Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Gísladóttir, Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Guðmundur Engilbertsson, Hermína Gunnþórsdóttir, Jóhann Örn Sigurjónsson, Rúnar Sigþórsson og Sólveig Zophoníasdóttir skrifa 4. maí 2026 09:00 Það er stöðugt viðfangsefni allra sem vinna í menntakerfinu og stjórnvalda á hverjum tíma að auka gæði menntunar. Í þessari grein beina höfundar sjónum að kennsluháttum en þeir eru sá þáttur í starfi skóla sem hefur mest áhrif á gæði og árangur menntunar. Því ættu stjórnvöld að beina athygli og orku að öllu því sem styrkir daglegt starf í skólastofum landsins. Í þessari fyrstu grein af fjórum í greinaflokknum um gæði kennslu, fjalla höfundar um gæði kennslu út frá mismunandi forsendum sem allar hafa þó tengingu við rannsóknarverkefnið QUINT sem sneri að gæðum náms og kennslu á Norðurlöndunum. Rannsókn á gæðum kennslu Á undanförnum árum hefur stór hópur rannsakenda í átta háskólum á Norðurlöndum einbeitt sér að því að greina og þróa gæði kennslu í norrænum skólastofum, þar á meðal voru Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri. Tilgangur rannsóknarinnar var að veita innsýn í gæði kennslu á unglingastigi grunnskóla í þremur námsgreinum: íslensku, stærðfræði og samfélagsfræði. Byggt var á myndupptökum í kennslustundum í 8. bekk og þær greindar kerfisbundið með sérstökum matsramma. Sjónarhornið beindist einkum að því að greina tengsl kennslu og árangurs nemenda og að rannsaka hvernig myndupptökur af kennslu nýtist í starfsþróun kennara og í kennaramenntun. Verkefnið gengur undir heitinu QUINT (e. Quality in Nordic Teaching) og var styrkt m.a. af NordForsk og stýrt frá Háskólanum í Osló. Stuðst var við matsramma, PLATO, sem byggir á vel ígrunduðum rannsóknarniðurstöðum um gæði kennslu. Samkvæmt honum eru viðmið um gæði kennslu fjórþætt. Í fyrsta lagi að hvaða marki eru gerðar viðeigandi faglegar kröfur til nemenda, m.a. um þjálfun í að rökstyðja skoðanir sinnar. Í öðru lagi hvort nemendur fái nægan stuðning við námið. Þriðji þátturinn varðar framsetningu kennarans á námsefni og lykilhugtökum og í fjórða lagi er athygli beint að bekkjar- og tímastjórnun kennarans. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa birst í fjölmörgum greinum og bókum, bæði innlendum og erlendum. Þær benda til að víða megi gera betur á flestum þeim þáttum sem mældir voru. Íslenskir kennarar reyndust vera góðir í að skapa jákvætt og vingjarnlegt andrúmsloft í skólastofunni en mættu gera meiri faglegar kröfur til nemenda. Myndupptökur af kennslustundum reyndist vera árangursrík leið í starfsþróun kennara. Ein dýrmætasta afurð verkefnisins er aukinn skilningur og þekking á því hvernig kennarar geta bætt gæði eigin kennslu, ásamt gagnlegum verkfærum þeim til stuðnings. Hagnýting niðurstaðna og tillögur Á grundvelli niðurstaðna settu rannsakendur fram tillögur um leiðir til að styrkja kennsluhætti. Þeim er beint til skóla og yfirvalda menntamála hjá ríki og sveitarfélögum og eru settar fram í fimm liðum: Efla vandaða starfsþróun fyrir kennara sem byggir á bestu fyrirliggjandi þekkingu um fyrirkomulag farsællar starfsþróunar. Styðja við verkefni sem fela í sér samstarf rannsakenda og kennara, til dæmis með sameiginlegum námskeiðum eða vinnustofum. Nýta myndupptökur í starfsþróun kennara og í kennaramenntun til að brúa bilið milli fræða og starfs, meðal annars með uppbyggingu á gagnasafni (myndupptökum) og með notkun greiningarramma til að rýna kennslu. Leggja áherslu á notkun vel ígrundaðra matsramma um gæði kennslu til að stuðla að vönduðum kennsluháttum í öllum skólastofum. Að efla kennsluhætti í fjölmenningarlegum skólastofum til samræmis við stefnu um skóla margbreytileikans. Niðurstöðurnar geta haft margvíslega þýðingu fyrir íslenskt skólakerfi, m.a. hafa nokkrir skólar farið í markvissa vinnu við að þróa kennsluhætti, sem rýma vel við þessar tillögur. Kennarar rýna saman í myndupptökur af eigin kennslu og gera áætlun um umbætur. Slíkt verklag er gagnleg leið til að efla og styrkja lærdómssamfélag skóla. Frekari rannsóknir Tvö umfangsmikil og hagnýt rannsóknarverkefni sem byggja á niðurstöðum QUINT eru í gangi og styrkt af íslenskum samkeppnissjóðum. Menntarannsóknarsjóður styrkti rannsóknar- og þróunarverkefni þar sem 16 grunnskólakennarar í Múlaþingi og Reykjavík leitast við að þróa kennslu sína með hliðsjón af myndupptökum og PLATO. Auk þess stendur yfir umfangsmikil rannsókn, styrkt af RANNÍS, sem miðar að því að bæta gæði kennaramenntunar í samstarfi Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Þar er meðal annars lögð áhersla á að kennaranemar geri myndupptökur í eigin kennslu í vettvangsnámi og greini þær og rýni út frá greiningarramma og ígrundi með leiðsagnarkennara sínum í skólanum. Bæði þessi verkefni byggja á virku samstarfi kennaramenntastofnana og kennara á vettvangi og munu skila mikilvægum upplýsingum fyrir íslenskt menntakerfi. Flókin úrlausnarefni og þróun menntamála verða ekki leyst með einföldum skyndilausnum og átökum, en mun frekar með aðkomu kennara í samstarfi við rannsakendur, yfirvöld menntamála og aðra í lærdómssamfélagi skólakerfisins. Á þeim grunni má byggja faglega forystu í menntamálum til framtíðar. Höfundar: Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ Birna María B. Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild HA Guðmundur Engilbertsson, lektor við Kennaradeild HA Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA Jóhann Örn Sigurjónsson, sérfræðingur í stærðfræðimenntun hjá MMS Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus við Kennaradeild HA Sólveig Zophoníasdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA Heimildir Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstj.). (2025). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan. https://haskolautgafan.is/products/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur?taxon_id=4 Klette, K., Magnusson, C.G. og Sigurjónsson, J.Ö. (ritstj.). (2026). Investigating teaching quality through video capture: Equity and quality in Nordic classrooms. Springer. https://link.springer.com/book/10.1007/978-3-032-06893-4 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar