Ákærður fyrir banatilræði við Trump Eiður Þór Árnason skrifar 27. apríl 2026 23:57 Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra, ásamt Jeanine Pirro ríkissaksóknara og Kash Patel, forstjóra FBI, á blaðamannafundi eftir að hinn grunaði kom fyrst fyrir alríkisdómstól. AP/Manuel Balce Ceneta Maðurinn sem bandarísk yfirvöld segja að hafi reynt að ryðjast inn á kvöldverðarsamkomu samtaka fréttamanna í Hvíta húsinu vopnaður byssum og hnífum var ákærður í dag fyrir tilræði við Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Alríkisyfirvöld fullyrða að árásin hafi verið undirbúin í minnst nokkrar vikur. Cole Tomas Allen kom fyrir alríkisdómara í dag til að svara til saka fyrir ákærur eftir atvikið á laugardag þar sem skotum var hleypt af og gestir leituðu skjóls undir borðum sínum á meðan Trump var fluttur af svæðinu í snarhasti. AP-fréttaveitan greinir frá þessu en Allen var gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að næstu réttarhöldum. Hann á yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi verði hann sakfelldur fyrir morðtilraunina. Lögreglumenn með Cole Tomas Allen sem grunaður er um skotárás á blaðamannakvöldverði Hvíta hússins laugardaginn 25. apríl.AP/Alex Brandon Fram kom í framburði bandarísku alríkislögreglunnar FBI að talið sé að Allen hafi þann 6. apríl bókað herbergi á hótelinu í Washington þar sem viðburðurinn átti að fara fram vikum síðar. Hann hafi ferðast með lest þvert yfir landið frá Kaliforníu í síðustu viku og skráð sig inn á Washington Hilton-hótelið degi fyrir kvöldverðinn og verið með bókað herbergi yfir helgina. Meðferðis hafi hann verið með haglabyssu sem hann keypti í fyrra og hálfsjálfvirka skammbyssu sem hann keypti árið 2023, að sögn yfirvalda. Viðburðurinn var varla hafinn á laugardagskvöld þegar yfirvöld segja að hinn 31 árs gamli maður frá Torrance í Kaliforníu hafi reynt að ryðjast fram hjá öryggishindrun nálægt stóra veislusalnum þar sem hundruð blaðamanna og gesta voru samankomin. Þetta hafi leitt til skotbardaga við leyniþjónustumenn sem hafi reynt að tryggja öryggi viðstaddra á viðburðinum. Allen særðist í árásinni en var ekki skotinn. Leyniþjónustumaður var skotinn en var í skotheldu vesti og lifði af, að sögn yfirvalda. Sumt enn óljóst Enn er óljóst hversu mörgum skotum Allen skaut og hversu margir lögreglumenn skutu af vopnum sínum. Todd Blanche, settur dómsmálaráðherra, sagði rannsakendur telja að leyniþjónustumaður hafi skotið fimm skotum og Allen hafi skotið úr haglabyssu sinni að minnsta kosti einu sinni. Blanche sagði ekki hvort það hafi verið kúla Allens sem hæfði lögreglumanninn í vestið, eða hvort einhverjir aðrir lögreglumenn hafi notað vopn sín. Blanche sagði að skotvopnasérfræðingar væru enn að rannsaka sönnunargögn til að varpa frekara ljósi á þessar spurningar. Dómsmálaráðuneytið ákærði Allen fyrir tvö önnur skotvopnalagabrot, þar á meðal að hafa skotið af vopni í tengslum við ofbeldisglæp. Í framburði yfirvalda er því ekki haldið fram að Allen hafi skotið lögreglumanninn.
Bandaríkin Donald Trump Skotárásir í Bandaríkjunum Tengdar fréttir „Við búum í brjáluðum heimi“ Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við fréttaskýringaþáttin 60 Mínútur um helgina að hann hefði ekki orðið hræddur þegar árás var gerð þar sem galakvöldverður fjölmiðla og stjórnmálamanna fór fram í Washington. 27. apríl 2026 07:30 Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Settur dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir að byssumaðurinn sem hleypti af skotum á Hilton-hóteli í Washington í nótt hafi líklega ætlað að ráðast á Donald Trump Bandaríkjaforseta og fleiri háttsetta ráðamenn. 26. apríl 2026 14:00 Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Skotárás á galakvöldverði Bandaríkjaforseta með fjölmiðlum í gær er til marks um aukna hörku í bandarískum stjórnmálum að mati sérfræðings. Árásin sé ekki til þess fallin að hafa áhrif á vinsældir forsetans. 26. apríl 2026 12:26 Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Skýrari mynd er komin af atviki á Hilton-hótelinu í Washington í gærkvöldi þegar vopnaður maður hleypti af skotvopni og ógnaði gestum sem þar sóttu móttöku. Donald Trump Bandaríkjaforseti, Melania Trump forsetafrú og JD Vance varaforseti voru meðal annarra flutt í snarhasti út af viðburðinum. 26. apríl 2026 08:54 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
„Við búum í brjáluðum heimi“ Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við fréttaskýringaþáttin 60 Mínútur um helgina að hann hefði ekki orðið hræddur þegar árás var gerð þar sem galakvöldverður fjölmiðla og stjórnmálamanna fór fram í Washington. 27. apríl 2026 07:30
Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Settur dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir að byssumaðurinn sem hleypti af skotum á Hilton-hóteli í Washington í nótt hafi líklega ætlað að ráðast á Donald Trump Bandaríkjaforseta og fleiri háttsetta ráðamenn. 26. apríl 2026 14:00
Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Skotárás á galakvöldverði Bandaríkjaforseta með fjölmiðlum í gær er til marks um aukna hörku í bandarískum stjórnmálum að mati sérfræðings. Árásin sé ekki til þess fallin að hafa áhrif á vinsældir forsetans. 26. apríl 2026 12:26
Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Skýrari mynd er komin af atviki á Hilton-hótelinu í Washington í gærkvöldi þegar vopnaður maður hleypti af skotvopni og ógnaði gestum sem þar sóttu móttöku. Donald Trump Bandaríkjaforseti, Melania Trump forsetafrú og JD Vance varaforseti voru meðal annarra flutt í snarhasti út af viðburðinum. 26. apríl 2026 08:54