Freyr sáttur eftir draumabyrjun: „Finn fyrir gleði og létti“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júlí 2026 12:01 Freyr Alexandersson var að vonum sáttur með hvernig til tókst í fyrsta leik sínum sem þjálfari Rosenborg. getty/Matteo Ciambelli Rosenborg vann 3-0 sigur á Kristiansund í fyrsta leik sínum undir stjórn Freys Alexanderssonar. Breiðhyltingurinn var að vonum ánægður í leikslok.
Freyr var ráðinn þjálfari Rosenborg um miðjan júní. Aðeins nokkrum dögum áður hafði honum verið sagt upp hjá Brann. Illa hefur gengið hjá Rosenborg á þessu tímabili og Freyr tók við liðinu í fallsæti. En Rosenborg er ekki lengur þar eftir sigurinn á Kristiansund í gær. „Ég finn fyrir gleði og létti. Mér finnst við vera ótrúlega sterkir í fyrri hálfleik og mjög fagmannlegir í þeim seinni. Þetta var yndislegt,“ sagði Freyr eftir leikinn á Lerkendal. Rosenborg var 2-0 yfir í hálfleik eftir mörk frá Jonas Svensson og Dávid Duris. Amin Chiakha skoraði svo þriðja mark Þrándheimsliðsins í upphafi seinni hálfleiks. Rosenborg er nú í 12. sæti norsku úrvalsdeildarinnar með tólf stig eftir jafn marga leiki. Fyrir leikinn um helgina hafði liðið aðeins skorað níu mörk í ellefu deildarleikjum. Freyr er ekki eini Íslendingurinn hjá Rosenborg því Alfreð Finnbogason er yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Rosenborg hefur 26 sinnum orðið norskur meistari, síðast 2018. Á síðasta tímabili endaði liðið í 7. sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur Rosenborg er gegn Start á útivelli á laugardaginn kemur.
Norski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Fleiri fréttir Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Sjá meira