Mexíkó og Argentína styðja Infantino Valur Páll Eiríksson skrifar 7. ágúst 2026 10:30 Infantino nýtur stuðnings frá Argentínu og Mexíkó. Finnist sterkur frambjóðandi til að bjóða sig fram gegn Infantino í mars stefnir í harða kosningabaráttu. Florencia Tan Jun/Getty Images Barátta Gianni Infantino fyrir framtíð sinni á forsetastóli FIFA virðist rétt að byrja. Hann hlýtur aukinn stuðning í kjölfar neyðarfundar meðal stjórnenda FIFA í vikunni.
Tvö knattspyrnusambönd, frá Argentínu og Mexíkó, gáfu út stuðningsyfirlýsingu í gær og styðja Infantino til áframhaldandi setu á forsetastóli. Mexíkóska sambandið fer gegn samstöðu innan eigin álfusambands, en CONCACAF, knattspyrnusamband Norður-Ameríku og Karíbahafsins hafði gefið út yfirlýsingu þar sem kallað er eftir breytingum á starfsháttum FIFA. Í gær lýsti Knattspyrnusamband Afríku, CAF, yfir stuðningi allra ríkjasambanda álfunnar við Infantino. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ítrekaði hótun um að sniðganga mót á vegum FIFA ef breytingar yrðu ekki hjá FIFA. Asíska knattspyrnusambandið, AFC, segist standa með UEFA og CONCACAF í málinu. CONMEBOL, samband Suður-Ameríku, gaf út yfirlýsingu í gær þar sem það í raun skilaði inn auðu. Talað var gegn öllum aðgerðum til að koma Infantino frá völdum, sem færu fram með öðrum hætti en kosningu á meðal 211 aðildarríkja FIFA. Sú kosning fer fram á allsherjarþingi FIFA í mars á næsta ári en mögulegir forsetaframbjóðendur þurfa að skrá framboð sitt í síðasta lagi í nóvember. Ýmsir aðilar og sambönd hafa kallað eftir afsögn Infantinos strax vegna málsins. Þess er vísað til í yfirlýsingu CONMEBOL, varðandi kjörið á allsherjarþinginu í mars. Mexíkóska knattspyrnusambandið, FMF, og argentínska knattspyrnusambandið, AFA, hafna því að Infantino stígi til hliðar strax og styðja hann til áframhaldandi setu á stóli. „FMF mun hvorki viðurkenna né samþykkja neitt ferli sem boðað er til utan þessa stofnanalega ramma,“ segir í yfirlýsingu mexíkóska sambandsins, þar sem ákalli eftir afsögn Infantino utan kosninga er því hafnað. „FMF styður forystu Infantino forseta í að halda áfram að efla þróun fótboltans með því að styrkja stofnanir.“ Eftir fund í Rabat í þessari viku sagði FIFA að það hefði beðið meðlimi sambandsins afsökunar fyrir mistök varðandi tillöguna um að selja hluta af viðskiptalegri framtíð HM. Það lofaði einnig að endurskoða ferlana sem leiddu til deilunnar. Í bréfi til Infantino lýsti argentínska knattspyrnusambandið (AFA) yfir stuðningi sínum við starf FIFA síðustu tíu ár og sagði að FIFA hefði „einbeitt sér að þróun knattspyrnu um allan heim og stofnanalegum styrk byggðum á skýru, stöðugu og gagnsæju stjórnunarlíkani“. Þótt AFA viðurkenndi að tillagan skapaði mun meiri óvissu en vissu og að mistök hefðu verið gerð, sagði það að leiðin fram á við væri að halda áfram að vinna undir forystu FIFA fyrir þingið á næsta ári.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira