Breiða­blik - Þróttur 5-4 | Ó­trú­leg endur­koma meistaranna

Gunnar Berg Stefánsson skrifar
Blikakonur voru í vonlausum málum en sneru dæminu við.
Blikakonur voru í vonlausum málum en sneru dæminu við. Guðmundur/Vísir

Breiðablik vann ótrúlegan 5-4 sigur á Þrótti þegar liðin mættust á Eikarvellinum í Bestu deild kvenna í dag. Blikar voru 4-1 undir í hálfleik en skoruðu fjögur mörk eftir hlé. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði þrennu og tryggði heimakonum sigurinn á 90. mínútu.

Með sigrinum heldur Breiðablik þriggja stiga forskoti á FH þegar tveir leikir eru eftir. Hafnfirðingar unnu ÍBV 5-0 á sama tíma og lengi vel stefndi í að Blikar myndu missa toppsætið.

Þróttarar byrjuðu af krafti og komust yfir á níundu mínútu. Björg Gunnlaugsdóttir kom boltanum á Bríeti Fjólu Bjarnadóttur sem afgreiddi hann í fyrstu snertingu yfir Herdísi Höllu Guðbjartsdóttur í marki Breiðabliks.

Hrafnhildur Ása fékk gott tækifæri til að jafna með skalla sem fór rétt fram hjá, en gestirnir bættu þess í stað við öðru marki á nítjándu mínútu. Blikar vildu fá vítaspyrnu en ekkert var dæmt og Þróttarar þeyttust upp völlinn í skyndisókn sem Sierra Marie Lelii lauk með marki.

Pirringurinn var farinn að segja til sín hjá heimakonum. Agla María Albertsdóttir fékk gult spjald og skömmu síðar kom Bríet Fjóla Þrótti í 3–0 með glæsilegu marki. Hún lék á varnarmann og þrumaði boltanum upp í samskeytin með vinstri fæti.

Hrafnhildur Ása gaf Blikum líflínu tveimur mínútum síðar. Hún fékk sendingu frá Katelyn Duong, sneri vel með boltann og skoraði með föstu skoti.

Þróttarar voru þó ekki hættir. Á 42. mínútu átti Unnur Dóra Bergsdóttir skot utan teigs sem fór í hæl Sierra Marie og þaðan í netið. Gestirnir leiddu því 4-1 í hálfleik og útlitið dökkt fyrir Íslandsmeistarana.

Bæði lið gerðu breytingar í hálfleik en það tók heimakonur tíma að finna leið aftur inn í leikinn. Þær fóru smám saman að þrýsta meira á Þrótt og röð hornspyrna skilaði loks marki á 63. mínútu. Kristín Dís Árnadóttir kom þá á ferðinni inn í teiginn eftir hornspyrnu Öglu Maríu og boltinn fór af læri hennar í markið.

Tíu mínútum síðar kom Bryndís Arna Níelsdóttir inn á og skoraði með sinni fyrstu snertingu. Agla María sendi boltann fyrir markið, Karitas Tómasdóttir kom honum áfram á Bryndísi Örnu og hún minnkaði muninn í 4-3.

Nú var allt annað að sjá til Blika sem sóttu af krafti. Hrafnhildur Ása fékk dauðafæri þegar boltinn féll fyrir hana í markteignum en náði ekki að stýra honum í netið.

Hún bætti fyrir það á 83. mínútu. Agla María tók boltann á lofti á miðjum vellinum og lyfti honum yfir vörn Þróttar. Hrafnhildur slapp ein í gegn, fór fram hjá Mollee Swift og setti boltann í autt markið. Blikar höfðu jafnað og vildu meira.

Sigurmarkið kom svo á 90. mínútu. Líf Joostdóttir van Bemmel þeyttist upp hægri kantinn og sendi frábæra fyrirgjöf meðfram jörðinni á fjærstöngina. Hrafnhildur Ása var mætt þar og skoraði sitt þriðja mark.

Ótrúleg endurkoma fullkomnuð og heimakonur fögnuðu gríðarlega mikilvægum sigri. Þróttarar sátu hins vegar eftir með sárt tap eftir að hafa skorað fjögur mörk í fyrri hálfleik.

Atvik leiksins

Sigurmark Hrafnhildar Ásu á nítugustu mínútu. Blikar höfðu þegar bjargað sér úr gríðarlega erfiðri stöðu með því að jafna en létu sér ekki nægja stigið.

Líf átti frábæran sprett og fyrirgjöf og Hrafnhildur skilaði sér á réttan stað til að tryggja heimakonum öll þrjú stigin og verja forskotið á toppnum.

Stjörnur og skúrkar

Hrafnhildur Ása er stjarna leiksins. Hún skoraði þrennu, þar á meðal síðustu tvö mörk Breiðabliks, og réð úrslitum. Þrátt fyrir að hafa misst af góðum færum hélt hún áfram að koma sér í stöður og uppskar heldur betur.

Agla María átti einnig stóran þátt í endurkomunni. Hornspyrna hennar skilaði öðru marki Blika, hún átti fyrirgjöfina í aðdraganda þess þriðja og sending hennar á Hrafnhildi í jöfnunarmarkinu var ótrúleg. Þá á Líf mikið hrós skilið fyrir undirbúning sigurmarksins og Bryndís Arna fyrir að hafa strax áhrif af bekknum.

Bríet Fjóla og Sierra Marie skoruðu tvö mörk hvor fyrir Þrótt. Seinna mark Bríetar var stórkostlegt.

Varnarleikur beggja liða gaf hins vegar tilefni til gagnrýni. Blikar fengu á sig fjögur mörk fyrir hlé og Þróttarar misstu svo niður þriggja marka forskot. Mollee Swift hefði einnig mátt gera betur í sigurmarkinu þegar hún kom út úr markinu en náði ekki til boltans.

Einnig get ég nefnt fyrstu 60. mínútur leiksins hjá Breiðablik voru mjög slakar, þær voru mjög opnar varnarlega, orkulitlar og eins og stressið væri við völd.

Dómarinn

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var aðaldómari leiksins og stóð hann og sitt teymi sig með príði. Það var stórt augnablik sem kom á nítjándu mínútu þegar Blikar vildu fá vítaspyrnu. Ekkert var dæmt og Þróttarar brunuðu upp völlinn og komust í 2–0.

Heimakonur og stuðningsfólk þeirra voru ósátt við ákvörðunina, en úr blaðamannastúkunni virtist þetta hárrétt ákvörðun hjá Vilhjálmi

Stemmning og umgjörð

Það var mikil spenna í loftinu á Eikarvellinum enda mikið undir hjá Breiðabliki í titilbaráttunni. Pirringur var áberandi hjá stuðningsfólki heimakvenna í fyrri hálfleik á meðan mörkin röðuðust inn hjá gestunum.

Andrúmsloftið breyttist svo heldur betur þegar Blikar fóru að ganga á forskotið. Dramatíkin náði hámarki með sigurmarkinu í lok leiks og áhorfendur fengu níu marka leik sem verður lengi í minnum hafður.

Viðtöl

Ian Jeffs: „Ég er bara búinn á því eftir þetta“

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var að vonum hæstánægður með ótrúlega endurkomu sinna kvenna gegn Þrótti í dag. Blikar lentu 4-1 undir en sneru leiknum sér í vil og unnu 5-4.

„Þetta er pínu ólýsanlegt, þetta var bara svart og hvítt, fyrri hálfleikurinn og seinni hálfleikurinn,“ sagði Ian eftir leik.

Honum fannst lítið ganga upp hjá Blikum framan af leik.

„Fyrstu 55 mínúturnar vorum við bara ekki með. Við vorum ekki að taka þátt og gerðum of lítið af því sem við lögðum upp með. Hvort sem það var pressan eða það sem við vorum að gera með boltann, þá klikkaði bara allt.“

Ian reyndi að núllstilla liðið í hálfleik og kallaði eftir meiri karakter frá sínum leikmönnum.

„Það sem við töluðum um var karakter í seinni hálfleik. Leikmenn sýndu heldur betur karakter. Þetta var geggjuð endurkoma og ég hrósa karakternum í mínu liði í dag.“

Ian Jeffs kvaðst hreinlega uppgefinn eftir leikinn ótrúlega í dag.

