„Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 29. september 2026 12:00 Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, er vonsvikinn. vísir/egill Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir stöðuna innan SÁÁ mikil vonbrigði. Vonir hefðu verið bundnar við að átakasaga innan samtakanna væri að baki. Forstjóri Landspítalans og forstjóri SÁÁ funda um hvort og hvernig Landspítalinn geti stigið inn í deilurnar innan samtakanna sem hafa valdið ólgu í faglegu starfi síðustu vikur.
Mikil ólga hefur ríkt innan SÁÁ undanfarna mánuði og hafa ýmsir stjórnendur sagt starfi sínu lausu og gagnrýnt stjórn SÁÁ fyrir meint afskipti af faglegu starfi. Sjúkratryggingar og SÁÁ náðu á dögunum samkomulagi um að endurskoða samning sem var undirritaður á síðasta ári til að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu sem félagið heldur úti. Vondar fréttir haldi áfram að berast Jón Áki Jensson, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, sagði upp störfum í gær en hann var ráðinn tímabundið í stöðuna fyrir tveimur vikum eftir að Valgerður Rúnarsdóttir sagði upp störfum sem yfirlæknir. Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, tekur stöðuna alvarlega. „Þetta eru náttúrulega bara enn ein vondu tíðindin af þessu máli og það er náttúrulega alveg ljóst að það er erfitt fyrir nýtt fólk að koma inn í þessa stöðu og taka til starfa við þessar aðstæður.“ Hann vonast til þess að Landspítalinn geti stigið inn í með einhverju móti. „Það er alveg ljóst að það væri nú æskilegt, eins og staðan er orðin, að Landspítalinn gæti lagt SÁÁ lið. Það er náttúrulega líka þannig að ef ástandið heldur áfram að vera eins og það er eða jafnvel versnar að þá mun verulegur hluti vandans flytjast yfir á Landspítalann. Hann mun verða fyrir áhrifum hvort sem hann kemur til aðstoðar eða ekki.“ Voru með væntingar um að átakasaga væri að baki SÁÁ óskar eftir aðstoð við mönnun frá Landspítalanum. Mönnunarvandi og skert starfsemi hafa einkennt starfsemi SÁÁ vegna deilnanna. Sigurður segir stöðuna mikil vonbrigði en SÁÁ og SÍ undirrituðu nýjan samning í desember sem tryggir samtökunum tvo milljarða frá ríkinu til næstu fjögurra ára. „Auðvitað eru þetta mikil vonbrigði að við skulum vera komin á þennan stað. Það voru allir aðilar sammála um að við hefðum náð góðum samningi sem væri góður grundvöllur til þess að þróa starfsemina enn frekar. Við höfðum líka væntingar um það að þessi átakasaga sem hefur fylgt starfsemi SÁÁ væri að baki. Það eru náttúrlega vonbrigði að svo hafi ekki reynst vera.“ Í gildandi samningi milli SÁÁ og Sjúkratrygginga er ákvæði um að SÍ geti krafið SÁÁ um úrbætur innan ákveðins tímaramma ef starfsemin er ekki í samræmi við efni umrædds samnings. Spurður hvort það sé til skoðunar að beita umræddu ákvæði segir Sigurður: „Auðvitað kemur alltaf til greina að gera það. Nú er það þó þannig að stjórnendur SÁÁ eru á fullu í leit að lausn. Það liggur ekki alveg ljóst fyrir að virkjun á slíku formlegu umhverfi muni veita þeim einhvern meiri hvata til að gera meira. Virkjun á svona ákvæði eitt og sér skapar engar lausnir. Við munum halda áfram að vakta stöðuna og vera í samtali við forsvarsmenn SÁÁ og síðan sjáum við hvort beiting þessa úrræðis geti gert gagn í stöðunni.“
SÁÁ Landspítalinn Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira