UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Valur Páll Eiríksson skrifar 1. ágúst 2026 12:00 Gianni Infantino, forseti FIFA, (t.v.) og Aleksander Ceferin, forseti UEFA, (t.h.). Vísir/EPA Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, kallar eftir nýrri forystu hjá FIFA í ljósi áætlana hans um einkafjárfestingu í sambandinu, sem hætt hefur verið við. Forsetakosningar fara fram í mars.
Í gærkvöld greindi Gianni Infantino, forseti FIFA, frá því að hann myndi falla frá áætlunum um að hleypa einkafjárfestum að sambandinu. Þær áætlanir höfðu vakið hörð viðbrögð og mótmæli víða að. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hafði lýst því yfir í kjölfar neyðarfunds í vikunni að landslið Evrópu myndu sniðganga allar keppnir FIFA ef málið næði fram að ganga. Margur hefur kallað eftir breytingu og afsögn Infantino sem forseta vegna málsins. UEFA tók skrefið í dag og kallaði eftir nýrri forystu innan sambandsins. „Núverandi forysta FIFA hefur ekki aðeins misst traust UEFA heldur einnig traust margra annarra meðlima knattspyrnufjölskyldunnar,“ „Þegar Gianni Infantino bað um traust og atkvæði aðildarsambanda FIFA til að kjósa hann sem forseta árið 2016, sagði hann: „Auðvitað verðum við að vera gegnsæ“.“ „Hann sagði við þá hagsmunaaðila sem voru saman komnir: „Peningar FIFA eru ykkar peningar. Þetta eru ekki peningar forseta FIFA. Þið eruð aðildarsamböndin og peningar FIFA verða að þjóna þróun knattspyrnunnar og ekki neinu öðru.“ „Honum hefur mistekist að standa við bæði þessi loforð. Slæma, bakherbergislega og ógagnsæja samkomulagið sem hann klekkti út og reyndi að þvinga í gegn var allt annað en gagnsætt.“ Forsetakosningar fara fram á allherjarþingi FIFA í mars næstkomandi. Frestur til forsetaframboðs er fram í nóvember og þykir líklegt að UEFA muni leita frambjóðanda til að stíga fram gegn Infantino fyrir þann tíma. Nafn Nasser Al-Khelaifi hefur verið hent fram í þeirri umræðu. Sá er frá Katar er forseti Paris Saint-Germain í Frakklandi auk þess að vera formaður EFC, samtaka evrópskra fótboltafélaga, og er einnig meðlimur í stjórn FIFA.
FIFA UEFA KSÍ Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fjárfestingabankinn JP Morgan safnaði fé fyrir fyrirætlanir Gianni Infantino um einkavæðingu Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Bankinn var áður stór hluti af plönum um evrópska ofurdeild. 1. ágúst 2026 10:30 Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Carlos Cordeiro, yfirráðgjafi Gianni Infantino forseta FIFA, hefur sagt starfi sínu lausu í mótmælaskyni við fyrirhugaðar áætlanir um utanaðkomandi fjárfestingar. 31. júlí 2026 10:20 Concacaf mótmælir Fifa en sniðgengur ekki Concacaf mótmælir tillögum Gianni Infantino um að selja hlut Fifa til einkafjárfesta. Sambandið ætlar þó ekki að ganga jafn langt og Uefa með að sniðganga keppnir á vegum Fifa. 30. júlí 2026 19:42 Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Fleiri fréttir „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Sjá meira
JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fjárfestingabankinn JP Morgan safnaði fé fyrir fyrirætlanir Gianni Infantino um einkavæðingu Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Bankinn var áður stór hluti af plönum um evrópska ofurdeild. 1. ágúst 2026 10:30
Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Carlos Cordeiro, yfirráðgjafi Gianni Infantino forseta FIFA, hefur sagt starfi sínu lausu í mótmælaskyni við fyrirhugaðar áætlanir um utanaðkomandi fjárfestingar. 31. júlí 2026 10:20
Concacaf mótmælir Fifa en sniðgengur ekki Concacaf mótmælir tillögum Gianni Infantino um að selja hlut Fifa til einkafjárfesta. Sambandið ætlar þó ekki að ganga jafn langt og Uefa með að sniðganga keppnir á vegum Fifa. 30. júlí 2026 19:42