Upp­gjörið: Króatía - Ís­land 0-4 | Systur á skotskónum í sann­færandi sigri

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Hlín Eiríksdóttir í leik með íslenska landsliðinu
Hlín Eiríksdóttir í leik með íslenska landsliðinu vísir/Anton

Ísland tók stórt skref í áttina að úrslitaeinvígi umspils fyrir HM 2027, sem fram fer í Brasilíu, í kvöld með 4-0 sigri gegn Króatíu ytra í fyrri leik liðanna í undanúrslitaeinvígi. Hlín og Arna Eiríksdætur skoruðu þrjú af fjórum mörkum Íslands.

Leikurinn byrjaði rólega og var íslenska liðið mun sterkari aðilinn og stjórnaði ferðinni frá fyrstu mínútu. Arna Eríksdóttir kom Íslandi yfir á 13. mínútu eftir langt innkast frá Sveindísi Jane Jónsdóttur sem Glódís Perla Viggósdóttir skallaði áfram. Arna var þá á réttum stað og skallaði boltann í netið. Þetta var fyrsta landsliðsmark Örnu.

Íslensku stelpurnar héldu áfram að sækja og fengu nokkur fín færi til þess að bæta við forystuna. Þrátt fyrir mikla yfirburði tókst liðinu ekki að bæta við fleiri mörkum í fyrri hálfleik og fór liðið því með eins marks forystu inn í hálfleikinn.

Síðari hálfleikur fór hægt af stað. Króatar reyndu að sækja meira og áttu nokkrar sóknir en tókst ekki að skapa sér nein hættuleg færi.

Á 67. mínútu fékk Ísland vítaspyrnu eftir að boltinn hafði farið í hönd Helenu Spajic innan vítateigs. Dómarinn skoðaði atvikið á VAR-skjánum áður en hún benti á punktinn. Glódís Perla steig þá á punktinn og skoraði af öryggi.

Hlín Eiríksdóttir bætti við þriðja marki Íslands á 75. mínútu eftir góða sendingu frá Emilíu Kiær Ásgeirsdóttur. Emilía tímasetti sendinguna vel á Hlín sem kláraði færið af miklu öryggi á nærstöngina. Þetta var níunda landsliðsmark Hlínar og staðan orðin 3-0 fyrir Íslandi.

Króatar fengu dauðafæri þegar Ana Maria Markovic slapp inn fyrir vörn Íslands og komst ein gegn Cecilíu Rán Rúnarsdóttur. Cecilía kom vel út á móti, gerði sig stóra og varði frábærlega.

Arna Eiríksdóttir var ekki búin að segja sitt síðasta því hún bætti fjórða marki Íslands á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Katla Tryggvadóttir tók hornspyrnu sem Glódís Perla skallaði áfram á Örnu sem kom boltanum í netið. Arna því með sitt fyrsta og annað landsliðsmark í sama leik og innsiglaði glæsilegan 4-0 sigur Íslands.

Liðin mætast aftur næsta þriðjudag í seinni leik liðanna á Laugardalsvelli.

Atvik leiksins

Stórkostleg varsla Cecilíu þegar Ana Maria Markovic slapp inn fyrir vörn Íslands og komst ein á móti Cecilíu.

Stjörnur og skúrkar

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var örugg í sínum aðgerðum í föstum leikatriðum og löng innköst Sveindísar sköpuðu ítrekað hættu í teig Króata.

Arna Eiríksdóttir átti draumaleik og skoraði sín fyrstu tvö landsliðsmörk í dag.

Fyrirliðinn okkar Glódís Perla var einnig frábær í dag. Tvær stoðsendingar og mark.

Stemning og umgjörð

Fámennt á vellinum og lítil stemning. Vonandi betri mæting og meiri læti á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.

Dómarar

Dómarateymið kom að þessu sinni frá nágrönnum okkar í Danmörku. Frida Klarlund var á flautunni og henni til aðstoðar voru þær Katrine Stensholm og Sidsel Rasmussen.

Jonas Hansen var myndbandsdómarinn í dag (VAR) og honum til aðstoðar var Reelika Turi frá Eistlandi.

Frida lagði línurnar strax í upphafi leiks og sýndi frá fyrstu mínútu hvaða línu hún ætlaði sér í dómgæslunni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira