Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júlí 2026 08:02 Liðsfélagar Lionel Messi báru hann um völlinn í fagnaðarlátunum eftir sigurinn á Englendingum. Getty/Patrick Smith Argentínska ofurstjarnan Lionel Messi svaraði gagnrýnendum sem hafa hraunað yfir ríkjandi heimsmeistara vegna meintrar hlutdrægni dómara og hygli frá yfirstjórn fótboltans.
Messi sagði að hæfileiki liðsins til að snúa við leikjum seint í leiknum, nú síðast í undanúrslitasigrinum á Englandi, væri afrakstur öflugs liðs sem kann að vinna leiki en ekkert annað. Eftir að hafa verið 1–0 undir þegar komið var á 85. mínútu kom Argentína til baka og vann 2–1 sigur á Englandi á miðvikudaginn til að komast í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Lionel Messi has a message for Argentina's detractors: "Nothing was handed to us." https://t.co/s6hWeHeur7— Washington Times Sports (@WashTimesSports) July 16, 2026 Argentína komst áfram fyrr á mótinu með því að sigra Grænhöfðaeyjar og Sviss í framlengingu og náði ótrúlegum 3–2 sigri á Egyptalandi eftir að hafa komið til baka úr 2–0 stöðu þegar aðeins ellefu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Bæði þjálfarar Sviss og Egyptalands gagnrýndu dómgæsluna. Hossam Hassan, þjálfari Egyptalands, gekk svo langt að segja að lið hans hefði orðið fórnarlamb yfirstjórnar fótboltans sem hygldi Messi og Argentínu. Ummælin ýttu undir gagnrýni frá stuðningsmönnum sem halda því fram að leikjafyrirkomulagið hafi verið hagstætt Argentínu og tilefnislausar ásakanir á samfélagsmiðlum um að stjórn fótboltans vilji að Argentína verði aftur heimsmeistari. „Við höfum verið bestir síðustu fjögur ár, hvort sem þér líkar það betur eða verr, og sama hvað hver segir,“ sagði Messi eftir sigurinn á Englandi. „Enn og aftur höfum við fest okkur í sessi meðal tveggja efstu liða heims. Það sannar að allt sem við höfum gert er engin heppni og Argentína hefur ekki fengið neitt gefins,“ sagði Messi Argentínska liðið hafði ekki viðurkennt kvartanirnar um dómgæsluna og FIFA. Á fyrri blaðamannafundum hafði Lionel Scaloni, þjálfari Argentínu, jafnvel ráðlagt blaðamönnum sem spurðu um málið „að fara ekki svo mikið inn á samfélagsmiðla.“ En eftir sigurinn á Englandi börðust ríkjandi meistarar á móti. „Að komast í tvo úrslitaleiki heimsmeistaramótsins í röð er eitthvað sem mjög fáir ná og þessi hópur gerði það. Ef við hefðum tapað fyrir Englandi hefði fólk komið fram og bullað eitthvað, en við gáfum þeim ekki tækifæri til þess,“ sagði Messi. Messi to critics: Nothing was handed to ArgentinaLionel Messi has a message for Argentina's detractors: "Nothing was handed to us."https://t.co/yfJgdElntS— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) July 16, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira