„Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 26. maí 2026 20:00 Páll Óskar Hjálmtýsson er viðmælandi í hlaðvarpsþætti Björns Skúlasonar. Vísir/Vilhelm „Á endanum þurfti ég að spyrja sjálfan mig: Af hverju er radarinn minn stilltur á gaura sem vilja ekkert með mig hafa?“ segir margverðlaunaði tónlistarmaðurinn og poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson sem hefur fengið alls kyns verkefni á lífsleiðinni, allt frá poppstjörnuhæðum yfir í gjaldþrotslægðir. Lengi vel segir hann ástarsambönd sín hafa einkennst af höfnun og særindum og fékk aðstoð til að komast út úr því.
Pál Óskar þarf vart að kynna fyrir lesendum en hann er einhver frægasta poppstjarna landsins og hefur verið í áratugi. Í dag er hann yfir sig ástfanginn og hamingjusamlega giftur Edgar Antonio Lucena Angarita. Páll Óskar er viðmælandi í nýjasta þætti af Allt í lagi með Birni Skúlasyni. Hlaðvarpið er hluti af árverkniátaki Hugarafls, Allt í lagi, sem hefur það að markmiði að opna umræðu um andlega heilsu og hvetja fólk til að nýta sér úrræði þegar á reynir. Þættirnir verða átta talsins, koma út hálfsmánaðarlega og eru sýndir á Vísi. Hingað til hefur Björn rætt við Mugison, Unu Torfa, Kolfreyju og Pál Óskar og á eftir að ræða við Elínu Hall, Jón Jónsson og Emilíönu Torrini. Þáttinn með Páli Óskari má sjá hér: Páll Óskar fer yfir fjölbreyttan ferilinn og ræða þeir Björn um allt milli himins og jarðar, þar á meðal ástina og þá sorg sem fylgdi lengi hjá honum. „Ég hef lent í krefjandi hlutum í lífinu, fengið alls konar verkefni og sum þeirra voru gríðarlega erfið. Ég hef fengið að smakka á Mount Everest poppstjörnuhæðum og síðan gjaldþroti. Og höfnun í nánum samböndum, kærasti númer þrjár milljónir 285 þúsund. Á endanum þurfti ég að spyrja sjálfan mig: Heyrðu, getur verið að eitthvað af þessu sé mér að kenna? Af hverju er radarinn minn stilltur á gaura sem vilja ekkert með mig hafa? Af hverju er ég að leita í svona höfnun, af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt? Ég þurfti hjálp og aðstoð út úr þessu því þetta var vont. Mér leið ekki vel. Ég reyndi að skrifa þetta frá mér og koma þessu að í popptextunum.“ Páll Óskar er sannkölluð poppstjarna og stefnir á að vera 83 ára gömul drottning upp á trukk í Gleðigöngunni.Vísir/Ívar Fannar Það var þó ekki nóg að semja bara um sorgina og segist Palli gríðarlega þakklátur fyrir það að hafa fengið aðstoð. „Mín stærsta blessun er að ég leitaði mér síðan hjálpar og lærði að við erum öll í rússíbana en það eina sem við getum verið viss um í lífinu eru breytingar. Allt er stöðugt að breytast í kringum okkur. Þú verður að geta faðmað að þér breytingarnar, ekki fara í fýlu yfir þeim.“
Geðheilbrigði Hugarafl - Allt í lagi Tónlist Ástin og lífið Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira