Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júní 2026 08:00 Arnar lenti í smá brasi með stutta spilið í golfinu í Japan. EPA/Jakub Kaczmarczyk POLAND OUT Arnar Gunnlaugsson glímir við örlitla flugþreytu eftir ferðalag frá Japan til Bandaríkjanna fyrir komandi leik karlalandsliðsins í fótbolta við Argentínu. Hann naut sín betur í austurlöndum fjær en hann gerði sem leikmaður fyrir þremur áratugum.
Teymi íslenska liðsins kom til Auburn í Alabama aðeins á undan leikmönnum sem voru á sinni fyrstu æfingu á svæðinu í dag. Fram undan er leikur við heimsmeistara Argentínu á þriðjudaginn kemur en Ísland tapaði 1-0 fyrir Japan á sunnudaginn var. Langt ferðalag er að baki eftir enn lengra ferðalag frá Íslandi til Japan þar á undan. Flugþreytan segir aðeins til sín. „Það var smá tricky að aðlagast í Japan, það tók nokkra daga eftir langt ferðalag. Svo erum við núna komnir til Bandaríkjanna í annað tímabelti en sem betur fer erum við að koma tímanlega fyrir leikinn svo ég held að allir verði búnir að aðlagast þegar líður að leikdegi,“ segir Arnar við Vísi. Borðaði meira en bara grjón og vatn Arnar hafði fyrir förina einu sinni ferðast til Japans, með íslenska landsliðinu árið 1994. Hann greindi frá því við Vísi í síðasta mánuði að hann hafi á þeim tíma, tvítugur að aldri, ekki notið þess nægilega vel að fara þangað austur og í raun aðeins borðað hrísgrjón og vatn. Þú hlýtur nú að hafa gert aðeins betur við þig í þetta skiptið? „Ég held að það hafi verið svipaður matur í boði en bragðlaukarnir hafa þroskast aðeins. Þetta var dýrlegt að koma til Tókýó, að upplifa þeirra frábæru menningu og gestrisni. Það fór vel um okkur og við heimsóttum íslenska sendiráðið. Þetta var í alla staði mjög vel heppnuð ferð,“ segir Arnar. Þarf að vinna í stutta spilinu Starfsteymi Íslands gat fengið smá frí á milli leikjanna áður en haldið var til Bandaríkjanna og farið var meðal annars í golf. Arnar birti myndir af sér á golfvellinum í Japan í sögu sinni á samfélagsmiðlum. Tókst að lækka forgjöfina í Japan? „Ég var að koma vel undan vetri. Ég verð að viðurkenna það. Ég var meira en hissa á því hvernig ég var að slá. En það voru gamlir draugar í stutta spilinu voru enn að elta mig. Ef maður ætlar að lækka forgjöfina þarf að æfa stutta spilið. Ég hef ekki alveg lagt nægilega mikla rækt á það í gegnum tíðina,“ segir Arnar léttur. Ísland mætir heimsmeisturum Argentínu á aðfaranótt miðvikudags klukkan 1:00 eftir miðnætti á þriðjudegi. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira