Valur – ÍBV 2-3 | Nýliðarnir á toppnum með fullt hús stiga Gunnar Egill Daníelsson skrifar 6. maí 2026 15:46 Eyjakonur eru efstar í deildinni eins og er. vísir / guðmundur Nýliðar ÍBV gerðu frábæra ferð á N1-völlinn á Hlíðarenda er liðið lagði Val að velli, 3-2, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld. ÍBV er eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, níu, og hefur skorað tíu mörk í leikjunum þremur. ÍBV náði forystunni eftir átta mínútur og það með fyrsta skoti leiksins. Sóley Edda Ingadóttir tók þá hornspyrnu fyrir Val, ætlaði að gefa boltann stutt en beint í fæturnar á Olgu Sevcova. Olga brunaði fram, lagði boltann til hliðar á Allison Clark sem var þá ein gegn Tinnu Brá Magnúsdóttur í marki Vals og renndi boltanum í netið. Undir lok fyrri hálfleiks, á 41. mínútu, jafnaði Valur metin. Nadía átti skotið sem leiddi til jöfnunarmarks Vals. vísir / guðmundur Eftir þunga sókn átti Nadía Atladóttir skot í varnarmann við markteig, ÍBV hreinsaði frá en mjög stutt, Bryndís Eiríksdóttir gaf fyrir og þar var Kolbrá Una Kristinsdóttir grimm í markteignum og skallaði boltann í netið á sama tíma og Arden La-Rose í marki ÍBV keyrði hana niður. Staðan þegar flautað var til leikhlés var því 1-1. Valur jafnaði metin af miklu harðfylgi. vísir / guðmundur Strax í upphafi síðari hálfleiks var Valur búinn að snúa taflinu við. La-Rose átti þá skelfilega sendingu beint í fætur Arnfríðar Auðar Arnarsdóttur sem þakkaði fyrir sig með því að hlaupa inn í vítateiginn hægra megin og smella boltanum upp í samskeytin fjær. Staðan orðin 1-2 og 48 mínútur liðnar af leiknum. Margét Brynja sækir að marki. vísir / guðmundur Valur var með tögl og hagldir næstu 20 mínútur en þá tók ÍBV aftur vel við sér og hóf að gera mikla atlögu að marki heimakvenna. Á 72. mínútu náðu Eyjakonur svo að jafna metin. Olga átti þá þrumuskot úr D-boganum sem Tinna Brá varði út í markteig þar sem Allison Lowrey var mætt sem gammur og tæklaði boltann í netið, 2-2. Fimm mínútum síðar náði ÍBV svo forystunni í annað sinn í leiknum. Embla Harðardóttir vippaði þá boltanum glæsilega inn fyrir vörn Vals, Viktorija Zaicikova var mætt í frábært hlaup og lyfti skoppandi boltanum snyrtilega yfir Tinnu Brá. Staðan þá orðin 3-2 fyrir ÍBV og reyndust það lokatölur. Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi... vísir / guðmundur vísir / guðmundur Besta deild kvenna Valur ÍBV