„Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði að botninn hefði dottið úr leik hans manna undir lokin gegn Grindavík. Hann vill sjá sína lykilmenn spila betur í fjórða leiknum á mánudaginn en þeir gerðu í kvöld. Körfubolti 30.4.2026 21:41
„Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Jordan Semple sagði að Grindvíkingar hefðu loksins sýnt sínar bestu hliðar í úrslitakeppninni þegar þeir unnu Valsmenn, 93-67, í kvöld. Grindavík er 2-1 yfir í einvígi liðanna í undanúrslitum Bónus deildar karla. Körfubolti 30.4.2026 21:15
Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Grindavík tók forystuna í einvíginu gegn Val í undanúrslitum Bónus deildar karla með 93-67 sigri í þriðja leik liðanna í kvöld. Grindvíkingar leiða einvígið, 2-1, og geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í fjórða leik liðanna á mánudaginn. Körfubolti 30.4.2026 18:33
Uppgjörið: Valur 2-1 Grindavík/Njarðvík | Ísabella Sara hetja Valskvenna Íslenski boltinn 25.4.2026 15:17
Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík er aðeins einum sigri frá úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna í körfubolta, eftir afar öruggan 94-75 sigur gegn Njarðvík í öðrum leik liðanna. Körfubolti 23. apríl 2026 18:32
Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ DeAndre Kane talaði stöðugt við Kristófer Acox og skaut á hann í fyrsta leik undanúrslitaeinvígis Grindavíkur og Vals í gærkvöld, í Bónus-deildinni í körfubolta, og fagnaði sætum sigri í lokin. Körfubolti 23. apríl 2026 13:48
Pargo: Þurfum að vinna tvo leiki í viðbót Jeremy Pargo skoraði sigurkörfu Grindvíkinga í sigri þeirra á Val í fyrsta leik undanúrslita einvígis Grindavíku og Vals í Grindavík í kvöld. Lokastaðan 82-81 en Valur leiddi nánast allan leikinn en Grindavík var yfir þegar það skipti máli. Körfubolti 22. apríl 2026 21:14
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Valsmenn réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik í fyrsta leik undanúrslita Bónus deildar karla í Grindavík í kvöld. Höfðu þó bara tíu stiga forskot en Grindavík náði að kreista fram eins stigs sigur 82-81 og hafa tekið forskot í einvíginu. Körfubolti 22. apríl 2026 21:00
„Við ætlum ekki að nota það sem einhverja hækju“ Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, er spenntur fyrir því að kljást við öflugt lið Grindavíkur í undanúrslitum Bónus deildar karla. Hann ætlar ekki að nota lítinn hvíldartíma sem afsökun og segir Kára Jónsson vera kláran í slaginn. Körfubolti 22. apríl 2026 12:32
Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir því að Fram, Grindavík/Njarðvík og ÍBV verði í fallbaráttunni í Bestu deildar kvenna í sumar. Íslenski boltinn 22. apríl 2026 10:00
Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Bestu deild kvenna í fótbolta var opinberuð við hátíðlega athöfn í Kópavogi í dag. Breiðabliki er spáð titilvörn. Íslenski boltinn 21. apríl 2026 13:09
Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Það voru tvö funheit lið sem mættust í Ice Mar höllinni í dag í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna. Körfubolti 19. apríl 2026 19:15
„Allir að tikka inn og vörnin var bara framúrskarandi“ Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, var kampakátur í leikslok í Grindavík þar sem heimamenn lögðu Njarðvík 97-85 og eru komnir í 2-1 í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum. Körfubolti 10. apríl 2026 21:34
Grindavík sópaði Val í sumarfrí Grindavík vann 72-90 sigur gegn Val og þar með 3-0 sigur í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna. Grindvíkingar halda áfram í undanúrslit en Valskonur eru komnar í sumarfrí. Körfubolti 9. apríl 2026 20:42
„Nú er serían komin aftur á núll“ Allt er orðið jafnt í einvígi Grindavíkur og Njarðvíkur eftir að Grindvíkingar sóttu torsóttan sigur til Njarðvíkur í kvöld, 84-86. Körfubolti 6. apríl 2026 21:37
Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 84-86 | Allt jafnt eftir ótrúlega dramatík Njarðvíkingar tóku á móti Grindavík í kvöld í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla. Grindvíkingar fögnuðu dísætum sigri eftir mikla dramatík, 86-84, og jöfnuðu metin í einvíginu, 1-1. Körfubolti 6. apríl 2026 20:46
Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Grindavík komst áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbotla með sigri á grönnunum í Keflavík eftir vítaspyrnukeppni í knatthúsi Hauka að Ásvöllum. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 15:46
Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Njarðvík og Grindavík mætast í leik tvö í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í Icemar-höllinni í Njarðvík í kvöld. Þjálfari Njarðvík vonast til að sínir menn haldi haus og endurtekning verði ekki á slagsmálum líkt og sáust í fyrsta leik. Körfubolti 6. apríl 2026 11:47
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Grindavík er komið 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Val í úrslitakeppni Bónus deildar kvenna í körfubolta eftir spennutrylli í Grindavík í dag sem lauk með sex stiga sigri Grindavíkur, 79-73. Körfubolti 4. apríl 2026 18:51
Stinningskaldi safnaði fyrir sektinni og borgaði hana Stuðningsmannasveit Grindavíkur, Stinningskaldi, hefur safnað fyrir sektinni sem félagið fékk vegna ólátanna í leiknum gegn Njarðvík í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Körfubolti 4. apríl 2026 15:35
Enginn í bann en fullt af sektum Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur komist að niðurstöðu eftir uppákomuna í fyrsta leik Grindavíkur og Njarðvíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Enginn leikmaður var úrskurðaður í bann en félögin, og þá sérstaklega Grindavík, þurfa að greiða vænar sektir. Körfubolti 4. apríl 2026 12:23
Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Eftir allt havaríið í Grindavík í fyrrakvöld, þegar jafnvel lögregla og gæslufólk skarst í leikinn vegna óláta, er ómetanlegt að hafa rapparann og körfuboltadómarann Davíð Tómas Tómasson til að útskýra á methraða hvað í ósköpunum gekk á. Körfubolti 3. apríl 2026 08:00
Grindvíkingar harma og fordæma hegðunina Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna uppákomu í leik liðsins við Njarðvík á heimavelli fyrrnefnda liðsins í Bónus deild karla í körfubolta í gær. Körfubolti 2. apríl 2026 12:45
Fimm kærur á borði aganefndar: „Lítum þetta alvarlegum augum“ „Við viljum alls ekki sjá þetta. Ég og við öll í kringum sambandið lítum þetta alvarlegum augum,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, um þá uppákomu sem átti sér stað í leik Grindavíkur og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta í gær. Körfubolti 2. apríl 2026 09:36
Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 87-97 | Njarðvíkingar taka fyrsta leik með látum Úrslitakeppni Bónus deild karla hóf göngu sína í kvöld þar sem Deildarmeistararnir í Grindavík fengu Njarðvíkinga í heimsókn í leik eitt í HS Orku-höllinni. Körfubolti 1. apríl 2026 21:45