Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 07:00 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sá sína menn detta út í Meistaradeildinni í vikunni. Getty/Jan Kruger Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar að brotthvarf Liverpool úr Meistaradeildinni gæti hjálpað liðinu í baráttunni um að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni aftur á næsta tímabili.
Eina markmið Liverpool núna verður að reyna að tryggja sér sæti meðal fimm efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar eftir 4-0 tap samanlagt gegn Paris Saint-Germain í átta liða úrslitum í vikunni. Það kom í kjölfar þess að liðið steinlá gegn Manchester City í ensku bikarkeppninni. Allt þetta þýðir að leikmenn Slots eru með léttari leikjadagskrá en sumir keppinautar þeirra. 2-0 sigurinn gegn Fulham um síðustu helgi þýðir að liðið situr í fimmta sæti, fjórum stigum á undan Chelsea og þremur á eftir Aston Villa og Manchester United þegar sex leikir eru eftir. Margir spilað margar mínútur „Ef þú horfir á þá 15, 20, 25 leikmenn sem hafa spilað flestar mínútur á þessu tímabili, þá eru margir þeirra frá okkur,“ sagði Arne Slot. „Það segir manni mikið og er ein af ástæðunum fyrir því að við höfum verið svolítið óstöðugir, kannski af hverju við höfum fengið á okkur svo mörg mörk seint í leikjum, því það eru alltaf sömu leikmennirnir,“ sagði Slot. "The future looks very bright for this team" ⭐️Liverpool head coach Arne Slot reflects on his side's performance in their 4-0 aggregate defeat to PSG 🗣️ pic.twitter.com/slUQweWEZh— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 14, 2026 „Kannski frá því sjónarhorni er það gott að við séum ekki lengur í Evrópukeppni, en ég myndi klárlega frekar vilja spila í Evrópu því það gefur hópnum líka orku ef þú kemst í undanúrslit Meistaradeildarinnar,“ sagði Slot. Höfum aðeins meiri tíma til að æfa „Ég sé það ekki sem jákvæðan hlut að við séum úr leik en það er raunveruleikinn og við höfum aðeins meiri tíma til að æfa núna,“ sagði Slot. Fyrsti af þessum sex leikjum er á sunnudaginn gegn grönnunum í Everton, en það verður fyrsta heimsókn Liverpool á Hill Dickinson-leikvanginn. „Þetta er alltaf mjög sérstakur leikur, það skiptir ekki máli hvort þetta sé 60. leikurinn sem er spilaður á leikvanginum, en ef þetta er sá síðasti sem er spilaður á leikvangi eða sá fyrsti, þá gerir það hann enn sérstakari, ef það er þá mögulegt,“ sagði Slot. Mjög sérstakur leikur fyrir þá „Auðvitað eru þeir á mjög góðum stað um þessar mundir. Þetta verður alltaf mjög sérstakur leikur fyrir þá, en líka fyrir okkur,“ sagði Slot. Í fyrstu heimsókn Slots til Everton á síðasta tímabili var um að ræða síðasta grannaslaginn á Goodison Park, þar sem James Tarkowski jafnaði metin á áttundu mínútu í uppbótartíma. Slot, aðstoðarmaðurinn Sipke Hulshoff, Abdoulaye Doucouré hjá Everton og miðjumaður Liverpool, Curtis Jones, fengu allir rautt spjald í miklum látum í lokin, en stjóri Liverpool var ævareiður út í dómarann Michael Oliver. Höfðu ekki áhrif á mig á síðasta tímabili „Áhorfendurnir höfðu ekki áhrif á mig á síðasta tímabili, dómaraskipan hafði áhrif á mig,“ sagði Slot þegar hann var spurður hvort hann byggi vonir við að andrúmsloftið yrði öðruvísi á nýjum heimavelli Everton. „Síðasta tímabil var minn fyrsti Merseyside-grannaslagur á þeim leikvangi, þannig að ef við myndum spila á sama leikvangi myndi ég líklega vita við hverju ég ætti að búast. En ég held að leikvangur sé ekki hávær, það eru yfirleitt stuðningsmenn sem eru háværir,“ sagði Slot. „Hversu mikill munurinn verður, skal ég segja ykkur eftir helgi. Ég held að stuðningsmenn þeirra verði háværir, eins og okkar stuðningsmenn verða líka,“ sagði Slot. "There so many examples of players who came back even stronger." Arne Slot says he is "devastated" for Hugo Ekitike after he ruptured his Achilles tendon against PSG ⚽️ pic.twitter.com/MMbo8e92Vu— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 17, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Everton FC Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Sjá meira