Söguleg niðurlæging í Króatíu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. október 2026 15:31 Harry Kane er hér nýbúinn að skora fyrsta mark leiksins. vísir/getty Englendingar voru í banastuði er þeir sóttu Króata heim í dag. Englendingar með ótrúlega yfirburði og unnu stórsigur, 0-7. Harry Kane setti tóninn strax á 8. mínútu leiksins og eftir það var ekki aftur snúið. Yfirburðirnir voru algjörir og Englendingar óðu í færum. Er blásið var til leikhlés var staðan 0-4 fyrir England en hefði hæglega getað verið 0-8. Króatar voru algjörlega heillum horfnir. Englendingar héldu áfram að raða inn mörkum og unnu með sjö mörkum. Þetta er í fyrsta sinn sem lið nær að skora yfir fimm mörk í landsleik gegn Króatíu í Króatíu. Þetta var sögulegt. England er því komið upp að hlið Spánar í riðlinum með sex stig en Spánverjar eiga leik inni. Króatar eru nú þremur stigum á eftir Englendingum. Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti