Innlent

Enn bólar ekkert á fleiri á­kærum vegna net­verslunar

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Hildur Sunna Pálmadóttir er sviðsstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hildur Sunna Pálmadóttir er sviðsstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Einar

Nokkur mál varðandi brot á áfengislögum eru til afgreiðslu á ákærusviði lögreglunnar. Engin ákæra hefur verið gefin út í slíkum málum frá því í apríl. 

Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi.

Hildur segist ekki geta greint frá fjölda mála á borði ákærusviðs en segir tilvikin ekki mörg. Hún segir málin þó varða mismunandi einstaklinga eða fyrirtæki. 

Engar ákærur hafa verið gefnar út síðan í slíkum málum frá því að Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, var sakfelldur fyrr á árinu fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay og hlaut 100 þúsund króna sekt fyrir brot á áfengislögum. 

Að mati dómara var fyrirkomulagi áfengissölu félaganna Kjútís ehf. og Icelandic Trading Company b.v., sem starfrækir vef Smáríkisins, beinlínis komið á til þess að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis. Engu breyti þótt alþingismenn og ráðherrar segi slíkt fyrirkomulag löglegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×