Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Lovísa Arnardóttir skrifar 7. ágúst 2026 20:02 Marciano og Draper á viðburði í maí. Til hægri má sjá flúrið sem hann fékk sér. Vísir/EPA og Instagram Marciano Brunetti, raunveruleikastjarna úr þáttunum Vanderpump Villa, hefur nú varanlega merkt sig Jessi Draper, úr raunveruleikaþáttunum Secret Lives of Mormon Wives. Draper og Brunetti hafa verið að hittast síðustu vikur, allt frá því að sú fyrrnefnda tilkynnti um skilnað. Það styttist í næstu seríu mormónakvennanna.
Brunetti fékk sér lítið J og hjarta með tattúverað á vinstri úlnlið sinn og svo virðist sem hann hafi gert það alveg óvænt. Brunetti birti myndband þann 5. ágúst með þeim skilaboðum að hann væri að sækja um að verða kærastinn hennar. View this post on Instagram A post shared by Marciano (@marcianob) Draper virtist nokkuð hissa í myndbandinu og segir í athugasemd við það að hún trúi þessu varla enn. Draper og Brunetti hafa ekki sagst vera par opinberlega en hafa varið miklum tíma saman undanfarna mánuði og hafa, til dæmis, farið saman í Disney World og á tónleika með Hillary Duff. Fjallað er um þetta á E-News. Parið átti í sambandi fyrir skilnað Draper en hafa alltaf sagt framhjáhaldið aðeins hafa verið tilfinningalegt. Eftir að Draper tilkynnti svo um skilnað sinn hafa þau verið að hittast. Málið mun væntanlega skýrast þegar næsta sería Secret Lives of Mormon Wives verður sýnd en hennar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu. Fjallað var um það á vef Deadline í vikunni að búið væri að semja við konurnar um að gera tuttugu þætti til viðbótar, tvær seríur, en enn hefur ekki verið tilkynnt um það hvenær sú fimmta verður frumsýnd. Líklega verður það með haustinu. Þó liggur fyrir að serían verði styttri en þær fyrri en tökur voru skyndilega stöðvaðar í vor þegar Taylor Frankie Paul, ein kvennanna sem koma fram í þáttunum, var sökuð um heimilisofbeldi. Hún hefur frá þeim tíma átt í forsjárdeilu við sinn fyrrverandi og var Bachelorette-seríu sem hún átti að vera í aflýst skyndilega í mars vegna málsins. Tökur hófust á ný í apríl á raunveruleikaþáttunum um mormóna-skvísurnar en samkvæmt Deadline verður serían aðeins fimm þættir í stað tíu. Þó nokkrar breytingar eru að öllum líkindum á þátttakendum þar sem Demi Engemann verður ekki áfram og Whitney Leavitt hefur tilkynnt að hún sé hætt. Óskýrt er hvort hún sé í fimmtu seríu eða ekki. Þá hefur verið gefið út að Jennifer Affleck sé flutt til Kaliforníu og ætli sé að vera í samskonar þáttum sem fjalla um eiginkonur mormóna í Los Angeles. Ekki hefur komið fram nákvæmlega hvert hlutverk Paul verður í seríunni.
Hollywood Raunveruleikaþættir Húðflúr Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira