Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2026 16:02 Katarina Sunde felldi tár í viðtali eftir sjö marka leik sinn, þegar hún ræddi um brúðkaup bróður síns. Skjáskot/TV 2 Katarina Dybvik Sunde var afar leið yfir því að fá ekki leyfi til að vera viðstödd brúðkaup bróður síns á Ítalíu en nýtti vonbrigðin til góðs með því að jafna markamet í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Sunde gerði sér lítið fyrir og skoraði heil sjö mörk í 8-1 stórsigri Aalesund á botnliði Bodö/Glimt í dag. Blikastelpan Daníela Dögg Guðnadóttir kom inn á hjá Aalesund í upphafi seinni hálfleiks en þá var staðan þegar orðin 5-0 og Sund búin að skora fernu. Hún náði svo að bæta við þrennu í seinni hálfleiknum og jafna met sem verið hafði alfarið í eigu Randi Leinan frá árinu 1997. View this post on Instagram A post shared by Toppserien | Norges øverste liga for kvinnefotball (@toppserien) Engu að síður var Sunde vonsvikin því hana hafði langað svo mikið að mæta í brúðkaup bróður síns eins og aðrir í fjölskyldunni. „Þetta hefur verið mjög erfitt og gærdagurinn var sérstakur fyrir mig. Ég hafði ákveðið að beina allri minni orku inn í leikinn hér í dag og standa mig, og gera það þess virði í það minnsta, þótt ég hefði gjarnan viljað vera á Ítalíu og fagna með þeim,“ sagði Sunde við TV 2 í Noregi. Bróðir hennar, Christer Dybvik Sunde, giftist landsliðsmarkverðinum Cecilie Fiskerstrand og var brúðkaupið haldið á Ítalíu eins og fyrr segir. „Ég bað um að fá leyfi. Úr því að þetta var brúðkaup stóra bróður míns þá fannst mér möguleiki að spyrja. En því var hafnað og ég virði það,“ sagði Sunde við Sunnmörsposten fyrr í þessari viku. Í stað brúðkaupsveislu fékk hún því markaveislu og er stolt af að hafa jafnað met Leinan sem staðið hafði í næstum þrjá áratugi. „Það er mjög flott, ég þigg þetta met. Ég vona að það standi í mörg ár,“ sagði Sunde.
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Sjá meira