Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2026 09:01 Álex Calatrava fagnar eftir að hafa jafnað fyrir Espanyol gegn stjörnum prýddu liði Real Madrid. getty/Javier Borrego Ekki er annað hægt að segja en að líf spænska fótboltamannsins Álex Calatrava hafi breyst mikið á síðustu árum. Hann upplifir nú drauminn í spænsku úrvalsdeildinni en ekki er langt síðan hann vaknaði eldsnemma á morgnana til að mæta í vinnuna í Primark.
Espanyol festi kaup á Álex Calatrava, eða Cala eins og hann er jafnan nefndur, fyrir um fimm milljónir evra í sumar. Kantmaðurinn þreytti frumraun sína í spænsku úrvalsdeildinni í gær og skoraði í naumu tapi fyrir Real Madrid, 1-2. Þetta var fyrsti keppnisleikur Real Madrid undir stjórn Josés Mourinho síðan hann sneri aftur til félagsins, þrettán árum eftir að hafa verið hjá því síðast. Cala er Katalóni og var tvö ár í La Masia, hinni margrómuðu unglingaakademíu Barcelona. Hann náði ekki í gegn þar en gekk seinna í raðir Horta. Þar spilaði hann sinn fyrsta leik með aðalliði félagsins þegar hann var aðeins sautján ára. Cala fór svo til Sant Andreu og spilaði þar með yngri liðum félagsins. Síðan tók við flakk um neðri deildirnar á Spáni. Meðan Cala lék með Parets í sjöundu efstu deild vann hann í Primark og lagði stund á verkfræðinám. Cala var ekki með bílpróf á þessum tíma og faðir hans þurfti að keyra hann eldsnemma að morgni í vinnuna. Eftir vinnudaginn fór hann í skólann og þaðan á æfingu með Parets. Cala í baráttunni við Kylian Mbappé, markakóng tveggja síðustu heimsmeistaramóta.getty/Diego Souto Frammistaða Cala með Parets vakti athygli D-deildarliðs Sants og hann samdi við það 2020. Þaðan fór hann til C-deildarliðs Costa Brava og síðan í varalið Atlético Madrid. Eftir tvö ár þar nældi Castellón, nýliðar í B-deildinni, í Cala og þar fór ferillinn á mikið flug. Á síðasta tímabili skoraði Cala fimmtán mörk í B-deildinni. Castellón komst í umspil um sæti í spænsku úrvalsdeildinni en tapaði fyrir Almería, 4-3 samanlagt. Cala tók hins vegar stökkið upp í úrvalsdeildina því Espanyol keypti hann í sumar. Félagið hafði einnig augastað á honum í fyrra en lét vaða í sumar og Cala er strax byrjaður að borga til baka. Espanyol er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leiki sína í spænsku úrvalsdeildinni. Næsti leikur liðsins er gegn Orra Steini Óskarssyni og félögum í Real Sociedad á útivelli næsta laugardag.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira