Upp­gjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig

Theodóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
726367968_27611801365112612_196531703070535791_n
vísir/hulda margrét

Víkingur og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin mættust á AVIS-vellinum í Laugardal í Bestu deild kvenna í kvöld. Kayla Marie Rollins kom Þrótti yfir í fyrri hálfleik en Dagný Rún Pétursdóttir jafnaði metin í seinni hálfleik.

Víkingur var nær sigrinum undir lok leiksins en fór illa með nokkur afar góð færi og þurfti að sætta sig við eitt stig. Með jafnteflinu færist Víkingur upp úr botnsætinu og í níunda sæti deildarinnar með ellefu stig, stigi fyrir ofan Val sem á leik til góða, en Þróttur situr áfram í sjötta sæti með 14 stig.

Það voru gestirnir úr Víkinni sem byrjuðu leikinn af meiri krafti. Víkingar komust ítrekað í álitlegar stöður á upphafsmínútunum og héldu boltanum vel, en tókst ekki að skapa sér afgerandi marktækifæri.

Þrátt fyrir betri byrjun Víkings voru það heimakonur sem komust yfir á 27. mínútu. Jelena Tinna Kujundzic kom þá með góða fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Kayla Marie Rollins skallaði boltann aftur fyrir sig og yfir Telmu Ívarsdóttur, sem var að spila sinn fyrsta leik í marki Víkings.

Víkingar héldu áfram að sækja fyrir leikhlé en þrátt fyrir ágætar sóknir tókst liðinu ekki að finna leið fram hjá vörn Þróttar og Mollee Swift, sem hélt hreinu fram að hléi. Staðan var því 1-0 fyrir Þrótti þegar flautað var til hálfleiks.

Seinni hálfleikurinn fór rólega af stað og lengi vel var lítið um opin færi hjá báðum liðum.

Á 71. mínútu kom þó verðskuldað jöfnunarmark Víkings. Jóhanna Elín Halldórsdóttir komst þá í dauðafæri en Mollee Swift varði vel frá henni. Boltinn féll hins vegar beint fyrir Dagnýju Rún Pétursdóttur, sem fylgdi vel á eftir og skoraði af stuttu færi.

Jöfnunarmarkið hleypti nýju lífi í sóknarleik Víkings og liðið var sterkari aðilinn það sem eftir lifði leiks.

Víkingur taldi sig hafa náð forystunni á 79. mínútu þegar Jasmín Erla Ingadóttir kom boltanum í netið. Aðstoðardómarinn flaggaði hins vegar rangstöðu og markið var dæmt af.

Gestirnir fengu svo annað dauðafæri tveimur mínútum fyrir leikslok eftir hraða skyndisókn. Jasmín Erla Ingadóttir sendi boltann á Örnu Ísold Stefánsdóttur, sem var alein inni í teig. Skot hennar fór hins vegar yfir markið og Víkingur missti þar með af góðu tækifæri til að tryggja sér þrjú afar mikilvæg stig í botnbaráttunni.

Hvorugu liðinu tókst að skora á lokamínútunum og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli í Laugardalnum.

Atvik leiksins

Dauðafæri Örnu Ísoldar reyndist atvik leiksins. Víkingur var hársbreidd frá því að snúa leiknum sér í vil og næla í þrjú afar mikilvæg stig, en Arna náði ekki að halda skotinu niðri þegar hún komst ein í gegn.

Stjörnur og skúrkar

Í liði Þróttar stóðu markaskorarinn Kayla Marie Rollins og Katie Cousins, sem sneri á dögunum aftur til Þróttar frá portúgalska félaginu Damaiense, upp úr. Kayla skoraði glæsilegt mark í fyrri hálfleik en Katie átti góðan leik á miðsvæðinu.

Hjá Víkingi var Jóhanna Elín Halldórsdóttir best. Þrátt fyrir að hafa hvorki skorað né lagt upp mark var hún síógnandi í sóknarleik Víkings og skapaði oft mikla hættu við mark Þróttara.

Dómarinn

Brynjar Þór Elvarsson og hans teymi leystu verkefni sitt vel af hendi. Víkingar voru þó ósáttir við nokkur atvik, þar á meðal þegar mark Jasmínar Erlu Ingadóttur var dæmt af vegna tæprar rangstöðu á 79. mínútu.

Stemning og umgjörð

Veðrið lék við leikmenn og áhorfendur í Laugardalnum þar sem ágæt mæting var hjá stuðningsmönnum beggja liða. Brauðstangirnar voru að vanda á sínum stað og umgjörðin hin fínasta.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira