Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Sindri Sverrisson skrifar 25. september 2026 13:32 Arnar Gunnlaugsson skaut aðeins á kynslóð fyrirliðans Orra Steins Óskarssonar sem þó verður seint sakaður um að vera eitthvað annað en ósérhlífinn. Samsett/Getty Það var létt yfir Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara en þó alvarlegur undirtónn þegar hann ræddi um áhrif fótboltahallanna á íslenskan fótbolta. Arnar sagði Íslendinga hafa misst svolítið af hörkunni sem þeir höfðu fyrir tíma hallanna.
Þetta sagði Arnar á blaðamannafundi í dag fyrir leik Íslands við Eistland á morgun í Þjóðadeildinni. Blaðamaður frá Eistlandi tjáði Arnari að Eistlendingar hefðu í mörg ár litið til Íslands og fótboltahallanna hér sem talið væri að hefðu hjálpað Íslendingum að slá í gegn á EM 2016 og HM 2018. „Hallirnar höfðu mikil áhrif á okkar þróun. Við eigum núna leikmenn sem búa yfir meiri tækni og þetta hjálpaði mikið hvað það varðar. Núna geta allir verið með boltann. En það þarf að blanda þessu saman. Við misstum kannski svolítið af hörkunni sem við höfðum áður,“ sagði Arnar í lauslegri þýðingu blaðamanns. „Mín kynslóð æfði úti í öllum veðrum en kynslóðin í dag vill kannski frekar fara inn og hafa það notalegt þar. Fá sér glas af volgri mjólk eftir æfingu. Það eru kostir og gallar við þetta en heilt yfir hafði þetta frábær áhrif á okkur sem fótboltalið. En við erum enn að reyna að finna töfraformúluna til að fá þessa aukahörku aftur,“ sagði Arnar. Orri Steinn Óskarsson, hinn 22 ára gamli fyrirliði Íslands, sat fundinn og hló létt að ummælum Arnars í viðtali við Sýn að fundi loknum. „Þetta er galið, að skjóta svona á okkar kynslóð,“ sagði Orri léttur en bætti strax við: „Nei, nei. Það er alveg hægt að skilja þetta. Við erum búin að byggja betri og flottari hallir, og lífið er orðið auðveldara en það var í gamla daga. Það er engin vitleysa.“ Til marks um það þá æfðu Orri og félagar innandyra í gær, lausir við áhrif fyrstu haustlægðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. „Það eru auðvitað kostir og gallar. Maður vill helst vera á grasi allan tímann en vindurinn gerði svo erfitt fyrir í gær. Það er partur af því að koma til Íslands. Veðrið er óútreiknanlegt og við þurfum að eiga við það.“
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir Arnar og Orri sátu fyrir svörum daginn fyrir fyrsta leik Þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir fyrsta leik Íslands á nýrri leiktíð í Þjóðadeildinni í fótbolta. Bein útsending var á Vísi. 25. september 2026 12:16 Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Leik lokið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Fleiri fréttir Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Sjá meira
Arnar og Orri sátu fyrir svörum daginn fyrir fyrsta leik Þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir fyrsta leik Íslands á nýrri leiktíð í Þjóðadeildinni í fótbolta. Bein útsending var á Vísi. 25. september 2026 12:16