Bíó og sjónvarp

Hrútar að kóreskum kálfum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Kvikmyndin Hrútar hefur verið endurgerð í annað sinn.
Kvikmyndin Hrútar hefur verið endurgerð í annað sinn.

Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta.

„Það er ekki á hverjum degi sem bíómynd eftir mann er endurgerð í Suður-Kóreu. Cattle Run, sem er endurgerð af Hrútum, verður frumsýnd á Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðinni í Busan í vikunni,“ skrifar leikstjórinn og handritshöfundurinn Grímur Hákonarson.

„Ég er búinn að sjá myndina og er nokkuð ánægður með útkomuna en vil ekki segja of mikið ef ske kynni að hún rati hingað á klakann. Ég get þó sagt að Kóreumennirnir eru búnir að skrúfa rækilega upp í dramanu og hasarnum, eins og þeim einum er lagið, og breyta kindunum í kálfa,“ skrifar hann jafnframt.

Hrútar kom út árið 2015 með Sigga Sigurjóns og Theodóri Júlíussyni í aðalhlutverkum og fjallar um tvo sauðfjárbændur á sjötugsaldri, bræðurna Gumma og Kidda, sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norðurlandi en hafa ekki talast við í fjóra áratugi. Þegar riðuveiki grípur um sig í dalnum standa bræðurnir frammi fyrir því að missa allt fé sitt og grípa til sinna ráða.

Hrútar hlutu verðlaunin Un Certain Regard á kvikmyndahátíðinni í Cannes og var myndin framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna sem besta erlenda mynd en var ekki tilnefnd. Ástralska endurgerðin Rams kom svo út árið 2020 með Sam Neill og Michael Caton í aðalhlutverkum og hlaut góðar viðtökur.

Suður-kóreska endurgerðin heitir á ensku Cattle Run, er frumraun leikstjórans Kim Ji-hyun á stóra skjánum og er með Ryu Seung-ryong og Park Hae-joon í aðalhlutverkum. Hrútunum í fyrstu myndinni hefur verið skipt út fyrir kóreska kálfa og í stað riðu þurfa bændurnir að eiga við gin- og klaufaveiki sem gýs upp á bæjum þeirra.

Hér að neðan má sjá stiklu fyrir kóresku myndina:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.