Fótbolti

Skömmin sé nægi­leg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættan­legt“

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson í Tallinn fyrir leik Íslands og Eistlands en ekki svo löngu áður hafði komið upp mál í tengslum við agabrot nokkurra leikmanna íslenska landsliðsins sem átti eftir að hafa áhrif á undirbúning liðsins fyrir umræddan leik sem endaði með markalausu jafntefli, orkulausri frammistöðu. 
Arnar Gunnlaugsson í Tallinn fyrir leik Íslands og Eistlands en ekki svo löngu áður hafði komið upp mál í tengslum við agabrot nokkurra leikmanna íslenska landsliðsins sem átti eftir að hafa áhrif á undirbúning liðsins fyrir umræddan leik sem endaði með markalausu jafntefli, orkulausri frammistöðu.  Vísir/Getty

Aga­brot lands­liðs­manna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í lands­liðsþjálfaratíð Arnars Gunn­laugs­sonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka um­rædda leik­menn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægi­lega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.

„Það sem gerðist þetta kvöld er náttúru­lega bara óásættan­legt. En mikilvægast af öllu er að hópurinn tókst á við þetta á mjög sterkan hátt,“ segir Arnar í sam­tali við Vísi en viðtalið í heild sinni má sjá hér í spilaranum:

Klippa: Skömm þeirra er brutu af sér nægileg refsing

Umrædd agabrot áttu sér stað á laugardagskvöldi eftir sigurleik gegn Búlgaríu hér heima. Fjárhættuspil nokkurra leikmanna og áfengisneysla. Fyrstu viðbrögð hjá Arnari er hann fékk fréttirnar að kvöldi til á sunnu­degi, þegar liðið hafði ferðast til Tallinn í Eistlandi, voru að reka leik­mennina heim úr lands­liðs­verk­efninu.

„En svo kannski fer maður aðeins í þetta mann­lega, talar við viðkomandi leik­menn og finnur fyrir mikilli iðrun af þeirra hálfu. Finnur líka fyrir því að þessi ákvörðun þeirra er ekki tekin bara til þess að verða ein­hver pöru­piltur og sýna mér ein­hverja van­virðingu. Þetta er miklu dýpra heldur en það og þá færðu virki­lega þá stöðu að þig langar bara kannski að hjálpa viðkomandi leik­mönnum, skilja hvað er í gangi.“

Um nokkra leikmenn íslenska landsliðsins er að ræða sem Arnar vill ekki nafngreina. Skömmin verði til þess að þeir læri sína lexíu.

Ertu þá ekki að setja alla undir sama hatt í lands­liðinu? 

„Algjörlega.“

Þeir sem standa eftir hljóta að vera ósáttir við þetta?

„Ég held að hópurinn sé sáttur við hvernig tekið var á þessu máli. Hinn al­menni áhugamaður hefur ekki alveg vit­neskju um hvað er að gerast bak við tjöldin í svona máli eða öðrum. En svo kannski má vel vera og ég skil það mjög vel, að einn eða tveir hugsi með sér: „Bíddu, af hverju var þetta ekki gert og af hverju ekki hitt? Af hverju fékk ég ekki að spila út frá þessu og svo fram­vegis og svo fram­vegis?“

Frá leiknum gegn Búlgaríu. Íslensku landsliðsmennirnir fagna markiVísir/Getty

Áður komið upp „lítillegt“ mál í Skotlandi

Talandi um sögur, af því að þær hafa óneitan­lega farið á kreik eftir að þetta varð opin­bert, þá hefur meðal annars heyrst að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem leik­menn gerist sekir um aga­brot undir þinni stjórn í lands­liðinu, er það rétt?

„Ekki svona aga­brot. Það gerðist einu sinni fyrr í lands­liðs­verk­efni í Skot­landi að mig minnir. En það var mjög lítil­legt. Það var kannski meira svona eitt­hvað sem var ekki alveg kannski ljóst af minni hálfu. Þetta er í fyrsta skipti sem eitt­hvað gerist og maður hugsar með sér: „Ókei, hvað er í gangi hérna?“

Frá æfingarleik Skotlands og Íslands á Hampden Park í júní árið 2025.Vísir/Getty

Fengu spark í andlitið

Ákveðinn rammi er til varðandi reglur í ís­lenska lands­liðinu. Arnar vill þó ekki vera að tönnlast á því við sína leik­menn að þeir eigi ekki að drekka áfengi milli leikja. Þeir eigi bara að vita betur.

„Leikurinn við Búlgaríu var á laugar­degi. Við erum að fara í ferðalag á sunnu­degi. Það er leikur á þriðju­dag. Það er rosa skrýtið í mínum huga að þurfa að segja leik­manni, þegar þú gefur honum frelsi til að fara út og hitta fjöl­skyldu, vini og vanda­menn í löngum og ströngum glugga, að drekka ekki áfengi það kvöld.

Mér finnst það bara fyrir neðan mína virðingu að vera að setja svo­leiðis reglur af því ef menn skilja þetta ekki þá eiga þeir ekki að vera í þessum bransa. Menn fengu svolítið svona spark í and­litið núna og samtölin sem áttu sér stað eftir þetta sjái til þess að þetta sé ekki að fara að gerast aftur. Ef þetta er að fara að gerast aftur þá ertu ekki að bregðast mér. Þá ertu að bregðast þínu fólki, þér sjálfum og þínum ferli sem leik­maður.“

Sýndu þessir leikmenn iðrun?

„Meira en iðrun. Þeir voru mjög leiðir yfir þessu. Ég er mjög stoltur af mínum fyrir­liða, Orri Steini, fyrir að hafa kallað leik­manna­hópinn saman og haldið góðan fund. Án aðkomu minnar. Það er mikilvægt að leik­menn fái að pústa. Við stigum skref í að verða al­vöru full­orðin­slið með því að tala hvorn annan til og veita aðhald. Ég var mjög sáttur við það. En á endanum er það þessara leik­manna, sem að gerðu þessa hluti, að sjá til þess að þetta gerist ekki aftur. “

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði, kallaði til fundar meðal leikmanna í Eistlandi eftir að málið kom upp.Vísir/Getty

Hafði áhrif í leiknum gegn Eistlandi

Þú sendir leik­menn ekki heim en á eftir fylgir leikur á móti Eist­landi ytra. Leik­skipanin þar, upp­stillingin, tók hún mið af þessu aga­broti? Var ein­hverjum leik­mönnum refsað með slíkum hætti?

„Erfitt að nota orðið refsa. Þetta er meira þannig að þú ert búinn að lesa hópinn, reyna að finna taktík og leik­menn sem eru að fara hjálpa þér að vinna leikinn og koma okkur í geðveika stöðu í riðlinum. Þetta var meira þannig. Það var búið að gera upp þessi mál fyrir leikinn, bæði á ein­stak­lings- og liðs­fundum.“

Fyrir leik gegn Eistlandi í Tallinn á dögunum. Niðurstaðan markalaust jafntefli og atburðir liðanna daga sátu í mönnumVísir/Getty

Undir­búningurinn að sjálfsögðu ekki kjörinn fyrir leikinn ytra gegn Eist­landi.

„Mönnum líður ekkert vel yfir þessu og það er nógu erfitt að spila fót­bolta­leik, hvað þá lands­leik í nútímaár­ferði og vera ekki með ein­hvern bagga hangandi yfir sér þegar leikurinn hefst. Það var kannski aug­ljóst að við vorum ekki alveg ofan á í þessum leik. Þess vegna sagði ég í viðtali eftir leik, án þess að hafa út­skýrt það, að stigið hafi bara verið nokkuð gott.“

Þannig að þetta mál hefur haft áhrif á lands­leikinn sem að kemur á eftir, frammistöðuna þar og óneitan­lega þá úr­slitin í kjölfarið?

„Þú þarft að vera bara snar­blindur til að sjá það ekki. Þegar at­vik kemur upp svona sólar­hring fyrir mikilvæga leiki. Auðvitað, þrátt fyrir að ein­hver muni segja að þetta hafi ekki haft nein áhrif, þá auðvitað hefur það áhrif á leik­menn og hópinn.“

Túlkar þetta ekki sem virðingarleysi gagnvart sér

Málinu er lokið frá bæjar­dyrum Arnars séð og mun ekki hafa áhrif á lands­liðsval hans fyrir næsta verk­efni í nóvember. Hann er sáttur með það hvernig tekið var á málinu.

Það að leik­menn leyfi sér þetta samt í lands­liðs­ferðunum. Ein­hverjir myndu kannski túlka þetta sem dálítið svona virðingar­leysi gagn­vart þér sem lands­liðsþjálfara. Er það eitt­hvað sem þú hefur íhugað, bera þessir leik­menn ekki nægi­lega mikla virðingu fyrir þér í starfi?

„Það fer eftir því hvernig glæpurinn var framinn. Var hann framinn með ein­hverjum ásetningi um að sýna mér og öðrum leik­mönnum van­virðingu? Eða eru ein­hverjar dýpri og kannski aðeins merkari ástæður að baki. Ég er svona að reyna ýja að því að það seinna hafi verið kannski aðal­á­stæðan fyrir því að menn fóru kannski aðeins yfir strikið. Ég held að þetta hafi ekki verið þannig að menn hafi verið veltandi niðri í bæ blind­fullir. Það voru bara reglur brotnar sem að öll frábær lið þurfa að virða til þess að eiga mögu­leikann á árangri.“

Arnar í rigningunni á Laugardalsvelli þegar Ísland spilaði gegn BúlgaríuVísir/Anton Brink

„Ástæðan var ekki eitt­hvað virðingar­leysi gagn­vart mér. Ég held meira að þeir hafi bara brugðist sjálfum sér og liðs­félögunum, mér svo í þriðja sæti. Þekkjandi það þegar maður var lítill polli þá var ekkert endi­lega besta refsingin þegar mamma og pabbi voru að öskra á mann. Besta refsingin var þegar þú upp­lifðir það að þú varst að bregðast for­eldrunum, gerðir eitt­hvað rangt. Ég held vissu­lega að þeir hafi tekið út sína refsingu, bara hvernig til­finningin þeirra var eftir að þeir áttuðu sig á stöðunni og hvernig hópurinn þeirra brást við, hvernig ég brást við. Það sé eigin­lega nægi­lega mikil refsing til þess að þetta muni ekki gerast aftur og viðkomandi leik­menn munu í raun og veru gera eitt­hvað í sínum málum.“

Mun ekki koma fyrir aftur

Málið kemur upp á tíma þar sem að stemningin fyrir ís­lenska lands­liðinu hefur litið betri daga. Dræm mæting hefur verið á leiki í Laugar­dals­velli, ný kynslóð að fóta sig og úr­slitin höfðu ekki verið að detta fyrir liðið en sigur­leikir í nýaf­stöðnum glugga höfðu kveikt vonar­neista.

Leikmenn fagna með stuðningsmönnum Íslands eftir sigur gegn Búlgaríu hér heima áður en haldið var til Tallinn degi seinnaVísir/Anton

„Þetta er bara van­virðing gagn­vart öllum. Stuðnings­mönnum, þjóðinni, leik­mönnum, stjórn og þjálfurum. En hvað er til ráða þá? Menn iðrast. Það er búið að loka málinu. Ég held að stuðnings­menn séu fljótir að fyrir­gefa hetjunum sínum ef þeir sýna fram á það í næstu leikjum að þeir í raun og veru elski að vera í bláu treyjunni og gefa fólkinu blóð, svita og tár. Þá eru menn fljótir að hoppa aftur á vagninn. 

Ég vil frekar fara í þennan mann­lega þátt. Menn gera mistök og læra af því. Í þessu lífi þá er það bara gamli og enski frasinn sem á alltaf við: „You learn it the hard way.“ En þú verður svo sannar­lega að læra af mistökum til að komast áfram í þessu lífi. Hefði ég kosið að þessi mál hefðu aldrei komið upp? Já, að sjálfsögðu. En þetta mál kom upp og það þarf ekkert að væla yfir því. Við bara tókumst á við þetta af ákveðni og þetta mun ekki koma fyrir aftur.“

Viðtalið við Arnar í heild sinni má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þá er hægt að nálgast viðtalið á öllum helstu hlaðvarpsveitum sem og í spilara hér fyrir neðan: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×