Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Samúel Karl Ólason skrifar 9. október 2026 15:13 Marco Rubio utanríkisráðherra segist búast við því að bandamenn Bandaríkjanna muni einnig beita sér gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum. AP/Manuel Balce Ceneta Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beitt frekari refsiaðgerðum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC). Það var opinberað nokkrum klukkustundum eftir að fyrrverandi dómari við dómstólinn fékk friðarverðlaun Nóbels en Marco Rubio utanríkisráðherra segir aðgerðunum ætlað að lama starfsemi dómstólsins.
Rubio tilkynnti þessar nýju aðgerðir, meðal annars í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum. „Við munum banna öll viðskipti við þennan óstýriláta dómstól, loka fyrir aðgang hans að fjármagni og lama getu hans til að starfa gegn okkur,“ sagði Rubio í ávarpinu. „Bandaríkin og bandaríska þjóðin lúta ekki lögsögu þessa gervi-sakamáladómstóls.“ Rubio sagði að bæði Repúblikanar og Demókratar hefðu lengi haft horn í síðu dómstólsins en það hefði verið Trump sem greip loks til aðgerða gegn honum. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn var stofnaður árið 2002 til að rannsaka stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu og rétta yfir aðilum sem brjóta af sér. 125 ríki hafa skrifað undir Rómarsamþykktina um stofnun hans. „Annaðhvort mun Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hætta hótunum sínum, eða við munum binda endi á Alþjóðlega sakamáladómstólinn.“ Today, the Trump Administration is sanctioning the ICC. This action should encourage our Allies within the Court to work for solutions to end this threat to U.S. sovereignty forever. https://t.co/D86dCqLUaZ— Secretary Marco Rubio (@SecRubio) October 9, 2026 Bandaríkjamenn hafa verið að þrýsta á bandalagsríki sín í Evrópu um að segja sig frá sakamáladómstólnum og ítrekaði Rubio það í ávarpinu hér að ofan. Hvatti hann önnur ríki til að taka þátt í aðgerðunum. Hann sagði að Bandaríkjamenn byggjust við því að bandamenn þeirra stæðu með þeim í þessu. Sjá einnig: Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól „Við væntum þess að bandamenn okkar, sem margir hverjir eru aðilar að Alþjóðlega sakamáladómstólnum og reiða sig á bandaríska hermenn til varna sinna, hemji þennan fráhverfa dómstól,“ sagði hann. „Geri þeir það ekki munu Bandaríkin halda áfram herferð sinni til að taka Alþjóðalega sakamáladómstólinn í sundur, bút fyrir bút, þar til Bandaríkjamönnum verður ekki lengur ógnað.“ Ekki í fyrsta sinn Navi Pillay fékk friðarverðlaun Nóbels í morgun en hún var á árum áður dómari við ICC. Þá kom hún að því að rannsaka mögulegar ákærur gegn bandarískum hermönnum í Írak og Afganistan. Sjá einnig: Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Trump hefur lengi viljað fá friðarverðlaunin og hefur hann stært sig af því að binda enda á fjölda átaka, sem mörg hver hófust aldrei eða standa enn yfir. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum hófust þó nokkru áður. Bandaríkjamenn eru ekki aðilar að Rómarsamþykktinni um stofnun dómstólsins og hafa lengi sakað hann um óréttmætar aðgerðir gegn Bandaríkjunum og gegn Ísrael. Í fyrra opinberaði Rubio refsiaðgerðir gegn tveimur dómurum ICC sem höfðu þá verið að rannsaka ísraelska hermenn. Fyrir það höfðu Bandaríkjamenn þegar beitt fleiri starfsmenn og þar á meðal yfirsaksóknara ICC refsingum en þær hafa mikil áhrif á þá sem fyrir þeim verða. Allar eigur viðkomandi í bandarískri lögsögu eru frystar og mega bandarísk fyrirtæki ekki eiga í viðskiptum við þá sem hafa verið beittir svona aðgerðum. Þetta hefur haft áhrif á tölvupóst starfsmanna ICC og bankareikninga.
Bandaríkin Donald Trump Dómstólar Mannréttindi Hernaður Ísrael Nóbelsverðlaun Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira