Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar Sindri Sverrisson skrifar 3. október 2026 18:15 Lamine Yamal brosti breitt eftir glæsimark sitt gegn Tékkum. Getty/Irina R. Heimsmeistarar Spánar virðast ekki geta stigið feilspor og þeir unnu Tékka 3-1 í kvöld í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Spánverjar hafa að vísu fengið á sig mark í öllum þremur leikjum sínum í Þjóðadeildinni til þessa en samt unnið þá alla, gegn Englandi, Króatíu og nú Tékklandi. Lamine Yamal kom Spáni yfir snemma leiks með glæsilegu skoti upp í vinstra hornið og Rodri tvöfaldaði forystuna á 35. mínútu með skoti úr teignum. Gestirnir gáfust hins vegar ekki upp og Jiri Sláma minnkaði muninn á 69. mínútu. Tékkar héldu í vonina um að ná í stig gegn heimsmeisturunum en hún hvarf á 85. mínútu þegar Ladislav Krejci fékk sitt seinna gula spjald og þar með rautt. Varamaðurinn Mikel Merino innsiglaði svo sigur Spánar í lokin. Spánn er því með níu stig á toppi riðilsins en Tékkar enn án stiga. Spánn sækir Króatíu heim á þriðjudaginn en Tékkland mætir þá Englandi á Wembley. Skotar og Svisslendingar unnu Í B-deildinni vann Skotland 2-0 útisigur gegn Norður-Makedóníu þar sem Kieron Bowie kom Skotum snemma yfir og John McGinn gerði seinna markið úr víti. Í sama riðli vann Sviss 2-1 gegn Slóveníu á heimavelli þrátt fyrir að hafa lent undir á 2. mínútu. Sviss er efst í riðlinum með níu stig en Slóvenía og Skotland eru með fjögur stig og Norður-Makedónía enn án stiga og enn ekki búið að skora mark. Þjóðadeild karla í fótbolta