Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Agnar Már Másson skrifar 20. september 2026 15:16 Macron, Carney og Trump munu allir sækja Allsherjarþing sameinuðu þjóðanna í New York. Þeir hittust seinast allir þrír á G7-leiðtogafundi í sumar. Samsett/Getty Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti heimsækir í dag Sankti Pierre og Miquelon, sem er eyjaklasi og franskt yfirráðasvæði undan Atlantshafsströnd Kanada, þar sem hann mun ræða við Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í dag áður en þeir halda báðir á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York á morgun. Eins og greint var frá 7. september birti Trump landakort á samfélagsmiðlinum Truth Social sem sýndi bandaríska fánann þekja Bandaríkin, Kanada, Grænland, Ísland, Mexíkó, Mið-Ameríku og Karíbahafið og náði meðal annars yfir Saint Pierre og Miquelon auk franskra yfirráðasvæða í Karíbahafi. Reuters greinir frá en tæplega sex þúsund manns búa í Sankti Pierre og Miquelon, sem er eina yfirráðasvæði Frakklands sem eftir er í Norður-Ameríku. Sögðu franskir embættismenn að ferð Macrons ætti meðal annars að leggja áherslu á fullveldi Frakklands. Heimsókn Macrons til eyjaklasans er sú fyrsta sem franskur forseti fer í síðan 2014 en jafnframt hafa Kanadamenn leitast við að efla tengsl við Evrópusambandið í skugga viðskiptastríðs við Bandaríkin. „Það er enginn vafi [um að landsvæðið er franskt],“ sagði Macron eftir að hafa lent seint í gær. „Við ætlum ekki að staðfesta það á hverjum degi bara vegna þess að fólk fær undarlegar hugmyndir eða segir undarlega hluti,“ bætti hann svo við í samtali við fréttamenn er hann svaraði spurningu um landakortið. Frönsk stjórnvöld brugðust ekki opinberlega við færslunni á sínum tíma. Reuters hefur eftir erindrekum að heimsókn Macrons hefði táknrænt gildi vegna færslu Trumps. Embættismaður frá frönsku forsetaskrifstofunni sagði við fréttamenn í dag að Saint Pierre og Miquelon gegndu mikilvægu hlutverki hvað varnarmál Frakka varðaði vegna staðsetningar sinnar milli Bandaríkjanna og norðurslóða. Yfirráðasvæðið gegnir einnig stóru hlutverki í samvinnu Frakklands við Kanada, meðal annars í orkumálum. Leiðtogarnir tveir munu, að sögn erindreka, einnig ræða tengsl Kanada við ESB eftir að sambandið bauð Kanada að verða fyrsti aukaaðili sambandsins.
Kanada Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Frakkland Utanríkismál Donald Trump Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira