Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Sindri Sverrisson skrifar 29. ágúst 2026 21:32 Julian Alvarez er enn leikmaður Atlético Madrid en það gæti breyst fyrir þriðjudagskvöld. Getty/Angel Martinez Alex Baena sá til þess að Sevilla-menn yrðu teknir til bæna þegar hann skoraði tvö mörk fyrir Atlético Madrid í 3-1 útisigri liðsins í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Julian Alvarez var hvergi sjáanlegur en tíminn er að renna út ætli Arsenal að landa honum.
Alvarez hefur verið eitt aðalumræðuefni félagaskiptagluggans í sumar en glugganum verður lokað á þriðjudaginn. Atlético harðneitar að selja hann til Barcelona en er opið fyrir því að selja kappann til Arsenal. Hins vegar sagði David Ornstein, blaðamaður The Athletic, á TNT Sports í dag að Alvarez hefði þegar rætt við Mikel Arteta, stjóra Arsenal, og sagt honum að hann vildi ekki koma til Arsenal. Ornstein bætti því þó við að skoðun Alvarez gæti enn breyst í ljósi þess að Atlético ætlaði ekki að hleypa honum til Barcelona. „Svona staða getur alltaf breyst mjög snögglega,“ sagði Ornstein. "He’s spoken to Mikel Arteta and said he doesn’t want to come." 👀@David_Ornstein with the latest on Arsenal’s pursuit of Julian Alvarez.🎙️ @OliviaBuzaglo | 📺 Watch live on TNT Sports & HBO Max pic.twitter.com/VEYpXGynEq— Football on TNT Sports (@footballontnt) August 29, 2026 Marca sagði svo í dag að fyrrverandi vinnuveitendur Alvarez í Manchester City hefðu sýnt áhuga á að fá leikmanninn til sín að láni. Samherjar Alvarez í Atlético létu málið ekki trufla sig í kvöld og fjarvera hans kom ekki í veg fyrir góðan sigur. Baena kom Atlético yfir á 4. mínútu og Ademola Lookman bætti við öðru á 26. mínútu, skömmu áður en Baena skoraði seinna mark sitt. Miguel Sierra minnkaði muninn um miðjan seinni hálfleik en það dugði skammt fyrir heimamenn. Atlético hefur þar með fengið sjö stig úr fyrstu þremur umferðunum á Spáni en Sevilla sex stig.
Enski boltinn Spænski boltinn Arsenal FC Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Sjá meira