FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Smári Jökull Jónsson skrifar 4. október 2026 13:16 FH þarf á sigri að halda til að halda í við Breiðablik á toppi Bestu deildarinnar. Anton/Vísir FH vann öruggan 5-0 sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Kaplakrika í Bestu deild kvenna í dag. FH er þó áfram þremur stigum á eftir Breiðabliki í toppbaráttunni en tókst að laga markatölu sína með sigrinum stóra í dag. Leikurinn hófst af miklum krafti og á fyrstu tveimur mínútunum fengu bæði liðin tækifæri til að skora. Það leið ekki á löngu þar til fyrsta markið kom, það gerði Nia Raisa Christopher á 5. mínútu þegar hún kláraði vel í markhornið úr vítateignum. Aðeins tveimur mínútum seinna var hún síðan aftur á ferðinni. Sandra Voitane tapaði boltanum við endalínuna í eigin teig og Ingibjörg Magnúsdóttir kom boltanum fyrir markið. Þar átti Hrönn Haraldsdóttir misheppnað skot sem Nia náði á fjærstönginni og kom boltanum fram hjá Guðnýju Geirsdóttur í marki ÍBV. Eyjakonur vildu fá dæmda rangstöðu og Nia leit út fyrir að vera rangstæð en þar sem Sandra var enn þá á endalínunni eftir að hafa tapað boltanum þá spilaði hún hana réttstæða. FH fékk fleiri færi það sem eftir var af fyrri hálfleik og í eitt skipti varði Guðný Geirsdóttir afar vel þegar Hrönn komst í gott færi. Eyjakonur áttu líka hættulegar sóknir en það vantaði herslumuninn til að breyta þeim í alvöru færi. Avery Vanderven og Mackenzie Smith þurftu síðan báðar að fara af velli fyrir leikhlé eftir að hafa skallað saman í teignum. Báðar yfirgáfu þær völlinn vafðar um höfuðið en Eyjamenn á bekknum voru ósáttir við að fá ekki vítaspyrnu og vildu meina að Vanderven hefði verið á undan í boltann og Smith síðan tekið hann niður. Seinni hálfleikurinn hófst líkt og sá fyrri með marki frá FH. Það skoraði Helena Errington úr teignum þar sem hún var ein á auðum sjó og aftur var það Ingibjörg sem átti stoðsendinguna. Tólf mínútum síðar fullkomnaði Nia Christopher síðan þrennuna þegar hún kláraði afar vel fram hjá Guðnýju eftir sendingu Errington. Alvöru framherjamark. Úrslitin í leiknum voru auðvitað löngu ljós þarna. Bæði lið gerðu breytingar og Jón Ólafur Daníelsson þjálfari gerði meðal annars fjórfalda skiptingu um miðjan hálfleikinn. Hann fékk síðan rautt spjald fyrir mótmæli á bekknum þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir. Leikurinn virtist ætla að fjara hægt og rólega út eftir þetta en Nia Christopher bætti sínu fjórða marki við á lokasekúndum uppbótartímans. Lokatölur 5-0 og mikilvægur stórsigur FH staðreynd sem þar með tókst að laga markatöluna gagnvart keppinautum sínum í Breiðabliki. Lengi vel leit reyndar út fyrir að FH myndi lyfta sér á topp deildarinnar með þessum sigri þar sem Blikar lentu 3-0 og 4-1 undir gegn Þrótti í Kópavoginum. Blikar sneru hins vegar dæminu við og unnu að lokum 5-4 sigur í ótrúlegum leik og halda því þriggja stiga forskoti þegar tvær umferðir eru eftir. Atvik leiksins Þriðja mark FH í upphafi síðari hálfleiks kláraði leikinn í raun. ÍBV hafði átt sína sénsa í fyrri hálfleiknum og hefðu þær náð að minnka muninn í 2-1 er aldrei að vita hvað hefði gerst. FH skoraði hins vegar eftir rúmlega mínútu í síðari hálfleiknum og gerði út um vonir Eyjakvenna um að ná einhverju úr leiknum. Stjörnur og skúrkar Nia Raisa Christopher er stórstjarna þessa leiks. Hún skoraði fjögur af fimm mörkum FH og er komin með tólf mörk í Bestu deildinni. Þetta var frábær frammistaða hjá henni og gríðarlega mikilvægt fyrir FH að hún haldist heit í pásunni sem fram undan er áður en síðustu tvær umferðirnar verða spilaðar. Þá er vert að minnast á frammistöðu Ingibjargar Magnúsdóttur á hægri kantinum. Hún lagði upp tvö mörk, átti þátt í því þriðja og var sífellt ógnandi. Það er erfitt að taka til einhvern einn skúrk í dag, FH-liðið spilaði vel og Eyjakonur spiluðu heilt yfir ekki nægilega vel. Dómarinn Það er þetta atvik í fyrri hálfleik þegar Avery Vanderven og Mackenzie Smith meiðast. Vanderven er klárlega á undan í boltann þegar hún fær Smith á sig. Þetta var ekkert viljaverk en Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV sagði í viðtali eftir leik að í hans huga hafi verið um vítaspyrnu að ræða. Þá vildi hann einnig fá víti fyrir hendi í teignum fyrr í leiknum. Við látum sérfræðingana um að meta þetta en frammistaða dómara er vissulega alltaf metin út frá því hvort þeir dæmi rétt í stóru atriðum leikjanna. Stemmning og umgjörð Það var ágætis mæting hjá stuðningsmönnum FH í dag og umgjörðin fín sömuleiðis. FH á í harðri baráttu um titilinn og vonandi að Hafnfirðingar fylki sér á bak við liðið fyrir tvær síðustu umferðirnar í deildinni. „Þetta lítur bara ennþá fínt út fyrir FH-liðið“ Guðni Eiríksson þjálfari FH var vitaskuld himinlifandi eftir sigurinn á ÍBV. Hann nefndi sérstaklega fimmta mark liðsins í uppbótartíma enda FH í baráttu við Breiðablik þar sem markatalan gæti ráðið úrslitum. „Fimmta markið skiptir okkur bara miklu máli, það var gott að sjá það inni og gott að halda hreinu. Við skorum fimm góð mörk og ég gæti ekki verið sáttari,“ sagði Guðni í viðtali eftir leik. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, fylgist grannt með.vísir/Guðmundur Nia Raisa Christopher skoraði fjögur af fimm mörkum FH í leiknum og spilaði frábærlega. „Hún er frábær í fótbolta og þegar hún er á sínum degi þá er hún hrikalega góð. Hún er búin að eiga virkilega góðar frammistöður í síðustu leikjum og ef hún heldur svona áfram erum við í fínum málum þarna fram á við.“ FH og Breiðablik eiga í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn en Blikar unnu í dag 5-4 sigur á Þrótti í dag eftir ótrúlega endurkomu en Þróttur komst bæði í 3-0 og 4-1 í leiknum. Er svekkjandi að vita hvernig sá leikur endaði í ljósi þess hvernig hann þróaðist? „Bara frábært hjá Breiðablik að snúa stöðunni úr 4-1 í 5-4 sigur, bara vel gert hjá þeim. Það er lítið sem við getum gert í því annað en að fókusera á okkur. Þetta lítur bara ennþá fínt út fyrir FH-liðið.“ Tveir leikir eru eftir af deildinni en framundan er stutt pása vegna landsleikja og næsta umferð ekki spiluð fyrr en 18. október. „Við munum nýta pásuna vel. Eins og ég sagði fyrir leik þá var þetta fimmti leikurinn á sautján dögum þannig að það var alveg þreyta í leikmönnum. Við hvílum lúin bein núna og leikmenn fá aðeins að anda og svo er bara að einbeita sér að næsta leik,“ bætti Guðni við. Klári FH-ingar og Blikar sína leiki í næstu umferð verður úrslitaleikur um titilinn í lokaumferðin þar sem liðin mætast í Kópavoginum. „Þetta er bara þannig að við þurfum að hugsa um okkur. Breiðablik er með þremur stigum meira en við en við eigum eftir að mæta þeim. Það er samt bara næsti leikur sem er þá framundan á móti Þrótti hér á heimavelli og við þurfum að byrja á því að klára hann.“ Guðni býst ekki við að það verði krefjandi að fá leikmenn til að hugsa ekki út í mögulegan úrslitaleik. „Þetta er þannig að það verður ekkert vandamál í þann skilning að það er bara næsti leikur sem skiptir máli. Við þurfum að horfa á það þannig, það er bara einn leikur í einu og næsti leikur er úrslitaleikur. Ef við vinnum hann er næsti leikur þar á eftir úrslitaleikur. Við getum ekki horft tvo leiki fram í tímann, við höfum ekki efni á því,“ sagði Guðni að lokum. „Gaman að ná að gera það aftur“ Nia Raisa Christopher skoraði fjögur mörk í sigri FH í dag og var vitaskuld ánægð eftir leik. „Við erum að reyna að vinna deildina þannig að þetta er mjög mikilvægur sigur,“ sagði Nia í viðtali eftir leik og viðurkenndi að það væri aðeins svekkjandi að vita hvernig leikur Breiðabliks og Þróttar þróaðist. „Það voru ekki úrslitin sem við vildum en við höldum bara áfram og einbeitum okkur að okkar leik.“ Nia í baráttunni í leik gegn ÍBV fyrr í sumar.Vísir/Guðmundur Nia segist hafa skorað fjögur mörk í leik áður en að tilfinningin væri engu að síður góð. „Já, hún er góð. Það er svolítið langt síðan ég skoraði fjögur mörk svo það er gaman að ná að gera það aftur.“ Hún býst við spennu allt til loka Bestu deildarinnar. „Ég held það, þetta eru tvö góð lið. Þetta er mjög jafnt og verður spennandi. Við mættum í þennan leik og vissum að við þyrftum að vinna og að það væri markamunur sem við þurftum að vinna upp. Þetta var mikilvægt og við erum ánægðar.“ Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna FH ÍBV