Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2026 15:45 Leikmenn Breiðabliks fagna sigurmarkinu gegn Val. vísir/vilhelm Breiðablik er áfram með fullt hús stiga á toppi Bestu deildar kvenna eftir dramatískan sigur á Val, 3-2, í gær. Tveir aðrir leikir fóru þá fram en þeir unnust báðir á útivelli.
Strax á 3. mínútu í leiknum á Kópavogsvelli kom Líf Joostdóttir van Bemmel Blikum yfir eftir klaufagang í vörn Valskvenna. Margrét Brynja Kristinsdóttir svaraði með tveimur mörkum á sex mínútna kafla og gestirnir voru skyndilega komnir með forystuna, 1-2. Skömmu eftir annað mark Margrétar Brynju var samherji hennar, Hrafnhildur Salka Pálmadóttir, rekin af velli fyrir að toga í hár Barbáru Sólar Gísladóttur. Íslands- og bikarmeistararnir nýttu sér ekki liðsmuninn fyrr en í uppbótartíma. Fyrst jafnaði Sunna Rún Sigurðardóttir með skallamarki og svo skoraði Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, sjálfsmark. Lokatölur 3-2, Breiðabliki í vil. Klippa: Breiðablik - Valur 3-2 Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur gerðu góða ferð í Laugardalinn og unnu Þrótt, 1-2. Á 36. mínútu skoraði Sophia Romine með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf Rakelar Sigurðardóttur. Þremur mínútum síðar sendi Rakel aftur fyrir frá vinstri. Að þessu sinni sveif boltinn yfir Molee Swift í marki heimakvenna, í stöng og inn og staðan orðin 0-2, gestunum í vil. Alexia Czerwien minnkaði muninn í 1-2 á 52. mínútu en nær komst Þróttur ekki. Klippa: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 Aðeins eitt mark var skorað í Reykjavíkurslag Fram og Víkings á Lambhagavellinum. Á 55. mínútu fór skot Jasmínar Erlu Ingadóttur af Hörpu Helgadóttur og í netið. Þetta sjálfsmark dugði Víkingum til sigurs, 0-1. Klippa: Fram - Víkingur 0-1 Öll mörkin úr leikjum gærdagsins í Bestu deild kvenna má sjá hér fyrir ofan.
Besta deild kvenna Breiðablik Valur Þróttur Reykjavík UMF Grindavík UMF Njarðvík Fram Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Þótt aðeins fjórar umferðir séu búnar af Bestu deild kvenna í fótbolta hafa tveir leikmenn verið reknir af velli fyrir að toga í hár mótherja. Fjallað var um aukna tíðni hártogs í Bestu mörkum kvenna. 12. maí 2026 09:01 „Sýnir hvað við getum gert í þessari deild“ Grindavík/Njarðvík sótti gríðarlega öflugan 1-2 sigur á Avis vellinum í Laugardalnum þegar þær heimsóttu Þrótt í 4. umferð Bestu deild kvenna í kvöld. Natasha Anasi Erlingsson fyrirliði Grindavík/Njarðvík ræddi við Vísi eftir leik. 11. maí 2026 21:55 „Þetta var vont“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var eðlilega svekktur eftir grátlegt 3-2 tap gegn Breiðabliki í kvöld. 11. maí 2026 20:48 „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með stigin þrjú eftir dramatískan 3-2 sigur gegn Val í 4. umferð Bestu deildar kvenna en viðurkenndi að frammistaða liðsins hefði ekki verið nógu góð. 11. maí 2026 20:44 Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag Víkingur tryggði sér mikilvægan 0-1 sigur á Fram í leik þar sem bæði lið þurftu á stigum að halda. 11. maí 2026 22:15 Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Þróttur tók á móti nýliðum Grindavík/Njarðvík í 4. umferð Bestu deild kvenna á Avis vellinum í Laugardalnum í kvöld. Nýliðarnir sýndu svo sannarlega hvers megnugar þær eru og fóru með gríðarlega öflugan 1-2 útisigur af Avis vellinum í kvöld. 11. maí 2026 22:30 Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Breiðablik vann dramatískan 3-2 sigur á Val á Kópavogsvelli í 4. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. 11. maí 2026 20:25 Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Fleiri fréttir Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Sjá meira
Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Þótt aðeins fjórar umferðir séu búnar af Bestu deild kvenna í fótbolta hafa tveir leikmenn verið reknir af velli fyrir að toga í hár mótherja. Fjallað var um aukna tíðni hártogs í Bestu mörkum kvenna. 12. maí 2026 09:01
„Sýnir hvað við getum gert í þessari deild“ Grindavík/Njarðvík sótti gríðarlega öflugan 1-2 sigur á Avis vellinum í Laugardalnum þegar þær heimsóttu Þrótt í 4. umferð Bestu deild kvenna í kvöld. Natasha Anasi Erlingsson fyrirliði Grindavík/Njarðvík ræddi við Vísi eftir leik. 11. maí 2026 21:55
„Þetta var vont“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var eðlilega svekktur eftir grátlegt 3-2 tap gegn Breiðabliki í kvöld. 11. maí 2026 20:48
„Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með stigin þrjú eftir dramatískan 3-2 sigur gegn Val í 4. umferð Bestu deildar kvenna en viðurkenndi að frammistaða liðsins hefði ekki verið nógu góð. 11. maí 2026 20:44
Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag Víkingur tryggði sér mikilvægan 0-1 sigur á Fram í leik þar sem bæði lið þurftu á stigum að halda. 11. maí 2026 22:15
Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Þróttur tók á móti nýliðum Grindavík/Njarðvík í 4. umferð Bestu deild kvenna á Avis vellinum í Laugardalnum í kvöld. Nýliðarnir sýndu svo sannarlega hvers megnugar þær eru og fóru með gríðarlega öflugan 1-2 útisigur af Avis vellinum í kvöld. 11. maí 2026 22:30
Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Breiðablik vann dramatískan 3-2 sigur á Val á Kópavogsvelli í 4. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. 11. maí 2026 20:25
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn