Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Samúel Karl Ólason skrifar 24. september 2026 11:40 Jeppe Bruus varnarmálaráðherra er hér fyrir miðju. Vinstra megin við hann, í forgrunni, er Thomas Ahrenkiel yfirmaður leyniþjónstu danska hersins og hægra megin er Michael Hyldgaard, æðsti herforingi Danmerkur. EPA/IDA MARIE ODGAARD Rússar eru líklegir til að gefa í þegar kemur að skuggastríði þeirra gegn Evrópu og að framkvæma fleiri fjölþáttaárásir á komandi mánuðum. Tölvuárásir, drónaárásir og skemmdarverk eru meðal þess sem kemur til greina en einhvers konar innrás í NATO-ríki þykir mjög ólíkleg.
Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Jeppe Bruus varnarmálaráðherra, Thomas Ahrenkiel yfirmanni leyniþjónustu danska hersins og Michael Hyldegaard æðsta herforingja Danmerkur í dag. Þar töluðu þeir um nýtt áhættumat leyniþjónustunnar og helstu niðurstöður þess. Bruus sagði á einum tímapunkti á fundinum að öryggisástandið í Danmörku hefði ekki verið svo slæmt frá tímum kalda stríðsins. „Sem borgarar verðum við að vera meðvitaðir um þróunina sem er að eiga sér stað, bæði hér í Danmörku og í Evrópu. Við verðum einnig að vera meðvitaðir um auknar aðgerðir Rússa og ógnina sem gæti leitt til alvarlegra atburða hér í Danmörku.“ Undanfarnar vikur hafa ítrekað borist fregnir af því að ráðamenn í Evrópu hafi áhyggjur af því að Rússar ætli sér að gera frekari árásir í Evrópu. Þessi umræða hefur aukist töluvert eftir að yfirvöld í Þýskalandi sökuðu Rússa um að bera ábyrgð á sjálfsprengidrónum á flugvellinum Leipzig/Halle. Sjá einnig: Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Meðal þess sem Danir segja að komi til greina hjá Rússum er að nota handsamaða úkraínska dróna til árása á NATO-ríki. Rússar gætu einnig notað eigin dróna til slíkra árása, samkvæmt áhættumatinu. Bruus tók sérstaklega fram á fundinum að ekki væri talið líklegt að Rússar ætluðu sér að gera annars konar árásir en fjölþáttaárásir á skotmörk í Danmörku, samkvæmt frétt Danska ríkisútvarpsins. Stutt er síðan áhöfn rússneskrar freigátu skaut blysum að danskri þyrlu Sjá einnig: Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Áhættumatið danska er nokkuð í takti við ummæli áðurnefndra evrópskra ráðamanna. Eins og DR bendir á sagði Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, nýlega að Rússar gætu notað dróna eða eldflaugar til árása innan landamæra NATO-ríkja á næstu mánuðum. Í áhættumatinu sjálfu segir að litlar líkur séu á árásum Rússa á annað nágrannaríki sitt en líkurnar fari vaxandi. Ahrenkiel sagði á fundinum í morgun að slíkar árásir gætu falist í notkun dróna eða eldflauga gegn innviðum sem notaðir eru til stuðnings Úkraínumönnum. Einnig kæmi til greina að Rússar notuðust við úkraínsk vopn til að grafa undan stuðningi við Úkraínu. Þá kæmi til greina að Rússar sendu hermenn að landamærum NATO-ríkis, eða yfir þau, undir því yfirskyni að vernda rússneskumælandi fólk þar. „Markmiðið yrði ekki að taka yfir landið, heldur að sundra NATO.“ Ráðamenn í Eystrasaltsríkjunum hafa hins vegar kallað eftir ró og segja lítið benda til þess að Rússar hafi nokkurn áhuga á að ráðast á NATO að svo stöddu. Þeir segja þó, eins og aðrir, að Rússar muni halda fjölþáttaárásum sínum í Evrópu áfram án þess þó að beita berum hernaði. Basl á Rússum í Úkraínu Á fundinum kom einnig fram að mat Dana á gangi Rússa í Úkraínu væri á þann veg að litlar líkur væru á því að rússneskir hermenn brytu sér leið gegnum varnir Úkraínumanna á næstunni. Rússneskir hermenn væru í verri stöðu en þeir hefðu verið áður í stríðinu. Að mannfall meðal rússneskra hermanna væri gífurlega mikið fyrir litla landvinninga. Á sama tíma séu Úkraínumenn að valda sífellt meira tjóni með árásum sínum í Rússlandi og að efnahagsástandið í Rússlandi verði sífellt verra. Í máli þrímenninganna kom einnig fram að áframhaldandi stuðningur sé nauðsynlegur fyrir Úkraínumenn.
Danmörk Rússland Hernaður Vladimír Pútín Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir gögn frá pólsku leyniþjónustunnar sýna að Rússar hafi áætlað fjölþáttaárásir gegn löndum sem styðja við Úkraínu, þar á meðal Póllandi. Rússland hyggist láta fyrirhugaða árás líta út fyrir að vera óhapp. 17. september 2026 16:40 Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Saksóknarar í Bandaríkjunum opinberuðu í gær ákærur gegn fimm mönnum sem grunaðir eru um að ætla sér að skipuleggja fjölþáttaógnir í Evrópu og framkvæma launmorð í Bandaríkjunum, fyrir hönd rússneskrar leyniþjónustu. Mennirnir mynda hóp sem kallaður er RIS og hafa þeir reynt að ráða aðra gegnum netið til að gera árásir fyrir þeirra hönd. 16. september 2026 11:17 Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Norðmenn, Bretar og Bandaríkjamenn stöðvuðu Rússa við æfingar á nýju leynivopni sem hannað er til að skera á sæstrengi nærri Svalbarða í vor. Vopn þetta er borið af kafbátum og á að geta skorið á sæstrengi á gífurlegu dýpi, án þess að skilja eftir ummerki um hver hefði verið þar að verki. 10. september 2026 23:16 Rússar svara fyrir sig Utanríkisráðuneyti Rússlands tilkynnti í dag að ræðismannsskrifstofu Þýskalands í Pétursborg yrði lokað. Þar að auki yrði Þjóðverjum gert að loka þýskum menningarsetrum í Moskvu og Pétursborg. Með þessu eru Rússar að svara með nánast sams konar aðgerðum og Þjóðverjar beittu Rússa á dögunum. 7. september 2026 17:52 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira
Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir gögn frá pólsku leyniþjónustunnar sýna að Rússar hafi áætlað fjölþáttaárásir gegn löndum sem styðja við Úkraínu, þar á meðal Póllandi. Rússland hyggist láta fyrirhugaða árás líta út fyrir að vera óhapp. 17. september 2026 16:40
Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Saksóknarar í Bandaríkjunum opinberuðu í gær ákærur gegn fimm mönnum sem grunaðir eru um að ætla sér að skipuleggja fjölþáttaógnir í Evrópu og framkvæma launmorð í Bandaríkjunum, fyrir hönd rússneskrar leyniþjónustu. Mennirnir mynda hóp sem kallaður er RIS og hafa þeir reynt að ráða aðra gegnum netið til að gera árásir fyrir þeirra hönd. 16. september 2026 11:17
Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Norðmenn, Bretar og Bandaríkjamenn stöðvuðu Rússa við æfingar á nýju leynivopni sem hannað er til að skera á sæstrengi nærri Svalbarða í vor. Vopn þetta er borið af kafbátum og á að geta skorið á sæstrengi á gífurlegu dýpi, án þess að skilja eftir ummerki um hver hefði verið þar að verki. 10. september 2026 23:16
Rússar svara fyrir sig Utanríkisráðuneyti Rússlands tilkynnti í dag að ræðismannsskrifstofu Þýskalands í Pétursborg yrði lokað. Þar að auki yrði Þjóðverjum gert að loka þýskum menningarsetrum í Moskvu og Pétursborg. Með þessu eru Rússar að svara með nánast sams konar aðgerðum og Þjóðverjar beittu Rússa á dögunum. 7. september 2026 17:52