Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Sindri Sverrisson skrifar 16. júlí 2026 10:01 Enzo Fernández tíndi af sér spjarirnar og sýndi tattúin sín eftir sigurinn í gærkvöld. Hér fagnar hann með hinum markaskoraranum, Lautaro Martínez. Getty/Harry Langer Það voru bara fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma og England enn 1-0 yfir þegar flúraði miðjumaðurinn Enzo Fernández sýndi í gærkvöld eina af ástæðum þess að hann er dýrasti Argentínumaður í sögu fótboltans.
Englendingar voru komnir með allt sitt lið inn í eigin vítateig en þá barst boltinn til Fernández, rétt utan teigs. Hann lét vaða og boltinn söng í netinu. Staðan 1-1 og Argentína lét kné fylgja kviði því Lautaro Martínez skoraði sigurmarkið skömmu síðar. Fernández spilar því aftur til úrslita á HM eftir að hafa á undrahraða stimplað sig inn í lið Argentínu á HM 2022, aðeins 21 árs gamall og með aðeins þrjá vináttulandsleiki á ferilskránni. Hann var valinn besti ungi leikmaðurinn á mótinu og hélt upp á heimsmeistaratitilinn með því að fá sér HM-styttuna sem tattú. Reyndar er Fernández með ansi mörg tattú og má sjá sum þeirra á myndunum hér að neðan. „Tímasetning Guðs er fullkomin,“ stendur meðal annars á kroppnum hans og á kannski við tímasetningu marksins sem hann skoraði í gærkvöld. Enzo Fernandez er með tattú um allan líkama, meðal annars þessi hér á hálsinum.Getty/Robbie Jay Barratt Stærsta tattúið er Enzo Fernández með á bakinu en það er mynd af ljóni. Ensku ljónin máttu sín lítils gegn honum í gær.Getty/Richard Pelham HM-verðlaunagripurinn og dagsetningin, 18. desember 2022, sem og treyjunúmer Enzo Fernández, á handarbaki kappans.Getty/Carl Recine Fernández er einn af fimm bræðrum og var skírður í höfuðið á Enzo Francescoli — úrúgvæskum leikmanni sem vann Copa América í þrígang, er goðsögn hjá River Plate og var í miklu uppáhaldi hjá pabba Fernández. Hann á sjálfur tvö börn, Oliviu og Benjamin. Eftir alla velgengnina á HM 2022 tóku Chelsea-menn upp veskið og gerðu Fernández að dýrasta leikmanni í sögu Bretlands, með því að semja við Benfica um kaupverð upp á um 121 milljón evra. Enn í dag er Fernández sjötti dýrasti leikmaður sögunnar. Hann vann HM félagsliða fyrir ári síðan með Chelsea og lét þá flúra annan verðlaunagrip á sig. Tíminn hjá Chelsea hefur hins vegar ekki verið dans á rósum og undir lok síðustu leiktíðar, í apríl, ákvað þáverandi þjálfari liðsins Liam Rosenior að taka Fernández út úr leikmannahópnum í tvo leiki, eftir að Fernández hafði lýst yfir áhuga á að fara til Real Madrid. Spænska stórveldið fann sig knúið til að senda frá sér yfirlýsingu núna í byrjun júlí vegna fréttaflutnings og segja að félagið hefði ekki átt í neinum viðræðum, formlegum eða óformlegum, um að fá Fernández til félagsins. Forvitnilegt verður þó að fylgjast með framvindunni og hvort að Fernández taki slaginn áfram með Chelsea nú þegar liðið er ekki með í neinni Evrópukeppni en komið með nýjan mann í brúna sem talar sama tungumál og hann, Xabi Alonso. Næsta mál á dagskrá hjá Fernández er hins vegar að spila úrslitaleik HM, í annað sinn, aðeins 25 ára gamall.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Sjá meira