Arf­taki Ronaldo á­fram sjóð­heitur í sigri

Sindri Sverrisson skrifar
Goncalo Ramos fagnar sigurmarkinu gegn Noregi í kvöld.
Goncalo Ramos fagnar sigurmarkinu gegn Noregi í kvöld. Getty/Jose Manuel Alvarez Rey

Goncalo Ramos heldur áfram að láta ljós sitt skína eftir brotthvarf Cristiano Ronaldo og hann skoraði sigurmark Portúgals í 2-1 sigri á Noregi í kvöld. Danmörk vann Wales 1-0 á útivelli í sama riðli.

Ramos tryggði Portúgal 2-1 sigur með marki á 79. mínútu á Drekavöllum í kvöld og hefur þar með skorað í þremur leikjum í röð. Portúgal er þar með komið áfram í 8-liða úrslit keppninnar, með 12 stig eftir fjórar umferðir á toppi riðilsins.

Tvö gul og rautt fyrir tuð

Brentford-miðvörðurinn Kristoffer Ajer hafði komið Noregi yfir með draumamarki á 36. mínútu en Joao Cancelo jafnaði metin með ekki síðra þrumuskoti tveimur mínútum síðar.

Portúgalar voru manni færri síðustu mínúturnar eftir að Francisco Conceição fékk tvö gul spjöld í röð fyrir leiðindi við dómarann en það kom ekki að sök fyrir þá.

Höjlund með sigurmark úr víti

Í hinum leiknum í riðlinum skoraði Rasmus Höjlund sigurmark Danmerkur gegn Wales úr vítaspyrnu á 75. mínútu.

Danmörk er því í 2. sæti riðilsins með sex stig en Noregur og Wales eru með þrjú stig hvort fyrir síðustu tvær umferðirnar í nóvember. Tvö efstu liðin komast áfram í 8-liða úrslit.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira