Suárez fær ekki að vera með á HM Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 15:01 Luis Suárez hefði verið á heimavelli í Miami með úrúgvæska landsliðinu en var ekki valinn í HM-hópinn. Getty/Rich Storry Í fyrsta sinn frá árinu 2002 er Úrúgvæ á leiðinni á HM í fótbolta án framherjans Luis Suárez. Landsliðsþjálfarinn Marcelo Bielsa valdi hann ekki í HM-hópinn sem tilkynntur var í dag.
Suárez er orðinn 39 ára og er leikmaður Inter Miami. Hann er markahæstur í sögu úrúgvæska landsliðsins með 39 mörk í 143 landsleikjum. Suárez hætti með landsliðinu haustið 2024 og hélt því fram að Bielsa væri búinn að kljúfa leikmannahópinn. Í byrjun þessa mánaðar sagðist hann hins vegar hafa beðist afsökunar á ummælum sínum en viljað rýma til fyrir yngri leikmönnum. Hann myndi hins vegar aldrei segja nei ef landsliðið þyrfti á honum að halda, sérstaklega ekki fyrir HM. Nú er hins vegar ljóst að Suárez fer ekki á HM. Úrúgvæ tekur nú þátt í fimmta skiptið í röð, eftir að hafa best náð 4. sæti með Suárez innanborðs á mótinu fræga í Suður-Afríku 2010, þar sem Suárez varði skot með hendi í 8-liða úrslitum og hjálpaði þannig Úrúgvæ að komast í undanúrslitin. Liðið hafði áður misst af því að komast á HM 2006. 🚨🇺🇾 OFFICIAL: Marcelo Bielsa releases Uruguay squad for the World Cup. pic.twitter.com/IrmUPxCx6V— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 31, 2026 Í úrúgvæska hópnum eru leikmenn á borð við fyrirliðann José María Giménez úr Atlético Madrid, Ronald Araújo úr Barcelona, Rodrigo Bentancur úr Tottenham, Manuel Ugarte úr Manchester United, Darwin Nunez úr Al-Hilal og að sjálfsögðu Federico Valverde úr Real Madrid. Úrúgvæ er í riðli með Spáni, Grænhöfðaeyjum og Sádi-Arabíu á HM og byrjar á að mæta Sádum í Miami 15. júní.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Sjá meira