það þessara leik­manna, sem að gerðu þessa hluti, að sjá til þess að þetta gerist ekki aftur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×