Mistókst hrapallega að fá fulltrúa Ísraels og Palestínu saman á mynd Sindri Sverrisson skrifar 1. maí 2026 08:01 Gianni Infantino bauð Jibril Rajoub, formann palestínska knattspyrnusambandsins, velkominn á ársþing FIFA í gær. Getty/Elizabeth Ruiz Gianni Infantino, forseti FIFA, reyndi að fá forkólfa palestínska og ísraelska knattspyrnusambandsins til þess að stilla sér saman upp á mynd en það olli talsverðri uppákomu, á ársþingi FIFA í Kanada í gær. „
Þjóðin okkar er að þjást,“ sagði formaður palestínska sambandsins þegar Infantino reyndi að fá hann til að taka í hönd varaformanns ísraelska sambandsins, með afar misheppnuðum hætti. Infantino hafði kallað þá upp á svið og þangað mættu þeir báðir en Jibril Rajoub, forseti palestínska sambandsins, hafði nákvæmlega engan áhuga á að koma of nálægt fulltrúa þjóðarinnar sem stundað hefur þjóðarmorð á Palestínumönnum. Infantino attempts to get Palestine and Israel to pose for photos together at 76th FIFA Congress.But Palestinian representative refuses, leaving Infantino desperately trying to plead with him in tense 2-min standoff.Gianni forced to give up. "We are suffering!" shouts 🇵🇸 rep. pic.twitter.com/gvFm0YLbrk— Carl Worswick (@cworswick) April 30, 2026 „Ég get ekki tekið í höndina á einhverjum sem Ísraelsmenn hafa sent til að hvítþvo sig af fasisma og þjóðarmorði. Við erum að þjást,“ sagði Rajoub þegar hann neitaði beiðni Infantino, samkvæmt varaformanni palestínska sambandsins, Susan Shalabi. Palestínumenn höfðu fyrr á þinginu ítrekað beiðni sína um að ísraelskum félagsliðum verði ekki leyft að hafa bækistöðvar sínar á Vesturbakkanum, samkvæmt frétt Reuters. Þegar Infantino varð ljóst að hann fengi Rajoub ekki til að taka í hönd Basim Sheikh Suliman, varaformanns ísraelska sambandsins, steig hann í pontu og sagði: „Við þurfum að vinna saman. Rajoub formaður og Suliman varaformaður. Við skulum vinna saman og gefa börnunum von. Þetta eru flókin mál.“ Fulltrúar allra aðildarríkja FIFA nema Írans mættu á ársþingið í Vancouver í gær, þar á meðal fulltrúar KSÍ. Írönum var snúið við á landamærunum vegna tengsla formanns íranska knattspyrnusambandsins við Íranska byltingarvörðinn, IRGC, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Kanada.
FIFA Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira