Grætur enn að hafa misst af símtalinu Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 10. október 2026 08:00 Systkinin minnast þess þegar fjölskyldan kvaddi JohnSnorra á Keflavíkurflugvelli í desember 2020. Þótt þeim þætti erfitt að sjá á eftir honum til Pakistans þá höfðu þau fulla trú á að hann myndi snúa aftur. Aðsend „Hann hringir í mig á afmælisdaginn minn sem er þremur dögum áður en þetta gerist. Ég man að hann hringir og ég vakna við það. Hann byrjar bara á því að syngja afmælissönginn fyrir mig og svo bara spjöllum við smá og hann spyr hvað ég ætli að gera yfir daginn. Ég spyr hvernig honum gangi og hann segir að það gangi allt vel. Svo bara kveð ég hann og hann segist elska mig.“
Þetta segir Ragnhildur Vala Johnsdóttir þegar hún rifjar upp síðasta samtalið sem hún átti við föður sinn, fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson, sem lést í leiðangri á K2 í febrúar árið 2021. Ragnhildur var þá aðeins 14 ára gömul. Í öðrum þætti hlaðvarpsseríunnar Önnur mál ræða þrjú börn Johns Snorra, þau Ragnhildur Vala, Kjartan Orri og Halla Karen, um föðurmissinn en málið hefur undanfarið verið í umræðunni eftir að heimildarmynd um málið fór í sýningu. Ættingjar Johns Snorra hafa hingað til ekki tjáð sig um ferðina en börn hans opna sig hér í fyrsta sinn um atburðarásina, biðina óbærilegu á meðan leit stóð yfir og hvernig þau hafa unnið úr áfallinu. Bjuggust öll við að hann kæmi heim John Snorri hélt af stað til Pakistans í desember árið 2020 með það að markmiði að verða fyrstur manna til að klífa K2 að vetrarlagi. Hann hafði áður náð tindi fjallsins að sumri til, fyrstur Íslendinga, og var þarna að gera sína aðra tilraun við vetraruppgöngu. Systkinin rifja upp síðustu kveðjustundina á Keflavíkurflugvelli, þegar fjölskyldan fylgdi honum til flugs. Þau segja kveðjustundina hafa verið erfiða en að ekkert þeirra hafi gert ráð fyrir því að þetta yrði í síðasta sinn sem þau sæju föður sinn. Systkinin lýsa föður sínum sem hlýjum, ævintýragjörnum og umhyggjusömum fjölskyldumanni. Þau segja hann hafa lagt mikla rækt við sambandið við börnin sín, hvatt þau til að fylgja draumum sínum og haft mikla trú á hæfileikum þeirra.Aðsend „Ég var eiginlega ekki stressaður út af því að ég vissi hvað pabbi hefði getað gert. Ég vissi bara að ef einhver gæti gert þetta þá er það pabbi,“ segir Kjartan Orri, sem var tólf ára þegar faðir hans lést. Kjartan rifjar jafnframt upp að John Snorri hafi reynt að hringja í hann á svipuðum tíma og hann hringdi í Ragnhildi, skömmu áður en hann hvarf. Símtalið hafi komið um miðnætti en Kjartan var sofandi og missti þar af leiðandi af því. Aðspurður hvernig honum líði með það svarar hann: „Alveg ömurlega. Ég bara óska þess að ég hefði vaknað við símhringinguna.“ Hann segir eftirsjána enn sitja í sér, fimm árum síðar. „Þetta er mjög særandi“ Í þættinum ræða systkinin einnig þá miklu gagnrýni sem faðir þeirra hefur sætt vegna ákvörðunar sinnar um að leggja í svo hættulegan leiðangur, ekki síst í ljósi þess að hann var sex barna faðir. Ragnhildur segir umræðuna hafa verið mjög særandi, sérstaklega þegar fólk gagnrýnir föður hennar fyrir að hafa ekki verið heima hjá börnunum sínum. „Maður hefur alveg tekið eftir þessu og augljóslega er þetta mjög særandi,“ segir hún og vísar meðal annars til ummæla fólks sem hefur velt því fyrir sér hvers vegna John Snorri hafi farið í leiðangurinn. Kjartan tekur undir þetta og segist sérstaklega hafa orðið var við gagnrýnina í athugasemdakerfum á Facebook. Hann telur að þeir sem gagnrýna föður hans átti sig ekki á þeirri ástríðu sem hann hafði fyrir fjallamennsku. John Snorri tók mynd af börnunum sínum með sér á fjallið.Aðsend „Þau hafa aldrei getað sett sig í spor pabba. Þau ólust örugglega ekki upp í sveit og höfðu ekki sömu ástríðu og pabbi.“ Í þættinum segja systkinin jafnframt frá óvissunni eftir hvarf föður síns, leitinni að honum og hvernig þau hafa unnið úr sorginni á þeim fimm árum sem liðin eru frá andláti hans.
John Snorri á K2 Hlaðvörp Tengdar fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Ný bíómynd um keppnina á topp K2 að vetrarlagi og hinstu för Johns Snorra er ein vinsælasta kvikmynd í heimi um þessar mundir á streymisveitunni Apple. Vinur Johns Snorra segir myndina skipta miklu máli fyrir arfleifð fjallgöngugarpsins. 7. október 2026 12:00 Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Halla Karen Johnsdóttir dóttir fjallgöngugarpsins Johns Snorra minntist föður síns frammi fyrir smekkfullu Háskólabíói í tvígang um helgina á sérstakri hátíðarsýningu RIFF á heimildarmyndinni um för föður hennar upp á K2 að vetrarlagi þar sem hann fórst árið 2021. Hún segir það mikilvægasta sem faðir hennar kenndi henni hafa verið að njóta ævintýranna á meðan hægt er. 6. október 2026 20:00 Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira
Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Ný bíómynd um keppnina á topp K2 að vetrarlagi og hinstu för Johns Snorra er ein vinsælasta kvikmynd í heimi um þessar mundir á streymisveitunni Apple. Vinur Johns Snorra segir myndina skipta miklu máli fyrir arfleifð fjallgöngugarpsins. 7. október 2026 12:00
Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Halla Karen Johnsdóttir dóttir fjallgöngugarpsins Johns Snorra minntist föður síns frammi fyrir smekkfullu Háskólabíói í tvígang um helgina á sérstakri hátíðarsýningu RIFF á heimildarmyndinni um för föður hennar upp á K2 að vetrarlagi þar sem hann fórst árið 2021. Hún segir það mikilvægasta sem faðir hennar kenndi henni hafa verið að njóta ævintýranna á meðan hægt er. 6. október 2026 20:00