Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2026 06:31 Xabi Alonso og Álvaro Arbeloa stýrðu báðir Real Madrid á síðustu leiktíð en stýra nú báðir liðum í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð. Getty/Alberto Gardin/M Gracia Jimenez Álvaro Arbeloa verður nýr þjálfari Fulham en þessi 43 ára gamli Spánverji hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið. Þeir sem röðuðu upp leikjum ensku úrvalsdeildarinnar duttu þar í lukkupottinn.
Fulham hefur verið í leit að þjálfara eftir að Marco Silva hætti sem aðalþjálfari eftir síðasta tímabil. Nú hefur félagið fundið sinn mann: Álvaro Arbeloa, hinn sama og kláraði tímabilið með stórlið Real Madrid en var svo fórnað fyrir Jose Mourinho. „Ég hlakka mikið til að upplifa andrúmsloftið á Craven Cottage ásamt stuðningsmönnum Fulham og að hefja undirbúningstímabilið með leikmönnunum í næstu viku. Ég er viss um að við munum njóta ótrúlegs ferðalags saman,“ sagði Arbeloa í fréttatilkynningu sem birt var á heimasíðu Fulham. Spánverjinn var laus allra mála eftir að hann og Real Madrid skildu fyrr í sumar. Arbeloa tók við Real Madrid þegar Xabi Alonso þurfti að yfirgefa félagið í janúar, en fékk ekki að halda áfram í starfi eftir að tímabilinu lauk. Svo skemmtilega vill til að á opnunardegi ensku úrvalsdeildarinnar á komandi tímabili mætast einmitt lið Fulham og Chelsea. Hvort þeir sem röðuðu upp leikjum ensku úrvalsdeildarinnar hafi fengið að vita eitthvað á undan hinum þá duttu þeir í lukkupottinn því leikurinn varð allt í einu mun áhugaverðari. Nýr stjóri Fulham, Álvaro Arbeloa, mun þar mæta þeim sem hann tók við af sem stjóri Real Madrid, Xabi Alonso. Það verða örugglega mörg augu á þeim leik, ekki síst á Spáni og meðal stuðningsmanna Real Madrid. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Enski boltinn Chelsea FC Fulham FC Real Madrid CF Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Fótbolti Fleiri fréttir Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Sjá meira