Valgerður réttir fram sáttahönd Eiður Þór Árnason skrifar 30. september 2026 18:37 Valgerður Rúnarsdóttir hætti nýverið störfum sem framkvæmdastjóri lækninga. Vísir/Arnar Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, mun snúa aftur til starfa um óákveðinn tíma. Um tímabundna ráðstöfun sé að ræða til að tryggja vinnufrið við endurskoðun samnings SÁÁ við Sjúkratryggingar sem Valgerður bindur vonir við.
Hún fer ekki fram á afsögn formanns og framkvæmdastjórnar SÁÁ líkt og margir starfsmenn hafa krafist en vill sjá skýrari línur dregnar milli stjórna SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar. Valgerður sagði nýverið starfi sínu lausu eftir brotthvarf þáverandi forstjóra SÁÁ sem Valgerður sakar framkvæmdastjórn um að hafa bolað úr starfi. Þá hefur hún sakað sömu stjórn um óeðlileg afskipti af faglegri heilbrigðisstarfsemi SÁÁ. RÚV greindi fyrst frá endurkomu Valgerðar. Hún sé tímabundin. „Svo sjáum við í raun og veru hvernig stefna verður tekin. Það er ekkert komin nein tímasetning á það. Það er svo margt að gerast, það gerist eitthvað á hverjum degi,“ segir Valgerður í samtali við Vísi. Sagði upp eftir um tvær vikur Jón Áki Jensson tók við af Valgerði sem framkvæmdastjóri lækninga en hann sagði upp störfum um tveimur vikum eftir að hann var ráðinn til SÁÁ. Heilbrigðisstofnanir samtakanna hafa glímt við mikinn mönnunarvanda og hafa læknar á Vogi verið í leyfi frá störfum. Jón sagði við Vísi í síðustu viku að hann væri eini starfandi sérfræðilæknirinn á Sjúkrahúsinu Vogi. Valgerður segist hafa boðið fram aðstoð sína í gær og hægt sé að líta á hana sem útrétta sáttahönd. Harðvítugar deilur hafa átt sér stað innan SÁÁ síðustu vikur milli stjórnenda og starfsfólks meðferðarsviðs annars vegar og formanns, framkvæmdastjórnar og aðalstjórnar SÁA hins vegar. Meðal annars er deilt um það hvaða afskipti stjórnir SÁÁ megi hafa af faglegu starfi sem fjármagnað er af Sjúkratryggingum. Mikilvægar breytingar í farvatninu „Ég vildi gefa kost á því af því að það hefur margt gerst undanfarna daga. SÁÁ, [Sjúkratryggingar Íslands] SÍ og yfirvöld eru að tala saman um ákveðnar breytingar. Það þarf að tryggja að það sé allt í góðu lagi í meðferðinni á meðan og ég ætla að leggja mitt af mörkum þar.“ Vel hafi verið tekið í þetta boð, að sögn Valgerðar. „Það voru allir þakklátir því. Þetta er ekki búið að vera gott en það hafa orðið breytingar sem eru mikilvægar fyrir framtíðina.“ Þar vísar hún til yfirlýsingar þess efnis að SÁÁ og Sjúkratryggingar hafi náð saman um að endurskoða samning sinn til að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu SÁÁ, líkt og það var orðað í yfirlýsingu. Valgerður telur að hlutaðeigandi aðilar þurfi nú frið til þess að klára þessa endurskoðun. Valgerður snýr aftur til vinnu á föstudag og þurfti að stytta dvöl sína í Rotterdam. Hún kveðst vera spennt fyrir því að snúa aftur til starfa og hitta samstarfsfólk sitt. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Sjá meira