„Hún átti að skora með fyrstu snertingunni“

Bryndís Arna Níelsdóttir kom inn á sem varamaður og skoraði með sinni fyrstu snertingu. Ian viðurkenndi léttur að það hefði einmitt verið planið.

„Hún átti að skora með fyrstu snertingunni, það var planið,“ sagði Ian og hló.

„Ég geri yfirleitt aldrei skiptingu þegar það er fast leikatriði, sóknar- eða varnarlega. En ég ákvað að gera það í dag. Hún er alltaf góð inni í teignum og ég hugsaði að hún gæti hjálpað okkur þar og hún gerði það.“

„Það var kominn tími á það“

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var hetja Blika en hún skoraði þrennu, þar á meðal sigurmarkið á lokamínútunum.

„Það var kominn tími á það,“ sagði Ian um þrennuna.

„Hún hefur verið virkilega góð í sumar. Stundum hefur hún brennt af færum sem hún hefði kannski átt að klára og hún veit það sjálf. En hún er búin að koma sér í færin.“

Ian segir það skipta mestu fyrir sóknarmenn að halda áfram að koma sér í marktækifæri.

„Ef þú ert ekki að komast í færi þá er vandamál. Þegar þú ert að komast í færin er alltaf spurning hvenær boltinn dettur inn. Hún hefur haldið haus og haldið trúnni og sýndi í dag að hún getur klárað.“

Ian var sjálfur orðinn örmagna eftir dramatíkina.

„Ég viðurkenni það að ég er bara búinn á því eftir þetta,“ sagði Ian léttur.

Breiðablik á tvo leiki eftir í deildinni og Ian horfir nú til næsta verkefnis.

„Við höfum smá tíma núna til að undirbúa okkur fyrir næsta verkefni. Við förum yfir leikinn eins og við gerum alltaf og svo er bara að gera okkur klárar fyrir næsta leik.“

Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari bikarmeistara Þróttar.vísir/Diego

Jóhann: „Við spiluðum í fyrri en ekki í seinni“

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var að vonum svekktur eftir ótrúlegt 5-4 tap gegn Breiðabliki á Eikarvelli. Þróttur skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik en Blikar sneru taflinu við eftir hlé.

„Það er sirka þetta. Við spiluðum í fyrri en ekki í seinni og Blikarnir áttu þetta á endanum bara skilið, því miður,“ sagði Jóhann eftir leik.

Jóhann gerði tvær breytingar á liði sínu í hálfleik og sagði þær meðal annars hafa komið til vegna meiðsla. Hann vildi jafnframt nýta tækifærið til að gefa yngri leikmönnum mínútur.

„Við treystum öllum hópnum. Það voru annars vegar meiðsli og svo hins vegar erum við bara í því núna að gefa yngri leikmönnum svolítið tækifæri.“

Hann segir það eðlilegan hluta af stöðunni hjá félaginu að gefa ungum leikmönnum tækifæri þegar líður á tímabilið.

„Eins og öll lið sem eru í efstu deild þá þarf maður auðvitað að blóðga unga leikmenn á svona háu stigi.“

Þrátt fyrir tapið gat Jóhann tekið ýmislegt jákvætt úr frammistöðu Þróttar, ekki síst sóknarleik liðsins í fyrri hálfleik.

„Við erum að skora hérna fjögur mörk í fyrri hálfleik á móti verðandi Íslandsmeisturum.“

Hann viðurkenndi þó að seinni hálfleikurinn hefði verið allt annar og að liðið hefði ekki náð að fylgja fyrri hálfleiknum eftir.

Aðspurður hvort hann væri þá búinn að krýna Breiðablik Íslandsmeistara sagði Jóhann baráttuna þó ekki vera búna.

„Er þetta ekki nokkuð jafnt? Þær hafa ákveðið forskot Blikarnir en við gerum ráð fyrir því að þetta sé langt komið, það eru ekki nema tveir leikir eftir en ég held að þær séu í bílstjórasætinu.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira