Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Árni Sæberg skrifar 8. apríl 2026 14:35 Talsvert úrval er af hvítvíni í vefverslun Smáríkisins. Vínið sem ákært var fyrir selja má sjá annað frá vinstri í neðri línu. Það er uppselt sem stendur. Skjáskot/Smáríkið Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, hefur verið sakfelldur fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay í lok maí í fyrra. Hann hlýtur 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Greiði hann ekki innan fjögurra vikna þarf hann að sæta fangelsisvist í átta daga. Þá var hann dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, 4,9 milljónir króna.
Dómur þess efnis var kveðinn upp klukkan 14:30 en hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Vilhjálmur var ekki viðstaddur dómsuppsöguna en það voru fulltrúar forvarnarsamtaka og annarra netverslana með áfengi. Seldi beljuna á tæpar sjö þúsund krónur Honum var gefið að sök að hafa sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og daglegur stjórnandi í Kjútís ehf. og daglegur stjórnandi Í Icelandic Trading Company b.v., þann 30. maí 2024 selt einn þriggja lítra hvítvínsbelg af tegundinni BiB Frontera Chardonnay, fyrir 6.898 krónur í smásölu. Þetta hefði hann gert í gegnum vefsíðuna www.smarikid.is, sem starfrækt væri af félaginu Icelandic Trading Company b.v., en hann hefði þá verið skráður rétthafi lénsins, en áfengið hefði verið afhent sendli á vegum Wolt, sem hefði farið með áfengið til kaupandans í kjölfar þess að viðkomandi hafði innt af hendi greiðslu fyrir áfengið og sendingarkostnað í gegnum greiðslugátt á vefsíðunni klukkan 15:10 þann 30. maí 2024. Umrædd smásala áfengisins hefði verið liður í atvinnustarfsemi beggja félaganna. Íslenska félagið keypti vínið Félagið Kjútís ehf. hefði keypt áfengið af áfengisheildsala á Íslandi á grundvelli tímabundins leyfis til heildsölu áfengis og geymt það á starfsstöð sinni að Fellsmúla 24 í Reykjavík þar til áfengið var selt og afhent umræddum einstaklingi en framangreind viðskipti hefðu farið fram án þess að Vilhjálmur Forberg og félögin sem hann veitti fyrirsvar hefðu leyfi til smásölu áfengis á Íslandi á umræddu tímabili. Þannig hefði Icelandic Trading Company b.v. ekki flutt áfengið til Íslands í kjölfar pöntunarinnar í gegnum vefsíðuna heldur haft milligöngu um smásölu áfengis, sem Kjútís ehf. hefði þegar keypt hjá áfengisheildsala á Íslandi og haft í geymslu á starfsstöð sinni. Með framangreindum hætti hefði Vilhjálmur Forberg brotið gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis á Íslandi. Í ákærunni var þess krafist að Vilhjálmur Forberg yrði dæmdur til refsingar vegna brota á tilgreindum ákvæðum áfengislaga og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Brot á áfengislögum varða allt að sex ára fangelsi. Fjölskyldufyrirtæki Sem áður segir var Vilhjálmur Forberg ákærður sem framkvæmdastjóri Kjútís ehf. en hann á ekkert í félaginu. Félagið er að öllu leyti í eigu Ólafs Friðriks Ólafssonar, sem er þekktastur sem eigandi Pizzunnar. Ólafur Friðrik er bróðir Vilhjálms Forbergs en þeir eru synir Ólafs Björnssonar í Dalsnesi. Hann á meðal annars heildsöluna Innnes.
Netverslun með áfengi Dómsmál Verslun Áfengi Mest lesið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira